Fréttablaðið - 06.05.2003, Blaðsíða 20
■ ■ FUNDIR
16.30 Áhugahópur um lýðræði á
Íslandi býður frambjóðendum stjórn-
málaflokkanna að taka þátt í umræðu-
fundi á Hótel Borg um stöðu og fram-
tíð lýðræðis á Íslandi. Ragnar Aðal-
steinsson lögmaður flytur framsögu-
erindi. Að því búnu verða Einar Árna-
son, Ólöf Guðný Valdimarsdóttir,
Knútur Bruun, Þórólfur Matthíasson,
Stefán Pálsson og Illugi Jökulsson
með stutt innlegg og loks verða pall-
borðsumræður með þáttöku frambjóð-
enda allra stjórnmálaflokkanna.
19.30 Námskeið fyrir verðandi
brúðhjón verður haldið í Grafarvogs-
kirkju á vegum Fjölskylduþjónustu kirkj-
unnar. Þar fjallar prestur um hjónavígsl-
una, sálfræðingur um góð samskipti í
hjónabandi, organisti kynnir brúðkaups-
tónlist og leikarar verða með gaman-
spuna á staðnum um samskipti hjóna.
19.30 Trausti Valsson skipulags-
fræðingur, Gestur Guðjónsson um-
hverfisverkfræðingur og Hrafn Gunn-
laugsson kvikmyndagerðarmaður
verða gestir á málþingi um skipulag
byggða á Íslandi, sem ungir framsókn-
armenn halda í kosningamiðstöð
sinni í Reykjavík, Laugavegi 3.
20.00 Prófessor Ivy Blackburn,
sálfræðingur frá Newcastle í Bretlandi,
heldur fyrirlestur um þunglyndi á veg-
um Félags um hugræna atferlismeðferð.
Hún mun leitast við að svara því hvort
hugræn meðferð geti hjálpað í barátt-
unni við þunglyndið. Fyrirlesturinn verð-
ur haldinn í sal Fræðslumiðstöðvar
Reykjavíkur, Fríkirkjuvegi 1.
■ ■ KVIKMYNDIR
19.00 Opna Bíóið verður haldið í
húsakynnum MÍR við Vatnstíg 10a í
þrettánda sinn, þar sem kvikmyndagerð-
armönnum gefst tækifæri til að sýna
stuttmyndir sínar og ræða þær við
áhorfendur. Að þessu sinni byrjar hátíð-
in með því að sýnd verður hin sígilda
mynd King Kong frá 1933 með Fay
Wray í aðalhlutverki.
■ ■ TÓNLIST
20.30 Kvennakór Suðurnesja
heldur vortónleika í Ytri-Njarðvíkur-
kirkju. Kvennakór Suðurnesja er elsti
starfandi kvennakór landsins. Stjórnandi
er Krisztina Kalló Szklenárné. Geir-
þrúður Fanney Bogadóttir leikur á
píanó og Sigrún Ósk Ingadóttir syngur
einsöng.
Kór Kirkjutónlistarháskólans í Her-
ford í Þýskalandi heldur tónleika í Skál-
holtskirkju ásamt sópransöngkonunni
Jutta Potthoff og orgelleikaranum Rolf
Schönstedt undir stjórn Hildebrands
Haake. Efnisskráin spannar fjórar aldir
frá Monteverdi til Sandströms.
■ ■ SÝNINGAR
Ríkharður Valtingojer og Helgi
Snær Sigurðsson halda sýningu, sem
þeir nefna Tvíraddað, í sýningarsal fé-
lagsins Íslensk grafík í Hafnarhúsinu.
Sýningin stendur til 25. maí.
Sigrid Valtingojer og Kunito
Nagaoka sýna verk sín í Listasafni
ASÍ við Freyjugötu.
Í Gerðarsafni í Kópavogi stendur
yfir yfirlitssýning á verkum Gerðar
Helgadóttur.
Í Listasafni Íslands stendur yfir
yfirlitssýning á verkum Georgs
Guðna. Einnig er í safninu sýning á
landslagsmálverkum Ásgríms Jóns-
sonar og vídeóinnsetning eftir Steinu
Vasulka.
Guðrún Hrönn Ragnarsdóttir og
Pétur Magnússon eru með sýningu í
Gallerí Skugga þar sem gefur að líta
100% nælon og lakk. Einnig vínylvegg-
fóður með blómamótífum, ljósmyndum
af þeim ásamt öðrum ljósmyndum og
stáli.
Helgi Þorgils Friðjónsson er með
einkasýningu á Kjarvalsstöðum. Hann
sýnir þar eingöngu ný málverk. Á sama
stað sýnir Ilmur Stefánsdóttir umbreytt
farartæki, vídeómyndir og örsögur.
Einnig er í safninu yfirlitssýning á verk-
um Jóhannesar Kjarval.
Í Kúlunni í Ásmundarsafni við
Sigtún er innsetning Eyglóar Harðar-
dóttur. Í safninu stendur einnig yfir sýn-
ingin Listin meðal fólksins, þar sem
listferill Ásmundar Sveinssonar er sett-
ur í samhengi við veruleika þess samfé-
lags sem hann bjó og starfaði í.
Í Hallgrímskirkju stendur yfir
sýning á listvefnaði eftir Þorbjörgu
Þórðardóttur. Verkin eru unnin í ull,
hör, sísal og hrosshár. Hugmyndir að
verkum sínum sækir Þorbjörg til ís-
lenskrar náttúru og vinnur úr þeim á
óhlutbundinn hátt. Sýningin er opin
daglega kl 9-17 og lýkur 26. maí.
Í Borgarskjalasafni Reykjavíkur,
Tryggvagötu 15, stendur yfir sýning á
kosningaáróðri frá árunum 1880 til
1999. Á henni má fræðast um hvernig
baráttumál flokkana fyrir Alþingiskosn-
ingar í Reykjavík hafa breyst í gegnum
tíðina.
Egill Örn Egilsson sýnir ljósmyndir í
galleríinu Tukt í Hinu húsinu við Póst-
hússtræti. Heiti sýningarinnar er Til allra
englabarna og hún stendur til 10. maí.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki
síðar en sólarhring fyrir birtingu.
6. maí 2003 ÞRIÐJUDAGUR
hvað?hvar?hvenær?
MAÍ
Þriðjudagur
Tilefnið er náttúrlega kosning-arnar. Okkur þykir lítið bera á
umræðu hér um lýðræði og um
það hvernig íslensk stjórnvöld
og stjórnsýsla umgangast
lýðræðislegar reglur
við ákvarðana-
töku,“ segir Hans
Kristján Árnason
hagfræðingur.
Hann verður
fundarstjóri á
m á l þ i n g i
með fram-
bjóðendum
stjórnmála-
f l o k k a n n a
um stöðu
l ý ð r æ ð i s
hér á landi,
sem haldið
verður á
Hótel Borg í
dag.
„Auðvitað
ætti sjálft lýð-
ræðisferlið ekki
að vera neitt sem
þarf að deila um.
Þetta ætti að vera
bara eins og í
fó tbo l tan -
um, þar
s e m
það
■ MÁLNING
Ætti að vera eins
og í fótboltanum
Georg Guðni erí þvílíku upp-
áhaldi hjá mér,“
segir Steinunn
Jóhannesdóttir
rithöfundur, sem
var yfir sig hrifin
af yfirlitssýningu listamannsins.
„Það er reyndar mjög erfitt að
skoða svona stórar sýningar þeg-
ar allt er fullt af fólki. Það er svo
mikil kyrrð í þessum myndum að
þær þurfa svolitla fjarlægð og
það er betra að skoða þær í fá-
menni. Georg Guðni er einstakur
málari og þar sem himinn og jörð
mætast hjá honum nær hann oft
trúarlegri dýpt eða einhverju
mjög, mjög sterku.“
Mittmat
3 4 5 6 7 8 9
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M