Fréttablaðið - 26.05.2003, Blaðsíða 2
2 26. maí 2003 MÁNUDAGUR
Ég held að það verði mjög skemmtilegt,
eins og alltaf. Ég held að það sé ekki
verra að menntamálaráðherra sé með
börn á skólaaldri. Þetta verða skemmti-
legir fundir og eflaust ánægjulegir. Fái
maður á baukinn verður bara að hafa
það.“
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir tekur við embætti
menntamálaráðherra um áramót. Hún á tvo
syni, þriggja og átta ára, og á að auki von á
þriðja barni sínu.
Spurningdagsins
Hvernig verður að mæta
á foreldrafundi?
■ LögreglumálReiðir íbúar jarðskjálftasvæðanna í Alsír:
Stjórnmálamenn eru
morðingjar
JARÐSKJÁLFTAR Tala látinna eftir
jarðskjálftann í Alsír er nú kom-
in yfir 2.000, og enn eru margir
ófundnir í rústunum. Óttast er
að um það bil 3.000 manns hafi
látið lífið, en tæplega 9.000
manns eru illa slasaðir.
Mikil reiði hefur gripið um
sig meðal alsírsks almennings
sem gagnrýnir stjórn landsins
harðlega fyrir léleg viðbrögð.
Forseti landsins, Abdelaziz Bou-
teflika, heimsótti jarðskjálfta-
svæðið á laugardag, en öskureið-
ir íbúar hreyttu í hann ónotum
og hrópuðu að honum slagorðið
Pouvoir assassin, eða „Stjórn-
málamenn eru morðingjar“.
Ekkert bráðabirgðahúsnæði
hefur verið tekið í notkun og
fjöldi manna hefst við undir
beru lofti. Mikill skortur er á
vatni, mat og hjálpargögnum og
alþjóðlegar björgunarsveitir
búa sig nú til brottfarar.
Málsvari bresku björgunar-
sveitarinnar, Mike Penrose,
sagði nánast engar líkur á að
finna fleiri á lífi. „Við viljum
ekki stofna okkar eigin fólki í
meiri hættu með því að senda
það áfram inn í rústirnar. Þetta
er bara búið,“ sagði hann. ■
Gjaldkerinn
játar fjárdrátt
Aðalgjaldkeri Landssímans hefur játað stórfelldan fjárdrátt og vill að-
stoða við lausn málsins. Meintir samverkamenn neita sök. Landssíminn
segir skýringar þeirra um lántöku ekki standast.
LÖGREGLUMÁL Sveinbjörn Krist-
jánsson, aðalgjaldkeri Landssíma
Íslands, hefur játað stórfelldan
fjárdrátt frá fyrirtækinu.
Gjaldkerinn mun hafa verið
samvinnufús frá því málið komst
upp. Með þeim
hætti getur hann
haft áhrif á hugs-
anlega refsingu.
Sveinbjörn hef-
ur þó kært til
Hæstaréttar úr-
skurð héraðsdóms
um tveggja vikna
g æ s l u v a r ð h a l d .
Það sama gildir um meinta sam-
verkamenn Sveinbjörns, athafna-
mennina Árna Þór Vigfússon og
Kristján Ragnar Kristjánsson,
sem voru úrskurðaðir í tíu daga
varðhald. Kristján Ragnar og
Sveinbjörn eru bræður.
Eigur mannanna hafa verið
kyrrsettar. Þeir eru allir vistaðir á
Litla-Hrauni. Fastlega er búist við
að Hæstiréttur fjalli um kæru
þeirra vegna varðhaldsins í dag.
Árni Þór og Kristján Ragnar
neita allri sök. Þeir segja að 130
milljónir króna sem á árinu 1999
voru færðar frá Landssímanum á
reikning félags þeirra, Alvöru
lífsins ehf., hafi verið lán. Lög-
regla gefur mönnunum tveimur
aftur á móti að sök að hafa vitað
að engin heimild var fyrir slíku
láni. Útlit er fyrir að Alvara lífs-
ins hafi endurgreitt Landssíman-
um um 20 milljónir króna.
Heimildir Fréttablaðsins
herma að gjaldkerinn hafi einnig
„lánað“ sjálfum sér persónulega
og jafnvel fleiri aðilum fé Lands-
símans. Miðað við óstaðfestar
upplýsingar sem nú liggja fyrir
nemur heildarfjárdrátturinn um
150 milljónum. Mikið rannsóknar-
starf er þó óunnið hjá embætti
ríkislögreglustjóra, sem verst
frétta af málinu.
Heiðrún Jónsdóttir, upplýs-
ingafulltrúi Landssímans, segir
augljóst að sú skýring Árna Þórs
og Kristjáns Ragnars að þeir hafi
fengið lán hjá Landssímanum
standist ekki.
„Landssíminn stundar al-
mennt ekki lánastarfsemi til ut-
anaðkomandi. Það hefur ein-
göngu gerst í tilfellum á borð við
það þegar samið er um skuldir
viðskiptavina eða þegar um er að
ræða lán til dótturfyrirtækja.
Það ætti að hafa verið þessum at-
hafnamönnum fullljóst að bróðir
annars þeirra, sem vill svo til að
var gjaldkeri Landssímans, hefur
enga heimild til að lána þeim fé
fyrirtækisins – og það án þess að
þeir skrifi upp á neina pappíra
eða leggi fram veð eða trygging-
ar,“ segir Heiðrún.
gar@frettabladid.is
HEILBRIGÐISMÁL „Geðsjúkdómar
fara ekki í sumarfrí,“ segir
Sveinn Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Geðhjálpar, sem
óttast alvarlegar afleiðingar
sumarlokana geðdeilda.
„Bara það að tilkynning ber-
ist um að fyrirhugað sé að loka
raskar ró fólks,“ segir Sveinn.
Að sögn Sveins skapast vand-
ræðaástand á sumrin við lokun
geðdeildanna. „Fólk fer að taka
til eigin ráða, eins og að taka inn
lyf án samráðs við fagfólk.“
„Það eru mun minni sumar-
lokanir í ár en hafa nokkru sinni
verið,“ segir Eydís Sveinbjarn-
ardóttir, sviðsstjóri hjúkrunar-
geðsviðs á Landspítalanum. Að
hennar sögn verður fjórum litl-
um einingum lokað í 4 til 5 vikur
í sumar.
„Það er unnið þannig að sjúk-
lingur kemur inn, klárar sína
meðferð og útskrifast,“ segir
Eydís. Hún segir engum skjól-
stæðingum úthýst, 23 geðdeildir
séu á spítalanum og sjúklingar
sem ekki hafi lokið meðferð
sinni séu fluttir á aðrar deildir
meðan lokað er.
„Það þarf að gefa starfsfólk-
inu sumarleyfi,“ segir Haukur
Valdimarsson aðstoðarlandlækn-
ir. Hann bendir á að þörf fyrir
þjónustu sé oft í lágmarki á
sumrin og um skipulagsatriði sé
að ræða, þar sem sumar deildir
taki meira á sig þegar aðrar loka.
„Það er ekki hægt að manna allar
deildir yfir hásumarið. Það eru
ekki til sérfróðir aðilar til þess að
hlaupa inn í allt sem þarf að
gera,“ segir Haukur. ■
Framkvæmdastjóri Geðhjálpar gagnrýnir lokanir geðdeilda:
Geðsjúkdómar fara ekki í sumarfrí
LANDSÍMINN
„Það ætti að hafa verið þessum athafnamönnum fullljóst að bróðir annars þeirra, sem vill
svo til að var gjaldkeri Landssímans, hefur enga heimild til að lána þeim fé,“ segir
Heiðrún Jónsdóttir, upplýsingafulltrúi Landssímans.
LJÓN UDAYS
Sættu illri meðferð í Bagdad en eignast nú
nýtt líf í Suður-Afríku.
Gæludýr Udays:
Ljón og
blindur
björn
LJÓNAFJÖLSKYLDA Ljón, sem voru
alin í einkadýragarði Udays, elsta
sonar Saddams Hussein, verða
flutt til Suður-Afríku þar sem þau
munu eignast nýtt heimili.
Um er að ræða ljónynju með
sex mánaðargamla unga. Fjöl-
skyldan verður flutt flugleiðis til
Suður-Afríku. Ljónynjan dvelur
nú með ungana í höll sem var í
eigu Udays, en er nú bækistöð
bandarískra hermanna í Bagdad.
Hussein var þekktur fyrir dá-
læti sitt á grimmum dýrum, hrað-
skreiðum bílum og fögrum kon-
um. Að sögn Maas voru dýrin þó í
hörmulegu ástandi þegar þau
fundust. Annað gæludýr Udays,
gamall, blindur skógarbjörn,
verður fluttur í dýragarð í Grikk-
landi.
Uday sjálfur hvarf meðan á inn-
rás Bandaríkjamanna stóð og hefur
ekkert spurst til hans síðan. ■
BÍLAINNBROT Í REYKJAVÍK Mikið
var um innbrot í bíla í Reykjavík
um helgina. Tilkynnt hafði verið
um 17 innbrot til lögreglu seinni-
part sunnudags, sem mun vera
óvenju mikið.
BARNSBURÐUR Í SJÚKRABÍL Kona
ól barn á leiðinni frá Súðavík til
Ísafjarðar um helgina. Sjúkrabíll-
inn var kallaður til um klukkan
þrjú aðfaranótt sunnudags og var
barnið komið í heiminn rúmum
hálftíma síðar. Lögreglumaður ók
bílnum meðan sjúkraflutninga-
mennirnir tóku á móti barninu.
Móður og barni heilsast vel.
ERILL Í REYKJAVÍK Mikill erill var
hjá lögreglunni í Reykjavík um
helgina. 24 þurftu að sitja í fanga-
geymslum lögreglunnar, 12 voru
teknir grunaðir um ölvun við akst-
ur og mikil ölvun var í miðborg-
inni. Að sögn lögreglu var óvenju
mikið kvartað undan hávaða í
heimahúsum aðfararnótt sunnu-
dags.
BÍLVELTA Á LAUGARVATNSVEGI
Maður velti bíl á Laugarvatnsvegi
um sjöleytið á laugardag. Var
maðurinn fluttur á Landspítalann
með beinbrot. Að sögn lögreglu er
bíllinn mikið skemmdur en mað-
urinn var einn á ferð. Hann er
grunaður um ölvun við akstur.
SKJÁLFTASVÆÐIÐ Í ALSÍR
Íslendingarnir sem unnu að björgunar-
störfum í Alsír um helgina ætla að halda
heimleiðis þar sem von þykir úti um ár-
angur af starfi þeirra.
Íslenska rústabjörgunar-
sveitin í Alsír:
Hugar að
heimför
HAMFARIR Alþjóðabjörgunarsveit
Slysavarnafélagsins Landsbjargar
hugar nú að heimför eftir að hafa
verið um helgina við leitarstörf á
jarðskjálftasvæðinu í Alsír.
Íslenska björgunarsveitin leit-
aði á laugardag við hruninn leik-
skóla í borg um 50 kílómetra aust-
ur af Algeirsborg. Í gær leitaði
sveitin ásamt sex manna flokki frá
Tyrklandi í smábæ sem er um 80
kílómetra frá höfuðborginni. Eng-
inn fannst á lífi á þessum stöðum.
Vonir um að fleiri finnist á lífi
minnka með hverri klukkustund.
Sveitin fór aftur til bækistöðva
sinna í gærkvöld og hyggur á
heimferð. Hugsanlegt er að Íslend-
ingarnir sautján komist með flugi
frá Alsír á morgun.
ARIEL SHARON
Stjórn Ísrales samþykkti í gær vegvísi til
friðar í Miðausturlöndum.
Ríkisstjórn Ísraels:
Palestínuríki
fyrir 2005
FRIÐARSAMKOMULAG Ísraelsstjórn
hefur samþykkt friðarhugmyndir
Bandaríkjamanna, sem hljóða upp
á að „skref fyrir skref“ verið stuðl-
að að myndun Palestínuríkis fyrir
árið 2005..
Ariel Sharon, forsætisráðherra
Ísraels, hafði margt við hugmynd-
irnar að athuga, en lét til leiðast
eftir mikinn þrýsting frá Banda-
ríkjamönnum. Hann naut ekki
stuðnings allra ráðherra í Likud-
flokknum. Tólf voru með, sjö voru
á móti og fjórir sátu hjá.
Í áætluninni, sem nefnd er Veg-
vísir til friðar, er tekið fram að
landtöku Ísraelsmanna verði að
linna enda sé hún ein helsta hindr-
unin í vegi friðar í Mið-Austur-
löndum. Sharon segir að eingöngu
byggðir, sem ekki eru á ísraelsku
landi samkvæmt stjórnarskrá,
verði stöðvaðar. Hann krefst þess
að Palestínumenn hætti öllum
árásum.
Palestínumenn hafa fallist á
samkomulagið og segjast treysta
Bandaríkjamönnum til að útfæra
hugmyndirnar. ■
FÉKK SÚPUPOTT YFIR SIG Nítján
mánaða gamall drengur liggur á
gjörgæslu alvarlega brenndur.
Drengurinn brenndist er hann fékk
súpupott yfir sig. Líðan drengsins
er eftir atvikum.
Á OFSAHRAÐA Í VATNSSKARÐI
Maður um tvítugt var tekinn á 145
km hraða í Vatnsskarði. Lögreglan
á Sauðárkróki stöðvaði auk hans
sjö ökumenn fyrir of hraðan akstur
á laugardag.
VINNUSLYS Á VATNSENDA Maður
var fluttur á slysadeild er grafa
sem hann var að vinna á valt. Slys-
ið átti sér stað við Vatnsenda en
hann vann þar við framkvæmdir.
Maðurinn slapp lítið meiddur.
BÚIÐ Í TJÖLDUM
Tjaldbúðir hafa verið settar upp víða á
skjálftasvæðunum, en stjórnvöld eru harð-
lega gagnrýnd fyrir að útvega ekki fólki
bráðabirgðahúsnæði. Margir hafast við
undir beru lofti.
■ Lögreglumál
HAUKUR VALDIMARSSON
Aðstoðarlandlæknir segir ekki til sérfróða
aðila til þess að manna deildir meðan
starfsfólk þeirra fer í sumarfrí.
■
Heimildir
Fréttablaðsins
herma að
gjaldkerinn hafi
einnig „lánað“
sjálfum sér per-
sónulega.