Fréttablaðið - 28.04.2003, Page 6
6 28. apríl 2003 MÁNUDAGURVeistusvarið?
1Styr hefur staðið um ákvörðun Þor-finns Ómarssonar um að úthluta
Hrafni Gunnlaugssyni styrk til þess að
gera kvikmynd eftir sögu Davíðs Oddson-
ar. Hvað heitir myndin?
2Hvað heitir aðstoðarforsætisráðherraÍraka sem gaf sig fram við bandaríska
innrásarliðið í síðustu viku?
3Heimsfræg írsk söngkona hefur til-kynnt að hún ætli að hætta að gera
tónlist í júlí næstkomandi. Hvað heitir
konan?
Svörin eru á bls. 30
Bandaríkin og Norður-Kórea:
Viðræðum haldið áfram seinna
PEKING, AP Viðræðum Bandaríkj-
anna og Norður-Kóreu lauk í Peking
á föstudag með því að fulltrúar
Bandaríkjanna sögðu Norður-
Kóreubúa fullyrða að þeir ættu
kjarnavopn og kynnu að prófa þau
og selja til útflutnings.
Kóreumenn sögðust hafa lagt
fram nýja tillögu til lausnar deilu
þjóðanna en að hún hafi verið huns-
uð.
Bandarískir embættismenn
sögðu markmið sitt vera að kjarna-
vopnaáætlun Norður-Kóreu yrði
sannanlega úr sögunni og óaftur-
kallanleg.
Viðræðurnar í Kína stóðu í þrjá
daga. Þó ekki hafi náðst áþreifan-
legur árangur segir utanríkisráð-
herra Kína, Li Zhaoxing, viðræð-
urnar vera „mjög góða byrjun“ og
að fulltrúar beggja þjóða hefðu
samþykkt að hittast að nýju. „Báðir
vilja að málið verði leyst á friðsam-
legan hátt,“ segir Zhaoxing.
Suður-Kóreumenn munu vera
tvístígandi varðandi fullyrðingar
granna sinna í norðri um kjarna-
vopnaeign. Þeir telja slíkar fullyrð-
ingar jafnvel vera blekkingu til að
nota sem skiptimynt í samningavið-
ræðum. ■
Olía streymir í Írak:
Erlent fé fest
í olíulindum
ÍRAK, AP Dæling olíu í norður-
hluta Írak er hafin. Lið ráðgjafa
kannar hvernig einkavæða megi
risavaxinn olíuiðnað landsins og
jafnvel opna hann fyrir erlend-
um fjárfestum.
Olían sem nú er dælt upp ná-
lægt borginni Kirkurk er í litlu
magni og eingöngu ætluð til að
knýja raforkuver sem staðsett
eru í Norður-Írak.
Í næstu viku á einnig að hefja
olíudælingu nálægt Bagdad og í
suðurhluta landsins. Öll sú olía
er eingöngu ætluð til notkunar á
heimamarkaði en ekki til út-
flutnings. ■
JAMES KELLY
Aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna,
James Kelly, yfirgefur fundarstað í
Peking á föstudag.
Hafnarfjörður:
Vændi
rannsakað
frekar
VÆNDI Ríkissaksóknari hefur sent
lögreglunni í Hafnarfirði til frek-
ari rannsóknar mál vændiskonu
sem kallaði sig Dömuna. Konan
hefur játað að hafa selt blíðu sína
í bílskúr í úthverfi Hafnarfjarðar
og á heimili sínu á Hvaleyrarholti.
Mál hennar og sambýlismanns
hennar, sem annaðist bókhald og
milligöngu, hafði verið sent til
saksóknara.
Kristján Guðnason, aðstoðar-
yfirlögregluþjónn í Hafnarfirði,
segir málið vera í skoðun og að
það verði sent á ný til saksóknara.
Komi til þess að konan verði
ákærð verður það í fyrsta sinn hér
á landi sem slíkt mál fer fyrir
dómstóla. ■
UNNIÐ AÐ LAUSN LÆKNAVANDA
Á SUÐURNESJUM
Heilsugæslan í Reykjavík vinnur að tillög-
um um að læknar úr Reykjavík komi og
þjóni sjúklingum.
Læknisþjónusta
á Suðurnesjum:
HR vinnur
að málinu
HEILBRIGÐISMÁL „Það er rétt að
heilbrigðisráðuneytið hefur farið
þess á leit við okkur að við sæjum
um þann þátt heilsugæslunnar
sem snýr að læknisþjónustunni á
Suðunesjum,“ segir Guðmundur
Einarsson framkvæmdastjóri
Heilsugæslunnar í Reykjavík.
Guðmundur segir unnið að til-
lögum um hvernig því væri best
komið við. Ráðherra fengi þá til-
lögurnar til skoðunar og í fram-
haldi af því yrði ákvörðun tekin.
Horfið hefur verið frá því að
taka yfir rekstur Heilsugæslunn-
ar syðra að öllu leyti og nú er að-
eins skoðað hvernig læknar úr
Reykjavík geti tekið að sér lækn-
isþjónustuna. ■
JÓN KRISTJÁNSSON
HEILBRIGÐISRÁHERRA
Á sumardaginn fyrsta tók ráðherrann form-
lega í notkun nýtt og endurbætt húsnæði
Heilbrigðisstofnunar Hólmavíkur.
Heilbrigðisstofnun
Hólmavíkur:
Aðstaða
gjörbreytt
HEILBRIGÐISMÁL Jón Kristjánsson,
heilbrigðis- og tryggingamálaráð-
herra, tók á sumardaginn fyrsta
formlega í notkun nýtt og endur-
bætt húsnæði Heilbrigðisstofnun-
ar Hólmavíkur. Við sama tilefni
var undirritað samkomulag um
skilgreinda stefnumótun stofnun-
arinnar fram til ársins 2005. Al-
þingismenn, sveitarstjórnarmenn
í Strandasýslu, embættismenn og
fjölmargir aðrir gestir voru við-
staddir athöfnina.
Heilbrigðisstofnunin hefur nú
tekið stakkaskiptum og er allur
aðbúnaður vistmanna og starfs-
manna gjörbreyttur. Kostnaður-
inn við endurbyggingu Heilbrigð-
isstofnunarinnar á Hólmavík er
rúmar 126 milljónir króna á verð-
lagi ársins 2001, en þá var skrifað
undir viðaukasamning vegna
verksins. ■
FLUGÞJÓNAR FALLAST Á LAUNA-
LÆKKUN Flugþjónar hjá flugfé-
laginu American Airlines hafa
samþykkt launalækkanir sem
stjórn félagsins segir nauðsyn-
legar til að forða því frá gjald-
þroti. Ákvörðun flugþjónanna
var tekin í kjölfar sams konar
ákvörðunar tveggja aðra starfs-
hópa hjá American Airlines.
Úthlutun Ferða-
málaráðs gagnrýnd
Ólga innan ferðaþjónustunnar vegna úthlutunar fjár til landkynningar
erlendis. Icelandair, sem er með þriðjung orlofsfarþega, fékk 84%. Ekki
bara siðlaust heldur ólöglegt, segir Pétur Óskarsson hjá Kötlu Travel.
FERÐAMÁL „Ég tel að það hafið ver-
ið ákveðið fyrir fram hvernig þess-
um peningum yrði úthlutað. Ekk-
ert bendir til annars. Til dæmis
verður að teljast hæpið að
Icelandair hafi verið með sínar
markaðsáætlanir opnar á þessum
tíma,“ segir Pétur
Óskarsson, fram-
k v æ m d a s t j ó r i
Kötlu Travel
GmbH.
Hann gerir al-
varlegar athuga-
semdir við það hvernig 185 millj-
ónum sem Ferðamálaráð úthlutaði
til landkynningar erlendis var
útdeilt. Þar af fékk Icelandair 156
milljónir króna. Katla Travel, í
samstarfi við þýska ferðaheild-
salann Thomas Cook, þann næst-
stærsta í heimi, gerði einnig tilboð.
Pétur telur út í hött hversu stuttur
frestur var til að skila inn tilboð-
um. „Að ferðamálastjóri einn taki
þessa ákvörðun er glapræði og að
ætla sér að verja einhverjum 40 ís-
lenskum milljónum á þessum
risamarkaði í dagblaðaauglýsingar
er bara brandari. Þarna vantar all-
an fókus og peningunum er hent
út um gluggann. Þetta er ekki eins
og Fréttablaðið og Ísland, ef Magn-
ús Oddsson ferðamálastjóri heldur
það.“
Iceland Express hefur einnig
gert athugasemdir við það hvernig
fjármununum er ráðstafað en
Sturla Böðvarsson samgöngumála-
ráðherra hefur afgreitt kvörtun
félagsins sem stjórnsýslukæru og
því geti hann ekki tjáð sig um mál-
ið. Pétur telur einsýnt að það séu
undanbrögð til þess fallin að frysta
umræðuna fram yfir kosningar.
„Þetta er blóðugt. Við erum með
34% markaðshlutdeild í flutning-
um orlofsferðamanna til landsins
frá Þýskalandi og Austurríki –
hóps sem skiptir ferðaþjónustuna
hér miklu máli – mestu lands-
byggðarferðamenn sem til eru auk
Frakka. Við erum ekki að tala um
eitthvað Dirty Weekend-hopp sem
skilur lítið eftir og hefur eingöngu
þýðingu fyrir Reykjavík,“ segir
Pétur, sem hefur sent bréf til sam-
gönguráðherra þar sem hann setur
fram sjónarmið sín.
Þegar félag í einkaeign eins og
Icelandair fær 160 milljónir úr rík-
issjóði í markaðsstarf sitt er það
ekki lengur einkamál þess, að sögn
Péturs. Undanfarin 10 ár hafi
Icelandair boðið ferðaheildsölu-
fyrirtækjum í Þýskalandi peninga-
greiðslu sem bundin sé því skilyrði
að fyrirtækið skuldbindi sig til að
fljúga eingöngu með Icelandair.
„Við þetta er í sjálfu sér ekkert að
athuga nema að þegar hið opinbera
greiðir hluta þessa „markaðs-
kostnaðar“ skekkir það samkeppn-
ina verulega. Þetta er ekki bara
siðlaust heldur ólöglegt líka,“ segir
Pétur.
jakob@frettabladid.is
■ Bandaríkin
PÉTUR ÓSKARSSON
Segir brandara að ætla einhverjar 400 íslenskar milljónir í dagblaðaauglýsingar á
risamarkaði. Þær geti aldrei skilað neinu og séu því peningar út um gluggann.
■ “Að ferða-
málastjóri einn
taki þessa
ákvörðun er
glapræði.”
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Forsvarsmenn T-lista:
Telja Ellert vera vanhæfan
FRAMBOÐ Sérframboð Kristjáns
Pálssonar í Suðurkjördæmi hefur
krafist þess með kæru að Ellert
Eiríksson víki úr yfirkjörstjórn. Í
kæru sem send var yfirkjörstjórn
er vísað til þess að Ellert hafi ver-
ið formaður kjörnefndar Sjálf-
stæðisflokksins í kjördæminu,
sömu kjörnefnd og hafnaði Krist-
jáni Pálssyni. Hann hafi hagsmuni
af því að hygla Sjálfstæðisflokkn-
um í kjördæminu. Hann sé því
vanhæfur á grundvelli stjórn-
sýslulaga.
Ellert Eiríksson vísar þessum
ásökunum á bug. Hann segist
hins vegar hafa ákveðið fyrir um
mánuði síðan að víkja sæti. Það
hafi hins vegar ekkert með van-
hæfi að gera. „Konan mín stund-
ar háskólanám og nú eru próf að
hefjast. Ég hafði ákveðið að taka
mér frí til að sinna fjölskyld-
unni.“ Hann hafi greint formanni
yfirkjörstjórnar frá þessari
ákvörðun sinni fyrir mánuði síð-
an. Ekki náðist í Karl Gauta
Hjaltason, formann yfirkjör-
stjórnar. Ellert segir T- listamenn
seinheppna í kærunni í ljósi þess
að hann hafi þegar ákveðið að
víkja sæti.
Kristján Pálsson segir að Ell-
ert hefði í ljósi þessa verið í lófa
lagið að tilkynna slíka ákvörðun
fyrr. Þegar kæran var lögð fram
hafi ekkert bent til annars en að
Ellert myndi sitja sem fastast.
„Við lögðum fram bréfið á laug-
ardaginn og það er bókað af Ell-
ert sjálfum, þannig að þetta er
ótrúlegt yfirklór hjá honum að
grípa enn einu sinni til konu sinn-
ar til að verja sig.“ ■
KRISTJÁN PÁLSSON
“Ótrúlegt yfirklór hjá Ellert Eiríkssyni að grípa enn einu sinni til konu sinnar til að verja sig.”