Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.04.2003, Qupperneq 20

Fréttablaðið - 28.04.2003, Qupperneq 20
FÓTBOLTI Michael Owen skoraði fjórum sinnum þegar Liverpool burstaði West Bromwich Albion 6:0 á laugardag. Eftir leikinn er Owen níundi markahæsti leik- maður úrvalsdeildarinnar en keppni í deildinni hófst haustið 1992. Hann er jafnframt yngstur þeirra sem skorað hafa 100 mörk í úrvalsdeildinni. Michael Owen hefur verið á mála hjá Liverpool frá ágúst 1996. Hann lék sinn fyrsta deildarleik vorið eftir og skoraði í 1:2 tapi gegn Wimbledon. Hann varð fastamaður í liði Liverpool frá og með haustinu 1997 og hefur skor- að jafnt og þétt fyrir félagið síðan þá. Owen skoraði sína fyrstu þrennu fyrir Liverpool í deilda- bikarleik gegn Grimsby í nóvem- ber 1997 en fyrstu þrennuna í deildarleik setti hann í 3:3 jafn- tefli gegn Sheffield Wednesday í febrúar 1998. Þrennan gegn WBA var sjöunda þrenna hans í úrvals- deildinni. Owen náði að skora 100. mark sitt í 185. deildarleiknum. Sex leikmenn Liverpool náðu þessum áfanga í færri leikjum. Roger Hunt þurfti 148 leiki, Jack Parkin- son 149, Gordon Hodgson 167, Sam Raybould 167, Ian Rush 168 og Robbie Fowler 175. Owen vantar enn 18 mörk til að jafna félagsmet Robbie Fowler, sem lék með Liverpool frá 1993 til 2001. Með sigrinum gegn WBA jafn- aði Liverpool stærsta sigur sinn á útivelli í úrvalsdeildinni en félag- ið vann Ipswich með sama mun í febrúar í fyrra. WBA hefur hins vegar aldrei hlotið aðra eins út- reið á heimavelli sínum, The Hawthorns, sem var vígður í sept- ember árið 1900. Eftir fjóra sigurleiki í röð er Liverpool aftur með í baráttunni um sæti í Meistaradeildinni. Fé- lagið er einu stigi á eftir Newcastle og hefur jafn mörg stig og Chelsea. Liverpool heimsækir Lundúnafélagið í lokaumferðinni, 11. maí, en leikur gegn Manchest- er City um næstu helgi. Michael Owen skoraði öll mörkin í 3:0 sigri þegar Liverpool heimsótti City í september og markið sem færði Liverpool sigur á Chelsea á Anfi- eld í byrjun október. ■ 20 28. apríl 2003 MÁNUDAGUR Þýska knattspyrnan: Bayern meistari í 18. sinn FÓTBOLTI Bayern München varð þýsk- ur meistari í knattspyrnu í 18. sinn á laugardag. Félagið vann Wolfsburg 2:0 með mörkum Giovane Elber og Claudio Pizarro á sama tíma og Stuttgart og Dortmund gerðu jafn- tefli í sínum leikjum. Afrekaskrá Bayern München er löng og glæsileg. Félagið hefur átján sinnum orðið þýskur meistari, tíu sinnum bikarmeistari, fjórum sinnum Evrópumeistari, tvisvar heimsmeistari félagsliða, einu sinni Evrópumeistari bikarhafa og einu sinni Evrópumeistari félagsliða. Bayern München náði forystu- hlutverki sínu í þýskri knattspyrnu á seinni hluta sjöunda áratugarins. Félagið varð að vísu meistari árið 1932 og en ekki aftur fyrr en árið 1969. Þýska deildakeppnin hófst haustið 1963 og var Bayern München ekki í efstu deild tvær fystu leiktíðirnar. Félagið náði þriðja sætinu á fyrsta ári sínu í efstu deild veturinn 1965-66 og var þremur stigum á eftir meisturun- um í 1860 München. Bayern hefur haft mikla yfirburði í Bundeslíg- unni í vetur og þegar fjórar um- ferðir eru eftir hefur félagið 13 stiga forystu. Stuttgart, Borussia Dortmund, Hertha Berlin og Hamburger SV eru í öðru til fimm- ta sæti og keppa um sæti í Meist- aradeildinni. ■ MEISTARAR Leikmenn Bayern München fagna 18. meistaratitli félagsins. Giovane Elber, Samuel Kuffour og Michael Ballack hlaupa til fyrirliðans Oliver Kahn. FÓTBOLTI Glasgow Celtic vann Rangers 2:1 á sunnudag og á enn von í keppninni um meistaratitilinn. Alan Thompson og John Hartson skoruðu fyrir Celtic en Ronald De Boer fyrir Rangers. Eftir leikinn er Celtic fimm stigum á eftir Rangers en á leik til góða gegn botnliði Motherwell. Á lokasprettinum leik- ur Celtic gegn Dunfermline (ú), Motherwell (ú), Hearts (h), Dundee (h) og Kilmarnock (ú) en Ragners við Dundee (ú), Kilmarnock (h), Hearts (ú) og Dunfermline (h). ■ LARSSON Henrik Larsson fagnar sigri Celtic gegn Boavista á fimmtudag. Larsson og félagar unnu Rangers á útivelli í gær og eiga enn möguleika á að vinna skoska meistaratitilinn. Skoska knattspyrnan: Celtic á enn von Ciudad Real vann Redbergslid33:27 í fyrri úrslitaleik félag- anna í Evrópukeppni bikarhafa í handknattleik. Rúnar Sigtryggs- son skoraði eitt mark fyrir spænska félagið. Seinni úrslita- leikurinn verður í Gautaborg um næstu helgi. Mats Olsson, fyrrum landsliðs-markvörður Svía, kemur til Íslands í maí og heldur fyrirlestur um þjálfum markvarða. Fyrirlest- urinn verður hluti af námskeiði sem HSÍ heldur. Valur sigraði í Deildabikar-keppni kvenna í knattspyrnu, ÍBV varð í öðru sæti, Breiðablik í þriðja og KR í fjórða. Í undanúr- slitum á laugardag leika ÍBV og Breiðablik og Valur og KR. Skoski framherjinn í liði Ev-erton, Duncan Ferguson, er í slæmum málum eft- ir að myndir náðust af honum þar sem hann gaf Jóhannesi Karli Guðjónssyni olnbogaskot í leik Everton og Aston Villa á laugardag. Boltinn var hvergi nálægt þegar atvikið átti sér stað. ■ Molar FJÖGUR Michael Owen fagnar fjórða marki sínu gegn WBA á laugardag. Hann er orðinn níundi markahæsti leikmaður úrvalsdeildarinnar. 100 mörk Michael Owen Michael Owen hefur skorað 102 deildarmörk fyrir Liverpool. Hann skoraði sína sjöundu þrennu í efstu deild á laugardag. MICHAEL OWEN (F. 14.12.1979) Þrennur í úrvalsdeildinni 1998 Sh. Wednesday - Liverpool 3:3 (3) 1998 Newcastle Utd - Liverpool 1:4 (3) 1998 Liverpool - N. Forest 5:1 (4) 2000 Liverpool - Aston Villa 3:2 (3) 2001 Liverpool - Newcastle Utd. 3:0 (3) 2002 M. City - Liverpool 0:3 (3) 2003 WBA - Liverpool 0:6 (4) MARKAHÆSTU LEIKMENN ÚRVALSDEILDARINNAR Alan Shearer 221 Andy Cole 152 Robbie Fowler 136 Les Ferdinand 136 Teddy Sheringham 130 Dwight Yorke 115 Ian Wright 113 Dion Dublin 109 Michael Owen 102 Matt Le Tissier 101

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.