Fréttablaðið - 28.04.2003, Blaðsíða 19
■ Molar
19MÁNUDAGUR 28. apríl 2003
Vinnuskólinn býður fjölbreytt útistörf
í sumar fyrir nemendur í 8., 9. og 10. bekk
grunnskólum Reykjavíkur.
Upplýsingar og skráning til 30. apríl:
www.vinnuskoli.is
VINNUSKÓLI
REYKJAVÍKUR
Umhverfis- og heilbrigðisstofa
Skúlagata 19 • 101 Reykjavík
Upplýsingasími: 563 2750
Hættur í þriðja
og síðasta sinn
Michael Jordan lék sinn síðasta leik í NBA-
deildinni í körfubolta á dögunum. Hann segist
ekki ætla að snúa aftur.
KÖRFUBOLTI Síðasti leikur Michael
Jordan í NBA-deildinni í körfu-
bolta var með Washington Wiz-
ards gegn Philadelphia 76ers um
miðjan þennan mánuð.
Jordan, sem er talinn einn besti
körfuboltamaður allra tíma, sagð-
ist á blaðamannfundi eftir leikinn
vera sáttur við að vera hættur.
„Nú er ég farinn að átta mig á því
að ég kem aldrei aftur til með að
vera í keppnisbúningi og tilfinn-
ingin sem því fylgir er alls ekkert
hræðileg,“ sagði Jordan. „Þetta er
eitthvað sem ég er búinn að sætta
mig við enda er minn tími kominn.
Þetta er í síðasta sinn sem ég legg
skóna á hilluna,“ bætti Jordan við.
Hann hefur tvisvar sinnum
áður hætt í körfuboltanum en í
bæði skiptin snúið aftur. Í fyrra
skiptið hætti hann eftir dauða föð-
ur síns, árið 1993. Hann sneri aft-
ur tveimur árum síðar eftir að
hafa reynt fyrir sér sem hafna-
boltaspilari með heldur döprum
árangri. Eftir að hafa tryggt Bulls
sjötta meistaratitilinn árið 1998
hætti hann aftur. Þremur árum
síðar ákvað hann óvænt að draga
skóna fram á ný, þá með Wash-
ington Wizards. Núna er hann loks
hættur, fertugur að aldri.
„Ég tók körfuboltanum aldrei
sem sjálfsögðum hlut. Ég var
mjög trúr leiknum og leikurinn
var mjög trúr mér. Svo einfalt var
það,“ sagði Jordan að lokum. ■
BLESS
Doug Collins, þjálfari Philadelphia 76ers (til vinstri), fylgist með Michael Jordan yfirgefa
völlinn í síðasta leik sínum í NBA-deildinni. Jordan varð sex sinnum NBA-meistari með
Chicago Bulls.
SÍÐASTI BLAÐAMANNAFUNDURINN
Michael Jordan talar á sínum síðasta blaðamannafundi sem leikmaður eftir leik Wash-
ington Wizards og New York Knicks. Knicks vann leikinn með 93 stigum gegn 79.
AP/M
YN
D
AP/M
YN
D
HM í íshokkí:
Danir unnu
Bandaríkjamenn
ÍSHOKKÍ Danir unnu Bandríkja-
menn 5:2 í 1. umferð heimsmeist-
arakeppninnar í íshokkí á laugar-
dag. Þetta eru einhver óvæntustu
úrslit í sögu keppninnar. Bo
Nordby-Andersen, Kim Stål og
Peter Damgård skoruðu fyrir
Dani í fyrstu lotu áður en Jim
Fahey minnkaði muninn í 3:1.
Daninn Ronny Larsen skoraði
eina mark annarrar lotu en Kelly
Fairchild (Bandaríkjunum) og
Kim Stål (Danmörku) skoruðu í
síðustu lotunni. Danski markvörð-
urinn Peter Hirsch átti stórleik og
varði 53 skot Bandaríkjamanna. ■
KÖRFUBOLTI Milwaukee Bucks vann
New Jersey Nets 119:114 í fram-
lengdum leik á laugardag. Þar
með hafa félögin unnið tvo leiki
hvort en þau mætast í fimmta leik
í New Jersey á mörgun.
Bucks leiddi 99:85 þegar rúmar
sex mínútur voru eftir og virtist
eiga vísan sigur. Liðið náði hins veg-
ar aðeins að skora eitt stig á
lokakaflanum og vann Nets upp for-
skotið. Richard Jefferson jafnaði
leikinn fyrir Nets í 100:100 úr víta-
skoti þegar hálf mínúta var eftir.
Leikmenn Bucks náðu sér aftur á
strik í framlengingunni og þriggja
stiga körfur frá Toni Kukoc og
Michael Redd undir lokin tryggðu
heimaliðinu sigur. Kenyon Martin
skoraði 30 stig fyrir Nets en Kukoc
skoraði 23 stig fyrir Bucks. ■
Meistaradeildin:
Portland
vann leikinn
HANDBOLTI Portland San Antonio
vann Montpellier HB 27:19 í fyrri
úrslitaleik Meistaradeildar Evr-
ópu í handbolta. Dómarar leiksins
voru þeir Gunnar Viðarsson og
Stefán Arnaldsson.
Nikola Karabatic skoraði ell-
efu af nítján mörkum franska fé-
lagsins. Mikhail Jakimovic skor-
aði tíu mörk fyrir Portland og
Jackson Richardson sex. Kúbu-
maðurinn Vladimir Rivero átti
mjög góðan leik í marki Portland
og hélt t.d. markinu hreinu í
fimmtán mínútur í fyrri hálfleik
þegar heimaliðið breytti stöðunni
úr 2:2 í 8:2. ■
DANSKUR SIGUR
Morten Green, Daniel Nielsen, Jesper
Damgård og Kim Stål fagna þriðja marki
Dana í leiknum gegn Bandaríkjamönnum.
KUKOC
Toni Kukoc, Milwaukee Bucks, sækir að
körfu New Jersey Nets. Aaron Williams er
til varnar.
Kim Magnús Nielsen varð Ís-landsmeistari í skvassi í ell-
efta sinn. Kim sigraði Sigurð G.
Sveinsson 3:0 í úrslitaleik. Rósa
Jónsdóttir vann Hildi Jónsdóttur
með sömu tölum í úrslitaleik
kvennanna.
Ronaldo segir að það verði ekk-ert vandamál að fella David
Beckham inn í leikskipulag Real
Madrid ef hann verður keyptur til
liðsins. Þrálátur orðrómur hefur
verið undanfarnar vikur um yfir-
vofandi kaup Real á kappanum.
Íslandsmeistarar Stjörnunnarurðu bikarmeistari karla í blaki
eftir 3:1 sigur á HK í úrslitaleik.
Stjarnan vann fyrstu hrinuna
25:18 en HK jafnaði með 25:23
sigri í næstu hrinu. Stjarnan
vann síðustu tvær hrinurnar
25:20 og 25:17.
HK sigraði í bikarkeppnikvenna. Kópavogsbúarnir
unnu Þrótt frá Neskaupstað 3:1 í
úrslitaleik á laugardag. Gangur
úrslitaleiks kvennanna var sá
sami og hjá körlunum. Sigurliðið
vann fyrstu hrinuna, tapliðið
jafnaði en sigurliðið vann síð-
ustu tvær. Lokatölur hrinanna
voru 25:20, 23:25, 25:14 og 25:20.
Cincinnati Bengals valdi leik-stjórnandann Carson Palmer
með fyrsta valrétti í háskólaval-
inu í bandaríska fótboltanum.
Baltimore Ravens þykir þó hafa
komist einna best frá nýliða-
valinu. Félagið valdi varnarlínu-
manninn Terrell Suggs og fram-
tíðarleikstjórnandann Kyle
Boller.
NBA-körfuboltinn:
Bucks - Nets
2:2