Fréttablaðið - 08.04.2003, Síða 30

Fréttablaðið - 08.04.2003, Síða 30
Baltasar Kormákur lét ekkiskamma sig lengi í norska síðdegisblaðinu Verdens Gang eins og greint var frá hér í blaðinu. Leik- arar í upp- færslu á Litlu hryllingsbúð- inni í Osló fyr- ir tveimur árum hugðu sér gott til glóðarinnar þegar Baltasar kom til Noregs til að kynna nýj- ustu kvikmynd sína, Hafið, og út- húðuðu honum á síðum Verdens Gang fyrir fjármálaóreiðu og fyrir að hafa skilið þá eftir á köldum klaka þegar sýningin floppaði hér um árið. Þegar Baltasar kom til Noregs og sá í hvað stefndi hélt hann þegar í stað til fundar við lögmann Ver- dens Gang og las yfir hausamót- unum á honum. Dró blaðið í land daginn eftir og baðst afsökunar á frumhlaupi sínu. Flest var þar rangt. Til dæmis að Baltasar hefði verið leikstjóri sýningar- innar. Hann var framkvæmda- stjóri hennar en Ari Matthíasson leikstýrði. FÉLAGSMÁL Guðmundur Gunnars- son byrjaði í félagsmálavafstrinu tíu ára gamall. Þá með skátunum. Svo var það Iðnskólinn og hann var ekki fyrr kominn á vinnu- markaðinn en hann var orðinn trúnaðarmaður í Straumsvík. Hann varð formaður Rafvirkjafé- lagsins 1987 og svo Rafiðnaðar- sambandsins 1993. Þar situr hann enn þó um hann blási naprir vind- ar andstæðinga en er alls ekkert á förum: „Við höfum ekki kynnst svona vinnubrögðum fyrr hér í Rafiðn- aðarsambandinu en þetta verður að hafa sinn gang. Þing okkar verður haldið í næsta mánuði og þá kemur þetta allt í ljós,“ segir Guðmundur, sem líkar best að vera með sjálfum sér þó hann hafi verið að vasast í félagsmálum lengur en flestir eins og að ofan greindi. Segist einfari og líka vel: „Þrátt fyrir það er ég líka í stjórn hjá Útivist og nýt þess að ganga á fjöll og á skíðum þegar þannig gefur. Á síðasta ári svaf ég í 40 nætur í tjaldi. Mér er sama hvar ég sef í tjaldi. Svo lengi sem ég er ekki með steinvölu upp í hrygginn,“ segir hann. Guðmundur er kvæntur Hel- enu Sólbrá Kristinsdóttur og sam- an eiga þau einn dreng. Þá á Guð- mundur uppeldisdóttur og fjögur börn af fyrra hjónabandi. Þar er elst Björk Guðmundsdóttir, fræg- asti Íslendingur allra tíma: „Það er stór hópur í kringum mig því barnabörnin eru orðin sjö. Þetta er samheldinn og skemmtilegur hópur og gengur á ýmsu þegar við hittumst. En alltaf gaman,“ segir Guðmundur. ■ Hrósið 30 8. apríl 2003 ÞRIÐJUDAGUR Persónan GUÐMUNDUR GUNNARSSON ■ hefur átt undir högg að sækja sem formaður Rafiðnaðarsambandsins. En hann lætur ekki haggast. Og er ekkert á förum. Fær Sindri Sindrason, fráfrandiforstjóri Pharmaco, fyrir að hafa unnið nokkur ævistörf fimmtugur. Félagsmálatröllið er einfari GUÐMUNDUR GUNNARSSON Fimm barna faðir. Þar á meðal Björk. Fréttiraf fólki BLÓM Sextíu blómabúðir í Reykjavík - sex í Kaupmannahöfn. Neytendasamtökin í rósastríðið BLÓMAVERSLUN „Okkur er kunnugt um háa álagningu í blómaversl- unum og nú þegar skilaverð til blómabænda hefur lækkað um- talsvert er það krafa okkar að sú verðlækkun skili sér til neyt- enda. Við ætlum að ganga í þetta mál,“ segir Jóhannes Gunnars- son, formaður Neytendasamtak- anna. Jóhannes ætlar að gera fólk út af örkinni, láta það ganga á milli blómaverslana og birta síðan lista yfir álagningu og verð. Sem kunnugt er af fréttum hef- ur offramleiðsla á rósum orðið til þess að stórum hluta uppskerunn- ar er hent og skilaverð til blóma- bænda hefur lækkað um 15-20 prósent. Blómabændur staðhæfa að þessi lækkun komi ekki fram í verði rósa í blómabúðum, sem sé allt of hátt miðað við framboð. Blómaval hefur boðið tíu rósir í búnti á 990 krónur að undan- förnu á meðan aðrar blómaversl- anir eru með tilboð á sambæri- legum búntum á 1.400-2.000 krón- ur. Kristinn Einarsson, fram- kvæmdastjóri Blómavals, telur þó að hátt rósaverð megi skýra með fjölda blómaverslana á höf- uðborgarsvæðinu. Þær séu um 60 talsins á meðan sambærilegar verslanir í Kaupmannahöfn séu ekki nema sex. Þar, eins og hér, séu blómaviðskipti að færast inn í stórmarkaði og á bensínstöðvar og það komi að sjálfsögðu við rekstur hefðbundinna blóma- verslana. ■

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.