Fréttablaðið - 26.05.2003, Blaðsíða 21
MÁNUDAGUR 26. maí 2003 21
SÍMI 553 2075
Sýnd kl. 5.30, 8, og 10.15 b.i. 16 SKÓGARLÍF 2 m/ísl tali kl. 6
Sýnd kl. 6 og 9
Sýnd kl. 6, 8 og 10 b.i. 12 ára
Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.20
JUST MARRIED kl. 8 og 10.10
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.15 bi 14. ára
XMEN 2
X- MEN 2 kl. 5.30, 8 og 10.30 bi 12
Sýnd kl. 6, 8 og 10
Sýnd kl. 6, 8 og 10
BOWLING FOR... kl. 3 og 5.40
TÓNLIST Sá stóratburður mun eiga
sér stað í febrúar og mars á næsta
ári að strandarpilturinn Brian Wil-
son ætlar í tónleikaferð um Bret-
land þar sem hann mun flytja hið
týnda meistarastykki The Beach
Boys „Smile“ í heild sinni. Platan
var aldrei gefin út en ólöglegar út-
gáfur af plötunni hafa gengið
manna á milli. Wilson vann að plöt-
unni svo mánuðum skipti fyrir 35
árum síðan og tók m.a. upp á ýms-
um undarlegum vinnuaðferðum,
svo sem að láta hljóðfæraleikara
bera brunahjálma við upptökur
eins lagsins.
„Smile“ átti að fylgja vinsæld-
um „Pet Sounds“ eftir og slá út
Bítlana, sem gáfu út „Revolver“
skömmu áður, í gæðum. Sagan seg-
ir að segulböndin hafi verið lokuð
inni í bankageymslu og aðeins hluti
af þeim hefur komist til eyrna al-
mennings.
„Smile“-tónleikar Wilsons í
Bretlandi verða níu talsins. Fjórir
tónleikar í London Festival Hall
dagana 20.-24. febrúar. Næst verð-
ur hann í Bristol Colston Hall 2.
mars, Glasgow Clyde Auditorium
4. mars, Newcastle City Hall 6.
mars, Liverpool Empire 7. mars og
Birmingham Symphony Hall 8.
mars. ■
Leikarahjónin Brad Pitt og Jenni-fer Aniston hafa ákveðið að
gera kvikmynd eftir ævintýrabók
Roald Dahl, „Charlie and the
Chocolate
Factory“.
Hjónin ætla að
framleiða
myndina en
ekki er vitað
hvort þau taki
að sér hlut-
verk í mynd-
inni. Það eru svo varla minni tíð-
indi að leikstjórinn Tim Burton
hefur tekið verkefnið að sér. Hann
hefur lengi langað til þess að kvik-
mynda bókina.
Gamli rámur, Rod Stewart, hefurloksins sótt um skilnað frá fyr-
irsætunni Rachel Hunter en þau
hafa ekki verið saman í rúmt ár.
Stewart hefur verið með aðra fyr-
irsætu upp á arminn. Sú heitir
Penny Lancaster en þau ætla ekk-
ert að flýta sér upp að altarinu.
Breska rokksveitin Suede hefurákveðið að setja almennilega í
rokkgírinn fyrir næstu plötu. Sam-
kvæmt Brett Anderson söngvara
verður næsta plata sveitarinnar
mun þyngri og rokkaðri en sú síð-
asta. Suede gaf í fyrra út hina
mislukkuðu „A New Morning“ og
hefur verið í tilvistarkreppu síðan.
Áður en við getum átt von á nýrri
breiðskífu ætlar sveitin að gefa út
safnplötu sem inniheldur vinsæl-
ustu lög hennar.
Shania Twain,Beyoncé
Knowles og Whitn-
ey Houston tóku
allar lagið með
Stevie Wonder á
hinum árlegu „Divas“ tónleikum
sjónvarpsstöðvarinnar VH1. Að
þessu sinni voru tónleikarnir haldn-
ir í Las Vegas og komu Celine Dion,
Mary J Blige, Chaka Khan og Ash-
anti einnig fram. Þættinum verður
sjónvarpað þann 29. maí.
Brian Wilson:
Flytur „Smile“
á tónleikum
SMILE
Platan var nánast tilbúin þegar skyndilega
var hætt við útgáfuna. Svona átti plötukáp-
an að líta út.
THE BEACH BOYS
Á þeim tíma er Brian Wilson
vann að „Smile“ hafði sveitin í
raun skipst í tvo hluta; Brian,
sem samdi og vann lögin í
hljóðveri, og hina sem ferðuð-
ust um og léku á tónleikum.