Fréttablaðið - 28.04.2003, Side 21

Fréttablaðið - 28.04.2003, Side 21
■ ■ SAMKOMUR  13.00 Málþing um börn og fá- tækt verður haldið á Grand Hóteli í Reykjavík á vegum Ís-Forsa, samtaka áhugafólks um rannsóknir og þróunar- starf á sviði félagsráðgjafar. Jafnt fræði- menn sem einstaklingar sem þekkja fá- tækt af eigin raun fjalla um efnið.  14.00 Málþing um jafnrétti í víð- um skilningi í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur. Aðalfyrirlesari er dr. Teresa Rees, prófessor við Cardiff-háskóla í Wa- les. Jafnframt halda stutt erindi þau Dagur B. Eggertsson, Dr. Oddný Mjöll Arnardóttir lögmaður, Rósa Erlingsdóttir og Hildur Jónsdóttir.  14.00 Nýi vetnisbílinn frá Daimler Chrysler verður sýndur almenningi við Háskóla Íslands frá klukkan 14 til 15. Sérfræðingar frá Daimler Chrysler sýna bílinn, sem verður staðsettur fyrir fram- an Tæknigarð.  15.00 Dr. Scott Staley, yfirmaður efnarafaladeildar Ford Motor Company í Bandaríkjunum, heldur fyrirlestur í stofu 157 í VR II í Háskóla Íslands í tengslum við sýningu á nýja vetnisbílnum frá Daimler Chrysler.  16.00 Samtök ferðaþjónustunnar boða til fundar með frambjóðendum stjórnmálaflokkanna á Hótel Sögu (Sunnusal). Frambjóðendur reifa stutt- lega stefnu flokka sinna í málefnum sem tengjast ferðaþjónustunni og svara fyrirspurnum. Fundarstjóri verður Einar Bollason.  16.30 Arkitektarnir Helge Solberg, Jan Vincent Thue, Tore I. Haugen og Ævar Harðarson flytja erindi á málstofu um hönnunartengda byggingargalla sem haldin verður í stofu 157 í VR II, húsi verkfræðideildar við Hjarðarhaga 2-6. Fundarstjóri verður Trausti Valsson prófessor.  20.00 Skáld gegn stríði lesa upp í Þjóðleikhúskjallaranum. Fram koma Benoný Ægisson, Birgir Svan Símonarson, Elín Ebba Gunnars- dóttir, Erla Elíasdóttir, Einar Már Guðmundsson, Garðar Baldvins- son, Haraldur Sigfús Magnússon, Jón frá Pálmholti og Margrét Lóa Jónsdóttir. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.  20.00 Rithöfundarnir Silja Aðal- steinsdóttir, Guðjón Friðriksson og Páll Valsson, sem öll hafa hlotið Ís- lensku bókmenntaverðlaunin fyrir ævi- sögur, spjalla um aðferðir sínar og við- horf til ævisagnaritunar og lesa úr verk- um sínum á Súfistanum, bókakaffinu í Bókabúð Máls og menningar á Lauga- vegi 18.  20.30 Guðni Guðbergsson, fiski- fræðingur á Veiðimálastofnun, greinir frá rannsóknum á lífríki Lagarfljóts og breytingum á því sem vænta má vegna Kárahnjúkavirkjunar í stofu 101, Lög- bergi, Háskóla Íslands. Erindið er hið fjórða í röð fræðsluerinda Hins íslenska náttúrufræðifélags (HÍN) í ár. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. ■ ■ SÝNINGAR  Helgi Þorgils Friðjónsson er með einkasýningu á Kjarvalsstöðum. Hann sýnir þar eingöngu ný málverk. Á sama stað sýnir Ilmur Stefánsdóttir umbreytt farartæki, vídeómyndir og örsögur. Einnig er í safninu yfirlitssýning á verk- um Jóhannesar Kjarval.  Í Borgarskjalasafni Reykjavíkur, Tryggvagötu 15, stendur yfir sýning á kosningaáróðri frá árunum 1880 til 1999. Á henni má fræðast um hvernig baráttumál flokkana fyrir alþingiskosn- ingar í Reykjavík hafa breyst í gegnum tíðina  Bjarni Ragnar er með myndlistar- sýningu i gallery KLASSÍS, Skólavörðu- stig 8.  Jóna Þorvaldsdóttir sýnir átta svart- hvítar ljósmyndir á Mokka við Skóla- vörðustíg. Myndirnar eru teknar í Sló- veníu , Bandaríkjunum, Portúgal og á Kúbu á árunum 2000 til 2002. Jóna vinnur myndirnar allar í höndum, bæði framköllun og stækkun.  Þrjár myndlistarsýningar eru í Hafnarborg, menningar- og lista- stofnun Hafnarfjarðar. Björg Þor- steinsdóttir sýnir þar akrýlmálverk og vatnslitamyndir, sem unnar eru á tveimur síðustu árum. Auður Vé- steinsdóttir er með tvær sýningar á listvefnaði og ljósmyndum. Loks sýnir Sigríður Ágústsdóttir handmótuð, reykbrennd leirverk. Upplýsingar um viðburði og sýningar sendist á hvar@frettabladid.is ekki síðar en sólarhring fyrir birtingu. MÁNUDAGUR 28. apríl 2003 hvað?hvar?hvenær? 26 27 28 29 30 31 1 APRÍL Laugardagur Tveir dagar eru eftir af vikubókarinnar. Yfirskrift vik- unnar þetta árið er Ævisögur og af því tilefni hafa þrír höfundar ævisagna, sem allir hafa fengið Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir afrek sín á því sviði, verið fengnir til að mæta á Súfistann við Laugaveg í kvöld og spjalla um aðferðir sínar og viðhorf til ævisagnaritunar, auk þess sem þau lesa úr verkum sínum. Þetta eru þau Silja Aðal- steinsdóttir, sem árið 1994 hlaut Íslensku bókmennta- verðlaunin fyrir bókina Skáldið sem sólin kyssti: ævisaga Guðmundar Böðvarssonar, Guðjón Friðriksson, sem hlaut verðlaunin árið 1997 fyrir Einar Benediktsson – ævi- saga, og Páll Valsson, sem hlaut verðlaunin árið 1999 fyrir bókina Jónas Hall- grímsson – ævisaga. „Það má segja að ævisögur gefi manni gott færi til þess að þræða persónusögu einstaklings og vera um leið með nokkuð breiða þjóðlífslýsingu, sérstak- lega ef maður er með mann und- ir sem hefur verið nokkuð mið- lægur í samfélaginu. Um leið virðist þetta vera ágætis leið að fólki með því að sameina per- sónulegt drama og samfé- l a g s - sögu. Það er eins og fólk eigi auðveldara með að samsama sig einstak- lingum,“ segir Guðjón Friðriks- son sagnfræðingur, sem þessa dagana er að skrifa seinna bind- ið af ævisögu Jóns Sigurðsson- ar. „Sú bók kemur út núna í haust ef Guð lofar.“ Guðjón hefur verið býsna af- kastamikill ævisagnahöfundur undanfarinn áratug. Hann segir ekki laust við að hann sé að verða svolítið saddur á ævisög- um, í bili að minnsta kosti. „Ég er að ljúka við þriðju stóru ævisöguna sem ég hef skrifað. Þetta verða orðnar átta bækur og það er óneitanlega nokkuð mikið. En það er ekki alveg ljóst hvað tekur við hjá mér næst.“ gudsteinn@frettabladid.is ■ VIKA BÓKARINNAR Ævisagnahöfundar bera saman bækur 21 Ármúla 13, 108 Reykjavík sími 515 1500 www.kaupthing.is – fyrir þína hönd Frjálsi lífeyrissjóðurinn hefur sent sjóðfélögum og rétthöfum yfirlit yfir greidd iðgjöld á tíma- bilinu 1. janúar 2002 til 31. desember 2002. Á yfirlitunum koma fram upplýsingar um greidd iðgjöld, stöðu í séreignardeild og réttindi í tryggingadeild. Mikilvægt að bera saman yfirlit og launaseðla Mikilvægt er að bera saman yfirlit og launa- seðla sem og að athuga hvort rétt mótframlag hafi verið greitt til sjóðsins. Ef launaseðlum ber ekki saman við yfirlitið eða dregið hefur verið af launum þínum og þú ekki fengið yfirlit, þá vinsamlegast hafðu sam- band við viðkomandi fyrirtæki og/eða Kaup- þing banka hf. eigi síðar en 1. júní nk. Verði vanskil á greiðslum iðgjalda í lífeyrissjóð geta dýrmæt lífeyrisréttindi glatast. Frjálsi lífeyrissjóðurinn. Hefur þú fengið yfirlit? A B X 9 0 3 0 3 0 6 GUÐJÓN FRIÐRIKSSON SAGNFRÆÐINGUR Hann er einn þriggja sagnfræðinga sem ætlar að spjalla um ævisögur á Súfistanum. 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 The White Stripes SEVEN NATION ARMY Beastie Boys IN A WORLD GONE MAD Marilyn Manson MOPSCENE System ofÝa Down I-E-A-I-A-I-O Guano Apes YOU CANT STOP ME Ozzy Osbourne MAMA I’M COMING HOME Limp Bizkit DROP DEAD Placebo THE BITTER END Dáðadrengir ALLAR STELPUR ÚR... Transplants DJ DJ TOPP 20 á X-inu 97.7 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 Zack de la Rocha MARCH OF DEATH Johnny Cash HURT Blur OUT OF TIME A.F.I GIRLS NOT GREY Queens of the Stone Age GO WITH THE FLOW Oasis SONGBIRD Hell Is for Heroes I CAN CLIMB MOUNTAINS Dandy Warhols WE USED TO BE FRIENDS Linkin Park SOMEWHERE I BELONG Botnleðja EURO-VÍSA 16. VIKA FRÉTTAB LAÐ IÐ /B ILLI

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.