Fréttablaðið - 06.05.2003, Qupperneq 30
30 6. maí 2003 ÞRIÐJUDAGUR
Helgi Gunnlaugsson stundaðiframhaldsnám í afbrotafræði
í Bandaríkjunum eftir félags-
fræðinám við Háskóla Íslands.
„Ég hafði upphaflega áhuga á að
fara í framhaldsnám í heilsu-
félagsfræði, en síðan smám sam-
an kviknaði áhuginn á afbrota-
fræðinni.“ Hann segist hafa
kynnst afbrotafræðingi við há-
skólann. „Hann hafði mikinn
áhuga á þessu skrýtna bjórbanni
okkar Íslendinga. Maður kemur
frá Íslandi og er alltaf að segja
deili á sér og þannig ræddi maður
að bjór væri bannaður á Íslandi.
Þetta barst til eyrna þessa af-
brotafræðings. Hann kom storm-
andi til mín og hvatti mig til að
skrifa meistaraprófsritgerð um
bjórbannið.“ Það varð úr og af-
brotafræðin varð fyrir valinu.
Helgi tekur strætó í vinnuna á
veturna, en hjólar á sumrin.
„Maður þarf ekki að fara á dýrar
líkamsræktarstöðvar þegar mað-
ur hjólar í og úr vinnu.“ Hann er
um það bil korter í vinnuna. „Það
er líka gaman að taka strætó. Þar
er ekki beinlínis þversnið af þjóð-
inni. Yngsta fólkið og það elsta og
svo svona kverúlantar á miðjum
aldri eins og ég,“ segir hann og
hlær.
Helgi er mikill íþróttaáhuga-
maður. Virkur í starfi Þróttar, þar
sem sonur hans keppir. „Strákur-
inn er á fullu í fótboltanum.“
Hann lék sjálfur knattspyrnu
með Þrótti og KR og heldur með
báðum liðum. „Maður veit ekki
fyrr en á reynir í sumar með
hvorum maður mun halda. Síðast
þegar liðin voru bæði í efstu deild
hélt ég með KR, sem barðist um
Íslandsmeistaratitilinn. Þá vonaði
ég að Þróttur tæki stig af öllum
nema KR.“
Önnur áhugamál eru lestur og
ferðalög. „Við ætlum til Ítalíu í
sumar fjölskyldan og dvelja við
Gardavatnið.“ Hann segir það
lengi hafa verið á stefnuskránni
að fara til Ítalíu. Undirbúningur-
inn er hafinn. „Ég er farinn að
lesa mér til um svæðið. Það er
hluti af ánægjunni.“ ■
Persónan
HELGI GUNNLAUGSSON,
■ prófessor í félagfræði við HÍ tekur
strætó eða hjólar í vinnuna. Hjartað slær
bæði með Þrótti og KR og hann býst við
togstreitu í sumar. Hann býr á Teigunum
ásamt konu og tveimur börnum.
Bjórbannið réði námsvalinu
Gesturinn eftir Eric-Emmanuel Schmitt hlauteinróma lof gagnrýnenda
og áhorfenda þegar verkið var
frumsýnt fyrir rúmu ári. Í verk-
inu fer Gunnar Eyjólfsson með
hlutverk sálkönnuðarins fræga
Sigmund Freud. „Leikritið fjallar
fyrst og fremst um mann sem
heldur sig hafa alla vitneskju, en
lendir svo í tilfinningalegu öng-
stræti. Þá riðlast öryggi hans,“
segir Gunnar. „Hann verður bara
mannlegur, en ekki ofurmannleg-
ur.“ Gunnar segir að verkið sé
snilldarlega skrifað. „Þarna kem-
ur ungur maður til hans á örlaga-
ríkri nóttu sem hann getur ekki
áttað sig á. Þessi mikli sálkönnuð-
ur sem gat sálgreint alla og kom-
ist að því hverjir þeir voru.“
Nóttin örlagaríka er raunveru-
leg, því 22. apríl tóku nasistar
dóttur Sigmund Freud, Önnu,
fasta. „Þar með hrundi þessi
sterki maður. Hann stendur einn
gagnvart einhverju afli sem hann
ekki ræður við.“ Á móti Gunnari í
sýningunni leika Ingvar E. Sig-
urðsson, Jóna Guðrún Jónsdóttir
og Kristján Franklín Magnús.
„Við höfum öll orðið fyrir miklum
áhrifum af verkinu. Ég finn það á
því hvernig við tökumst á við
það.“
Ingvar E. Sigurðsson leikur
gestinn og hefur samleikur þeirra
Gunnars hlotið mikið lof. „Við
vorum að fara yfir textann. Ingv-
ar er að fara út. Það á að prófa
hann í kvikmynd. Það er svo
furðulegt. Hvað eftir annað höfð-
um við einhverju að bæta við túlk-
unina. Þetta er texti sem maður
verður aldrei þreyttur á.“
Gunnar fór á eftirlaun þegar
hann varð sjötugur. Hann hefur
haft í nógu að snúast. Fellur undir
þann flokk fólks sem hefur aldrei
haft meira að gera. „Ég var að
leika í Rakstri og svo er ég að
byrja að æfa í nýju verki eftir
Ólaf Hauk Símonarson sem á að
sýna í Þjóðleikhúsinu í haust. Ég
þakka fyrir þá orku sem ég hef.
Leiksviðið er gífurlega krefjandi
og þetta gengur ekki upp nema
maður hafi eitthvað að gefa.“
Leikstjóri sýningarinnar er Þór
Tuliníus. Aukasýningarnar tvær
verða í Borgarleikhúsinu 11. maí
og 18. maí.
haflidi@frettabladid.is
HELGI GUNNLAUGSSON
Áhugi bandarísks prófessors á bjórbanni á
Íslandi réði því að afbrotafræðin varð fyrir
valinu.
Leikhús
Uppfærslan á Gestinum eftir Eric-Emmanu-
el Schmitt hlaut mikið lof. Vegna fjölda
áskorana hafa verið ákveðnar tvær auka-
sýningar á þessu frábæra verki.
MIKIÐ LOF
Gunnar Eyjólfsson túlkar Sigmund Freud í Gestinum. Hann segir verkið snilldarlega skrifað og leikhópurinn sé sífellt að læra eitthvað nýtt
við túlkun þess. Ingvar E. Sigurðsson leikur Gestinn.
Örlaganótt í lífi Freud
LAKKVÖRN
Á BÍLINN
Hyrjarhöfði 7, sími 567 8730