Fréttablaðið - 26.05.2003, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 26.05.2003, Blaðsíða 1
STRÍÐ Breska leyniþjónustan, MI5, kennir Íslendingnum Ib Árnason Riis um einn mesta skipskaða breska sjóhersins í seinni heims- styrjöldinni. Sumarið 1942 sökktu þýskir kafbátar 24 af 36 skipum sem voru á leið frá Hvalfirði til Múrmansk í Sovétríkjunum með hergögn fyrir Sovétmenn. Alls 153 menn létu líf- ið. Breska blaðið Sunday Times greindi frá því í gær að á fimmtu- daginn hefði Breska þjóðskjala- safnið gert opinber skjöl, þar sem skuldinni er skellt á Riis. Riis, sem nú er 88 ára og býr í bænum Pacifica í Kaliforníu, þvertekur hins vegar fyrir þetta í viðtali við breska blaðið. Forsaga málsins er sú að Þjóð- verjar settu sig í samband við Riis, sem er ættaður frá Ísafirði, þegar hann bjó í Kaupmannahöfn. Þar sem Riis var skipstjóri og loft- skeytamaður sáu Þjóðverjar sér leik á borði og sendu hann til Ís- lands til njósna undir dulnefninu Edda. Hann var sendur með kaf- báti á Langanes og þar komst hann við illan leik á sveitabæ í grennd- inni. Ásgeir Guðmundsson, sem ritað hefur ævisögu Riis, segir hann hafa lent í aftakaveðri og næstum orðið úti. Nokkrum dögum eftir komu sína til Íslands sagði Riis Bretum frá ástæðu komu sinnar. Þeir sendu hann til Bretlands í yfir- heyrslur og að þeim loknum fengu þeir hann til að vinna fyrir sig sem gagnnjósnara undir dulnefninu „Cobweb“. Eftir að Þjóðverjar réð- ust á Sovétmenn hófu Bretar og Bandaríkjamenn að senda Sovétmönnum hergögn. Siglinga- leiðin var um Norður-Atlantshaf til Múrmansk með viðkomu í Hval- firði. Auk þýskra kafbáta var helsta ógnin við skipalestir Banda- manna þýska orrustuskipið Tirpitz sem leyndist í Norður-Noregi. Í júní árið 1942 ákvað breski herinn að reyna að sökkva Tirpitz með því að tæla skipið nærri ströndum Íslands. Þar átti vel bú- inn sjóher Breta að ráðast á skipið. Bretar létu Riis senda Þjóðverjum, sem héldu að hann væri að vinna fyrir sig, dulkóðuð skeyti um að stór skipalest sem kölluð var PQ17 hefði lagt af stað frá Hvalfirði 27. júní áleiðis til Múrmansk. Ætlunin var að fá Tirpitz úr felum. Skipa- lestin átti síðan að hörfa í átt til Ís- lands, þar sem breski sjóherinn átti að granda Tirpitz. Tirpitz lagði af stað á móti skipalestinni en fljótlega komust Þjóðverjar einhvern veginn að því að ekki væri allt með felldu og sneru Tirpitz aftur til hafnar í Noregi. Þýskir kafbátar, sem gengu undir nafninu „Ís-djöflar“ króuðu hins vegar skipalestina af og sökktu 24 skipum. Samkvæmt skjölum breska þjóðskjalasafnsins, sem gerð voru opinber í síðustu viku, grun- aði breska leyniþjónustan Riis um að hafa lekið of miklum upp- lýsingum til Þjóðverja. Í skjölun- um stendur um Riis: „Hann er líklega ekki jafn mikill and-nas- isti og við.“ Í viðtali við Sunday Times sagði Riis: „Bretarnir geta ekki komið sökinni á mig. Ég hafði ekki hugmynd um það hvað var í þessum skeytum, því það var búið að dulkóða þau þegar ég fékk þau í hendurnar.“ trausti@frettabladid.is MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500 Tónlist 18 Leikhús 18 Myndlist 18 Bíó 20 Íþróttir 16 Sjónvarp 22 KVÖLDIÐ Í KVÖLD AFMÆLI Drekkur kakó FÓLK Kemur á óvart MÁNUDAGUR 26. maí 2003 – 119. tölublað – 3. árgangur bls. 6bls. 37 PERSÓNAN Kennari, bæjar- stjóri og lögmaður bls. 38 Alaskalúpína FUNDIR Þórunn Pétursdóttir, land- fræðingur og meistaranemi við Landbúnaðarháskólann á Hvann- eyri, flytur erindi sem hún nefnir „Útbreiðsla Alaskalúpínu í Þjóð- garðinum í Skaftafelli“. Um síðasta fræðsluerindi HÍN er að ræða og verður það í stofu 101, Lögbergi, Háskóla Íslands klukkan 20:30. Setning Alþingis ALÞINGI Setning Alþingis fer fram í dag. Þingsetningarathöfnin hefst klukkan 13:30 með guðsþjónustu í Dómkirkjunni. Að guðsþjónustu lokinni ganga forseti Íslands, bisk- up Íslands, þingmenn og aðrir gest- ir til þinghússins þar sem forseti Íslands setur þingið. Söngvaseiður LEIKHÚS Söngvaseiður eftir þá Rich- ard Rodgers og Oscar Hammer- stein er sýndur í Þjóðleikhúsinu. Það eru Litli leikklúbburinn og Tónlistarskóli Ísafjarðar sem setja sýninguna upp í leikstjórn Þórhild- ar Þorleifsdóttur og hefst sýningin klukkan 20:00. 2. umferð lýkur FÓTBOLTI Fylkir tekur á móti Grinda- vík klukkan 19:15 á Fylkisvelli í lokaleik annarrar umferðar Ís- landsmeistaramótsins í fótbolta. STA Ð R EY N D UM MEST LESNA DAGBLAÐIÐ Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup í mars/apríl 2003 22,1% 52,3% 61,7% FR ÉT TA B LA Ð IÐ M O R G U N B LA Ð IÐ D V STJÓRNMÁL Ný ríkisstjórn Sjálfstæð- isflokks og Framsóknarflokks nýtur stuðnings 48,2% aðspurðra í skoð- anakönnun sem Fréttablaðið gerði í gær. 40,9% sögðust andvíg ríkis- stjórninni og 11,0% sögðust óákveð- in. Ef þeir sem voru óákveðnir eru frátaldir nýtur ríkisstjórnin fylgis 54,1% svarenda en 45,9% sögðust andvíg stjórninni. „Þetta er í samræmi við það sem kom út úr kosningunum, ívið meira þó, þannig að þetta grípur mig vel. Ég trúi því reyndar að á næstu mán- uðum muni ríkisstjórnin fara upp í 65% fylgi. Þetta er góð byrjun,“ seg- ir Guðni Ágústsson, landbúnaðar- ráðherra og varaformaður Fram- sóknarflokksins. Baldur Þórhallsson, stjórnmála- fræðingur og dósent í Háskóla Ís- lands, segir niðurstöðuna endur- spegla að kjósendur ríkisstjórnar- flokkanna tveggja hafi í raun verið að kjósa óbreytta stjórn í nýafstöðn- um kosningum. „Það mátti alveg túlka það sem fulltrúar þessara flokka sögðu fyrir kosningarar þannig að þeir myndu starfa áfram næðu þeir til þess meirihluta. Þeir sem kusu þessa flokka eru ánægðir með að sam- starfið haldi áfram og vildu ekki að þeir mynduðu stjórn með öðrum flokkum,“ segir Baldur. Ríkisstjórnin nýtur meiri stuðn- ings á landsbyggðinni en í þéttbýli. Af þeim sem taka afstöðu sagðist 58,1% íbúa á landsbyggðinni fylgj- andi stjórninni en 41,9% voru á móti. Í þéttbýli sögðust 52,0% fylgj- andi stjórninni en 48,0% á móti. Þá hefur ríkisstjórnin heldur meira fylgi meðal karla en kvenna. Af körlum sögðust 55,2% styðja stjórnina en 52,9% kvenna sögðust gera slíkt hið sama. ■ Afstaða til nýrrar ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks: Meirihluti fylgjandi stjórninni REYKJAVÍK Vestan 3-8 m/s og stöku skúrir. Hiti 7 til 11 stig. VEÐRIÐ Í DAG + + VINDUR ÚRKOMA HITI Ísafjörður 5-10 Hálfskýjað 9 Akureyri 3-8 Skýjað 10 Egilsstaðir 3-8 Skýjað 9 Vestmannaeyjar 3-8 Hálfskýjað 10 ➜ ➜ ➜ ➜ + + IB ÁRNASON RIIS Riis í einkennisbúningi annars stýrimanns á þýsku kaupfari. BÚSETTUR Í BANDARÍKJUNUM Riis býr nú í Kaliforníu. AÐMÍRÁLSHÚSIÐ TJARNARGÖTU 22 Ib Árnason Riise sendi skeytin úr háaloft- inu í hús breska aðmíralsins. Skipskaði rakinn til íslensks njósnara Breska þjóðskjalasafnið hefur gert opinber skjöl um einn mesta skipskaða Breta í seinni heims- styrjöldinni. Íslendingurinn Ib Árnason Riis var gagnnjósnari fyrir Breta. Hann er sagður hafa lekið of miklum upplýsingum til nasista. Riis þvertekur fyrir það.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.