Fréttablaðið - 26.05.2003, Blaðsíða 9

Fréttablaðið - 26.05.2003, Blaðsíða 9
9MÁNUDAGUR 26. maí 2003 Morten Schmidt, arkitekt frá dönsku arkitektastofunni Schmidt, Hammer & Lassen, og Ögmundur Skarphéðinsson, arkitekt hjá Hornsteinum, lýsa byggingunum og sam- eiginlegu svæði íbúanna. Líkön af byggingunum, myndir og teikningar á staðnum. Nýr lífsstíll á besta stað í miðborginni 101 Skuggahverfi er þyrping íbúðabygginga af ýmsum stærðum sem rís á einum fegursta útsýnisstað í borginni á reit sem markast af Skúla götu, Frakkastíg og Lindargötu. Framkvæmdir eru þegar hafnar og fyrstu íbúðirnar verða afhentar í september 2004. Í boði eru íbúðir frá 54m2 og að 270m2 „penthouse-íbúð“. Kynningarfundur í Listasafni Íslands v i ð f r í k i r k j u v e g í dag 26. maí kl. 17.30 101 Skuggahverfi hf. Kringlunni, 3. hæð Sími 575-9000 Netfang: 101skuggi@101skuggi.is Vefsetur: www.101skuggi.is Síðumúla 21 Sími 588-9090 Fax 588-9095 Netfang: 101skuggi@eignamidlun.is Vefsetur: www.eignamidlun.is Suðurlandsbraut 52 Sími 530-1500 Fax 530-1501 Netfang: 101skuggi@husakaup.is Vefsetur: www.husakaup.is G l æ s i l e g a r í b ú ð i r í h j a r t a R e y k j a v í k u r m e ð ú t s ý n i t i l a l l r a á t t a ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N E H F. /S IA .I S - SK U 2 07 60 05 /2 00 3 S a l a á í b ú ð u n u m e r h a f i n Óvenju bjartar íbúðir Hátt til lofts, 2,70 m Góð hljóðeinangrun Hátækni samskipta- lausn í samvinnu við Nýherja Lögreglan: Færri um- ferðaróhöpp LÖGREGLUMÁL Færri umferðar- óhöpp urðu á síðasta ári í um- dæmi lögreglunnar í Hafnar- firði, Kópavogi og Bessastaða- hreppi en árið 2001. Fækkaði þeim úr 245 í 221. Lögregluemb- ættin settu sér það markmið í ársbyrjun 2003 að fækka um- ferðaróhöppum í umdæminu. Þá hefur sérstakri athygli verið beint að hraðakstri og akstri á móti rauðu ljósi. Kær- um vegna hraðaksturs hefur fjölgað úr 313 árið 2002 í 928 á þessu ári eða um 196%. Þá fjölg- aði kærum vegna aksturs á móti rauðu ljósi úr 45 í 72. ■ NÝR RÁÐUNEYTISSTJÓRI Ragn- hildur Hjaltadóttir hefur verið skipuð ráðuneytisstjóri sam- gönguráðuneytis frá og með mán- aðamótum. Ragnhildur hefur starfað í stjórnarráðinu frá 1982 og verið skrifstofustjóri í sam- gönguráðuneytinu síðustu fimmt- án ár. HONG KONG EKKI HÆTTUSVÆÐI Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hef- ur tekið Hong Kong og Guang- dong-hérað í Kína út af lista sín- um yfir lönd sem ferðamönnum er ráðlagt að forðast. Að mati stofnunarinnar hefur tekist að hefta útbreiðslu sjúkdómsins á þessum svæðum. Enn er þó varað við ferðalögum til Peking, hérað- anna Hebei, Innri-Mongólíu, Shanxi og Tianjin í Kína auk Taívan. VEIRAN UPPRUNNIN Í ÞEFKÖTT- UM Vísindamenn í Háskólanum í Hong Kong telja að kórónaveiran sem veldur bráðalungnabólgu hafi borist í menn úr þefköttum, smávöxnum kjötætum sem ferð- ast að næturlagi. Þefkettir þykja mesta lostæti og eru vinsæl fæða sums staðar í Kína. Ekki er hægt að útloka að veiran hafi borist í þefketti úr öðrum dýrum. NÝ TILFELLI Í KANADA Óttast er að fjórir sjúklingar sem lagðir voru inn á sjúkrahús í Toronto séu smitaðir af bráðalungna- bólgu. Sjúklingarnir hafa allir verið settir í einangrun. Ekki hafa komið upp ný tilfelli HABL í Kanada síðan 19. apríl síðastlið- inn. YFIR 670 LÁTNIR OG 8.000 SMIT- AÐIR Yfir 8.000 manns hafa veikst af bráðalungnabólgu um heim allan. Tala látinna er komin upp í að minnsta kosti 670. Enn hefur enginn látist utan Asíu og Toronto í Kanada. ■ Bráðalungnabólga ■ Stjórnvöld MÓTMÆLT Á SPÁNI Þögul mót- mæli fóru fram á kjörstað í borg- inni San Sebastian í Baskahéruð- unum á Spáni. Verið var að mót- mæla úrskurði Hæstaréttar Spánar um að Sjálfstæði Baska- flokkurinn mætti ekki taka þátt í sveitarstjórnarkosningum vegna tengsla sinna við ETA-samtökin, sem staðið hafa fyrir hryðjuverk- um í landinu. SIGLINGAKEPPNI Í FENEYJUM Litskrúðugir bátar tóku þátt í „Vogalonga“-siglingakeppninni í Feneyjum um helgina. Keppnin á rætur sínar að rekja aftur til árs- ins 1974 þegar hópur manna skipulagði keppni árabáta til að mótmæla fjölgun vélknúinna báta í Feneyjum. AFGANAR Í BÍÓ Lífið í Kabúl, höf- uðborg Afganistans, er smám saman að færast eðlilegt horf. Bíóhús hafa nú opnað aftur og njóta indverskar „Bollywood“- myndir mikillar hylli heima- manna. ■ Erlent

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.