Fréttablaðið - 28.04.2003, Síða 32

Fréttablaðið - 28.04.2003, Síða 32
í Foldaskóla kl. 20 Ávörp flytja Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Össur Skarphéðinsson og Jóhanna Sigurðardóttir. Fundarstjóri er Bryndís Hlöðversdóttir. Tölum saman um baráttu fyrir almannahagsmunum, réttlátum leikreglum og sanngjarnari skiptum. Fundur með íbúum Grafarvogs í kvöld F Ó L K I Ð Í R E Y K J A V Í K SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500 Stjórnmál Framsóknarflokkurinn – kjölfestan í íslenskum stjórnmálum – ekki slagsmál Bakþankar ÞRÁINS BERTELSSONAR Það er spurning hvort við Íslend-ingar sem „staðföst fylgisþjóð“ stjórnvitringsins Bush Bandaríkja- forseta og hinna geðþekku ráðgjafa hans ættum ekki að bjóða Ameríkön- um að lána þeim Hjálparsveit skáta sem er þaulvön að leita uppi og finna vopnaða menn sem leitað hafa inn í kyrrð óbyggðanna til að finna frið í sálu sinni með því að elta uppi rjúpur til að drepa. BANDARÍKJAMENN hafa nú ráð- ist á og hernumið tvö lönd til að hafa uppi á tveimur einstaklingum, þeim Ósama Bin Laden og Saddam Hússein. En af þeim finnst hvorki tangur né tetur þótt ekkert hafi verið sparað til leitarinnar og ekki standi lengur steinn yfir steini í Afganistan og Írak. Nú hafa reyndar fundist 14 ómerktar tunnur úti í sveit, ekki langt frá Bagdad, og 150 gasgrímur á sama stað, sem Bandaríkjamenn telja benda til að í tunnunum sé að finna gereyðingarvopn. Á ÞESSARI STUNDU er of snemmt að segja til um hvað kunni að leynast í tunnunum þegar Banda- ríkjamenn um síðir komast að þeirri niðurstöðu að hyggilegt sé að opna þær og skoða innihald þeirra. Þeir sem stóðu að Flugumýrarbrennu á sínum tíma fengu að iðrast þess að hafa yfirsést að höfuðóvinurinn, Giz- ur Þorvaldsson, faldi sig einmitt ofan í tunnu í búrinu á bænum og komst undan með skuggalegum afleiðingum fyrir þá sem að aðförinni stóðu. BRENNUMENN þeir sem stóðu að hinni annars velheppnuðu Njáls- brennu fengu líka að naga sig í hand- arbökin yfir því að hafa yfirsést þeg- ar Kári Sölmundarson forðaði sér út úr brennandi bæjarrústunum hulinn reykjarmekki því að Kári var hefni- gjarn og hjó meðal annars höfuðið af einum brennumanna þar sem hann sat og taldi peninga „og sagði höfuðið tíu er það fauk af bolnum“. Þau höfuð sem telja ránsfenginn í Írak munu ef- laust nefna hærri upphæðir en „tíu“ og nú er eftir að vita hvort einhverjir hafa komist lífs af í reykmekkinum frá Bagdad og Kabúl, því að eftirleik- urinn er gjarna óvandaðri þótt hinar eftirminnilegu brennur á Bergþórs- hvoli og Flugumýri hafi aðeins verið eins og kertaljós miðað við það ófrið- arbál sem Bandaríkjamenn hafa nú kveikt. ■ Eftirleikurinn

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.