Fréttablaðið - 08.04.2003, Síða 32
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Bakþankar
KRISTÍNAR HELGU
GUNNARSDÓTTUR
Ertu að kaupa, byggja eða breyta? Þú getur á auðveldan hátt samið um fasteigna-
eða framkvæmdalán hjá Frjálsa fjárfestingarbankanum. Um er að ræða hagstætt
lán, sem veitt er til allt að 30 ára gegn veði í fasteign.
Allt að 80%veðsetningarhlutfallaf verðmæti fasteignar Frjálsa fjárfestingarbankans
Fasteignalán
Frjálsi fjárfestingarbankinn, Ármúla 13a, sími 540 5000, www.frjalsi.is
Íslenskir skíðamenn eru bjartsýn-asta fólk veraldar. Þeir fara ekki
svo mikið á skíði, en gá þess oftar til
veðurs. Dagar þeirra hefjast á því
að horfa í útsynninginn til fjalla, spá
og spekúlera í vindhraða og frost-
mark. Þeir eiga mikinn gagnabanka
um veðurfar og vita til dæmis að ef
hitinn fer yfir fjórar gráður á höfuð-
borgarsvæðinu rignir í fjöll, en
haldist hann í þremur gráðum snjó-
ar í brekkur. Löngum stundum bíða
þeir eftir kjöraðstæðum þar sem
frostmark, snjóalög, vindhraði og
skyggni verður að fara saman.
Sjaldnast verður þeim að ósk sinni
og þegar lóan lendir við Höfn í
Hornafirði eftir sitt árlega áætlun-
arflug bölva skíðamenn í hljóði og
allar vonir um skíðasnjó bráðna í
vorsól og nöturlegum hlýindum.
ÞEIR reyta hár sitt þegar fregnir
berast af rauðbrystingum á Álfta-
nesi og blesgæsum í Borgarfirði.
Líklega er vænlegra að stunda fjall-
göngur í Danmörku, sjóböð við
Grænlandsstrendur og víðavangs-
hlaup í Amason en að vera skíða-
maður á Íslandi. Ráðvilltir ráfa þeir
um stræti á snjólausum dögum eins
og mörgæsir í eyðimörk og eiga
langar rökræður um hvort leysa
megi landfestar og fleyta skerinu
norðar í von um eina eða tvær gráð-
ur í mínus.
EN ilmur vors og hlýinda boðar líka
kosningar og gylliboðahnoðrar eru á
lofti yfir landinu bláa. Tilboðum rign-
ir yfir kjósendur sem hafa ekki við
að tína upp í poka sinn loforð um
peningagjafir. Flokkar standa fyrir
fjölskylduskemmtunum svo húsdýra-
garðurinn fölnar. Tóti trúður mætir
og hljómsveitin Látalæti. Allir fá
ókeypis nammi, fulla vasa af skatta-
lækkunum og einhverjir bjóða upp á
staðfasta styrjaldarstefnu. Brúna-
þungir og harðsnúnir stjórnmála-
menn brosa nú blítt og alúðlega og
lýsa því hamingjusamir hvernig þeir
ætli að berjast við stóriðjugóðærið.
SKOÐANAKANNANIR á
klukkutíma fresti rugla hina skýr-
ustu í ríminu og kjósendur sem vilja
vera í vinningsliðinu verða svo átta-
villtir á kjördag að þeir stinga
debetkortinu sínu í kjörkassann. En
leiðtogarnir standa með sólgleraugu
á hæsta tindi og virða fyrir sér sitt
pólitíska landslag. Einhverjir svífa
niður en aðrir fara brotnir og
laskaðir heim. ■
Snjóléttir
dagar