Fréttablaðið - 26.05.2003, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 26.05.2003, Blaðsíða 14
26. maí 2003 MÁNUDAGUR Söluskrifstofan er á Suðurlandsbraut 24 Opið alla virka daga 9-17. Þjónustuverið er opið virka daga 9-17, laugardaga 10-16 og sunnudaga 11-15, sími 5 500 600. Þú getur einnig skoðað og bókað á IcelandExpress.is. Lág fargjöld. Enginn bókunarfyrirvari. Engin lágmarksdvöl og engin hámarksdvöl. Söluskrifstofa Suðurlandsbraut 24, opið 9-17 virka daga I Sími 5 500 600 I www.IcelandExpress.is M Á T T U R IN N & D Ý R Ð IN Nærri 20 milljónir flóttamanna Einn af hverjum 300 jarðarbúum er flóttamaður. Flóttafólk fyrirfinnst í öllum löndum í öllum heimsálfum. En hvaða fólk er flóttamenn og hvaða framtíð á það? BBC/UNHRC Flóttafólk er það fólk sem flýr heimaland sitt vegna of- sókna af einhverju tagi og getur ekki snúið heim aftur fyrr en að- stæður breytast. Veröld flótta- fólks er ólík því sem við þekkjum hér á Íslandi. Það hefur ekki aðgang að því sem okkur finnst sjálfsagt; vatni, rafmagni, hita, mat og húsaskjóli. Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna telur að um það bil 20 milljónir flóttamanna séu í heiminum í dag. Þá er ekki talið allt það fólk sem yfirgefur land sitt fyrir grænni haga í vest- rænum heimi og lendir gjarna í klóm illvígra smyglara. Þá er heldur ekki talið allt það fólk sem hefur flúið heimili sín vegna ofsókna en hefur ekki yfirgefið land sitt. Ástæður þess að fólk verður að flýja heimalandið eru margvísleg- ar. Deilur um trúarbrögð, ætt- bálkaerjur eða borgarastyrjaldir eru þar efst á blaði. Oft á tíðum upplifir flóttafólk það versta sem finnst í mannlegu eðli, mannhatur og þvílíka reiði að vinir og ná- grannar til margra ára geta lent í átökum sem enda í hryllilegu blóðbaði. „Ég á enga framtíð og heldur ekki fortíð,“ segir Yolande Mukagasana, sem flýði frá Rú- anda. „Ég á engan mann lengur, engin börn lengur, ekkert þak yfir höfuðið. Ég var allt í einu komin neðst í þjóðfélagsstigann; flóttamaður.“ Mukagasana horfði upp á morðin á börnum sínum þrem og eiginmanni og átti fótum sínum fjör að launa. „Pabba var saknað í langan ■ „Fyrirgefið mér fyrir að verja ykkur ekki fyrir sveðjunum.“ FLÓTTAMENN Í PAKISTAN Fjórir af 2,1 milljón flóttamanna í landinu.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.