Fréttablaðið - 06.05.2003, Page 1

Fréttablaðið - 06.05.2003, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500 Tónlist 20 Leikhús 20 Myndlist 20 Bíó 22 Íþróttir 18 Sjónvarp 24 KVÖLDIÐ Í KVÖLD HANDBOLTI Missti boltann og skoraði STJÓRNMÁL Mætti vera líkara boltanum ÞRIÐJUDAGUR 6. maí 2003 – 102. tölublað – 3. árgangur bls.20 bls. 19 FUNDUR Áhugahópur um lýðræði á Íslandi efnir til fundar á Hótel Borg kl. 16.30. Ragnar Aðalsteins- son lögmaður flytur framsöguer- indi og fjöldi manna kemur með stutt innlegg. Stjórnmálaflokkun- um hefur verið boðið að taka þátt í pallborðsumræðum. Flokkar og lýðræði HANDBOLTI Fyrsti úrslitaleikurinn í viðureign Hauka og ÍR-inga um Ís- landsmeistaratitilinn í handbolta karla fer fram í kvöld. Leikurinn fer fram í Hafnarfirði og hefst kl. 19.15. Það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki verður Íslandsmeistari. Úrslitakeppnin hefst MÁLÞING Skipulag byggðar verður til umræðu á fundi ungra fram- sóknarmanna í Reykjavík. Meðal framsögumanna eru Trausti Vals- son og Hrafn Gunnlaugsson. Um- deild mynd Hrafns verður sýnd á þinginu, sem fer fram í kosninga- miðstöð ungs framsóknarfólks á Laugavegi 3 og hefst kl. 19.30. Tölvuleikur eða heimildarmynd KVIKMYNDIR Kvikmyndagerðar- mönnum gefst tækifæri til að sýna stuttmyndir sínar í húsakynnum MÍR og ræða um þær við áhorfend- ur á Opnu bíói. Bíóið hefst klukkan 19 með sýningu King Kong frá 1933. Opna bíóið REYKJAVÍK Suðvestanátt 8-13 m/s með skúrum eftir há- degi. Hiti 4 til 10 stig. VEÐRIÐ Í DAG + + VINDUR ÚRKOMA HITI Ísafjörður 8-15 Rigning 7 Akureyri 8-15 Skýjað 6 Egilsstaðir 8-15 Skýjað 5 Vestmannaeyjar 8-13 Skýjað 7 ➜ ➜ ➜ ➜ Valgerður Sverrisdóttir skipar 1. sæti á lista Framsóknarflokksins í Norð-austur kjördæmi Kjósum uppbyggingu í atvinnumálum STA Ð R EY N D UM MEST LESNA DAGBLAÐIÐ Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup í mars/apríl 2003 22,1% 52,3% 61,7% FR ÉT TA B LA Ð IÐ M O R G U N B LA Ð IÐ D V SKOÐANAKANNANIR Skoðanakannan- ir Gallup á fylgi stjórnmálaflokk- anna skömmu fyrir kosningarnar 8. apríl 1995 og 8. maí 1999 sýna ólík örlög stjórnarflokkanna. Framsóknarflokkurinn bætir við sig nokkrum prósentum í báð- um kosningunum miðað við kann- anirnar, en Sjálfstæðisflokkurinn tapar. Könnun Félagsvísindastofnun- ar Háskóla Íslands fyrir kosning- arnar 1995 sýnir sömu tilhneig- ingu og könnun Gallup. Í könnun Félagsvísindastofnunar, sem gerð var 22. til 25. apríl fyrir kosning- arnar 1999, mældist Sjálfstæðis- flokkurinn með 46,3% eða rúmum 5% meira en hann fékk í kosning- unum. Hjá Gallup mældist hann með 44,9%. Framsóknarflokkur- inn mældist hins vegar með 18,8%, sem er töluvert meira en hjá Gallup, en svipað og hann fékk í kosningunum. Þorlákur Karlsson, fram- kvæmdastjóri rannsóknar- og upplýsingasviðs IMG Gallup, vill taka það skýrt fram að upplýsing- arnar í töflunni sem birtist með fréttinni séu ekki kosningaspá fyrirtækisins fyrir umræddar kosningarnar. Um sé að ræða kannanir sem mæli fylgi flokk- anna nokkrum vikum fyrir kosn- ingar, en kosningaspá fyrirtækis- ins birtist deginum fyrir kosning- arnar. Þorlákur segist ekki vilja spá neitt í kosningarnar núna, það sé hlutverk stjórnmálafræðinga. Hann segist þó telja að Sjálfstæð- isflokkurinn muni ekki tapa miklu miðað við síðustu könnun Gallup, sem gerð var í lok apríl og sýndi hann með 34,2% fylgi, eins og hann gerði fyrir kosningarnar 1999. Hann segir að ef eitthvað sé til sem heiti kjarnafylgi hljóti Sjálfstæðisflokkurinn að vera kominn ansi nálægt því í síðustu könnun. Hvað stjórnarandstöðuflokk- ana varðar sker Samfylkingin sig úr að því leyti til að hún mældist með meira fylgi í skoðanakönnun- um Gallup og Félagsvísindastofn- unar en hún fékk síðan í kosning- unum sjálfum árið 1999. Hinir st jórnarandstöðuf lokkarnir bættu hins vegar verulega við sig í kosningunum miðað við kannan- irnar. Frjálslyndir bættu tæpum 2% við sig miðað við könnun Gallup og Vinstri grænir um 4%. Félagsvísindastofnun sýnir sömu þróun. trausti@frettabladid.is Ólík örlög flokkanna Framsóknarflokkurinn mældist með minna í könnunum 1995 og 1999 en hann fékk í kosningun- um. Sjálfstæðisflokkurinn mældist aftur á móti með meira. Framkvæmdastjóri hjá Gallup telur sjálfstæðismenn komna nálægt kjarnafylgi nú. ATVINNUMÁL „Er utanríkisráðherra að fela eitthvað? Það er stórundar- legt að frétta svona nokkuð utan úr bæ,“ segir Kristján Gunnars- son, formaður Verkalýðs og sjó- mannafélags Keflavíkur, um frek- ari fækkun hermanna á Keflavík- urflugvelli. „Það starfa hundruð manna frá okkur á vellinum og það munar al- deilis fyrir okkur hvort mikil fækkun hermanna verði. Fari svo eru það ekki þeir fyrstu sem fara. Hvers vegna er ekki búið að skrifa undir nýjan samning og setja loku fyrir að fleiri hverfi? Ég veit ekki hvað utanríkisráð- herra er að hugsa. Liggur hann kannski á frekari upplýsingum um þetta mál? Ég bara spyr.“ Donald Rumsfeld, landvarna- ráðherra Bandaríkjanna, hefur til- kynnt að verið sé að skoða endur- skipulagningu á herstöðvum Bandaríkjahers í Evrópu. Ekki stendur til að fækka hermönnum frekar, ráðherrann segir einungis um skipulagsbreytingar að ræða. „Þarna er engin tenging á milli,“ sagði Friðþór Eydal, upp- lýsingafulltrúi Bandaríkjahers. „Þeir eru búnir að velta þessu fyr- ir sér í mörg ár. Störf sem leggjast af hafa færst á aðrar deildir.“ Hann taldi ólíklegt að Íslendingar geti gengið í einhver störf í stað þeirra Bandaríkjamanna sem hverfa af landi brott. Þeim störf- um verður sinnt af herlögreglu- mönnum héðan í frá. Halldór Ásgrímsson var ekki til viðtals í gær. ■ Suðurnesjamenn óttaslegnir: Vilja skýringu á fækkun hermanna KLÆÐA GADDINN AF SÉR Það var allt annað en hlýtt úti þar sem mennirnir tveir voru að laga hitaveituna í Grímsfjallaskála á miðjum Vatnajökli. Þarna á við lærdómurinn sem foreldrar reyna að koma inn í kollinn á börnum sínum: Klæðið ykkur vel. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M Vatnajökull: Unnið í 15 stiga frosti FÓLK Þessir herramenn voru í óða önn að laga hitaveituna í Gríms- fjallaskála þegar ljósmyndari Fréttablaðsins var þar á ferð um helgina. Mönnunum féllust ekki hendur þrátt fyrir að mikill kuldi væri á svæðinu meðan þeir voru við vinnu. Fimmtán gráðu frost dugði ekki til að halda þeim frá vinnu og sáu þeir fram á að setja upp ljósa- vél í skálann eftir að viðgerð við hitaveituna væri lokið. Gríms- fjallaskáli er í eigu Jöklarann- sóknarfélags Íslands og er hann staðsettur upp á miðjum Vatna- jökli. ■ + + FYLGI FLOKKANNA SAMKVÆMT SKOÐANAKÖNNUNUM GALLUP FYRIR KOSNINGAR: 1995 1999 2003 Könnun1) Úrslit Könnun2) Úrslit Könnun3) Framsóknarflokkur (B) 20,2% 23,3% 17,3% 18,4% 12,8% Sjálfstæðisflokkur (D) 37,9% 37,1% 44,9% 40,7% 34,2% Samfylkingin (S) - - 30,1% 26,8% 32,9% Vinstri grænir (U) - - 5,0% 9,1% 9,5% Frjálslyndi flokkurinn (F) - - 2,4% 4,2% 9,6% Heimild: IMG Gallup 1) Könnunin var gerð 23. - 28. mars. Úrtakið var 1.112 einstaklingar. Svarhlutfallið var 70,6%. 2) Könnunin var gerð 9. - 18. apríl. Úrtakið var 1.136 einstaklingar. Svarhlutfallið var 70%. 3) Könnunin var gerð 9. - 22. apríl. Úrtakið var 1.140 manns. Svarhlutfallið var 67%.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.