Fréttablaðið - 26.05.2003, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 26.05.2003, Blaðsíða 17
FÓTBOLTI Ásgeir Sigurvinsson hef- ur tilkynnt 18 manna hóp leik- manna fyrir leikina gegn Færeyj- um og Litháen í næsta mánuði. Flestir leikmanna hópsins hafa tekið þátt síðustu leikjum. Hins vegar verður ekkert af endur- komu Eyjólfs Sverrissonar í þess- ari lotu því hann meiddist í vik- unni. Guðni Bergsson, Helgi Sig- urðsson og Tryggvi Guðmundsson koma inn í hópinn að nýju. Guðni og Tryggvi léku gegn Skotum í lok mars en Helgi lék síðast með landsliðinu gegn Eistlandi í nóv- ember á síðasta ári. Þórður Guðjónsson, sem varð að yfirgefa hópinn daginn fyrir leikinn gegn Finnum, er heill heilsu og verður í hópnum sem leikur gegn Færeyingum og Lit- háum. Gylfi Einarsson, Veigar Páll Gunnarsson og Ólafur Stígs- son, staðgengill Guðna í leiknum gegn Finnum, verða ekki með og Heiðar Helguson er enn meiddur. Ísland er í fjórða sæti riðilsins með þrjú stig og eru leikirnir gegn Færeyingum og Litháum mjög mikilvægir í baráttunni um sæti ofar á töflunni. MÁNUDAGUR 26. maí 2003                  !!  "#" $ %  & %  ( ) * ! +%   ) * ,   * % % !   %  ( %, ! +  -'  % %"  ./* !  0&10234 51036  5$7 183  9:;38<0  * +" +  =>? @' A %  Mánudaga til Föstudaga Laugardaga kl: 12:00 til 16:00 Opnunartími í sumar: Sími: 514-4407 kl: 13:00 til 18:00 Þýska knattspyrnan: Stuttgart í Meistaradeildina A-landslið karla: Fyrsti hópur Ásgeirs FÓTBOLTI Keppni í efstu deild þýsku knattspyrnunnar lauk á laugardag. Bayern München er fyrir löngu orðið meistari en bar- áttan á laugardag stóð um sæti í Evrópukeppni og sæti í efstu deild á næsta ári. Stuttgart hafði betur í bar- áttunni við Dortmund um annað sæti deildarinnar og þar með sæti í riðlakeppni Meistaradeildarinn- ar næsta vetur. Dortmund náði að- eins jafntefli gegn botnliði Energie Cottbus en Stuttgart vann Wolfsburg 2:0 á heimavelli. Kevin Kuranyi og Krassimir Balakov skoruðu fyrir Stuttgart en Búlgar- inn Balakov lék sinn síðasta leik í þýsku deildinni. Dortmund tekur þátt í undankeppni Meistaradeild- arinnar. Ferli Eyjólfs Sverrissonar í Þýskalandi lauk einnig á laugar- dag. Eyjólfur lék ekki með Herthu á laugardag en félagið náði sæti í UEFA-bikarkeppn- inni þökk sé 2:0 sigri á Kaiserslautern og 4:1 tapi Werder Bremen í Mönchenglad- bach. Hamburger SV náði líka sæti í UEFA-bikarnum. Bayer Leverkusen vann Nürn- berg 1:0 á útivelli og hélt sæti sínu í deildinni en Arminia Bielefeld fylgir Nürnberg og Cottbus niður í 2. deild. ■ ÁSGEIR SIGURVINSSON Ásgeir hefur tilkynnt hópinn sem leikur gegn Færeyingum og Litháum í næsta mánuði. 1. UMFERÐ Fram 0:0 Valur Fram 0:0 Valur Fram 0:0 Valur Fram 0:0 Valur Fram 0:0 Valur KARLAR Leikmenn landsleikir mörk Birkir Kristinsson 73 0 Árni Gautur Arason 27 0 Rúnar Kristinsson 98 3 Guðni Bergsson 78 1 Arnar Grétarsson 59 2 Hermann Hreiðarsson 47 2 Helgi Sigurðsson 48 9 Þórður Guðjónsson 44 11 Lárus Orri Sigurðsson 39 2 Brynjar Björn Gunnarsson 36 3 Arnar Gunnlaugsson 32 3 Tryggvi Guðmundsson 30 8 Arnar Þór Viðarsson 24 0 Eiður Smári Guðjohnsen 22 7 Marel Baldvinsson 11 0 Ívar Ingimarsson 11 0 Jóhannes Karl Guðjónsson 11 1 Indriði Sigurðsson 8 0 LANDSLIÐ KARLA FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T STUTTGART Kevin Kuranyi og Alexander Hleb, leik- menn Stuttgart, fagna marki Kuranyi gegn Wolfburg. Hringdu í síma 907 2020. Þitt framlag getur bjargað mannslífum. ZOLA SEMUR Talið er líklegt að Gianfranco Zola muni endurnýja samning sinn við Chelsea. Zola, sem verður 37 ára í júlí, var markahæstur leikmanna Chelsea í vetur með 14 mörk í 38 deildar- leikjum. ■ Fótbolti

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.