Fréttablaðið - 26.05.2003, Síða 7
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
S
PV
2
09
84
05
/2
00
3
hjá okkur
Vertu
Sérhver viðskiptavinur og allt sem tengist
fjármálum hans hefur meira vægi hjá SPV en hjá stórum fjár -
málastofnunum.
Njóttu þess að vera viðskiptavinur hjá SPV, öflugri fjármála-
stofnun sem stendur þétt að baki þér og veitir alhliða og
persónulega fjármála þjónustu.
Komdu til okkar og ræddu málin.
Vertu með í hópi ánægðustu viðskiptavina fjármálafyrirtækja
á Íslandi*.
Það er ekkert einfaldara en að flytja öll bankaviðskipti yfir til
okkar. Þú tekur ákvörðun og við sjáum um flutninginn.
* Skv. mælingum Íslensku ánægjuvogarinnar, en að henni standa
Gæðastjórnunarfélag Íslands, Samtök iðnaðarins og Gallup.
SPV - Borgartúni 18, Hraunbæ 119, Síðumúla 1; Þjónustuver, sími 5754100
7MÁNUDAGUR 26. maí 2003
SKULDIR Skuldir íslenskra heim-
ila hafa sjöfaldast síðan 1980 og
skulda heimilin nú tvöfaldar ráð-
stöfunartekjur sínar á ári.
Að sögn Markúsar Möller,
hagfræðings við Seðlabanka Ís-
lands, eru íslensk heimili þó ekki
þau skuldsettustu í heimi. Árið
2000 skulduðu bæði dönsk og
hollensk heimili meira en þau ís-
lensku.
„Þetta eru allt þjóðir þar sem
ráðstöfunartekjur eru tiltölu-
lega lágar miðað við lífskjör,“
segir Markús. Hann bendir á að
þjóðir með öflug velferðarkerfi
hafi lægri ráðstöfunartekjur
vegna hærri skattbyrði. Þar sem
skattarnir séu hærri verði
þættir eins og húsnæði stærra
hlutfall skulda. Það leiði til þess
að skuldir séu stærra hlutfall af
ráðstöfunartekjum.
Skuldastaða heimilanna er þó
ekki verulega hættuleg að sögn
Markúsar. „Lán borgast mjög
seint niður,“ segir hann. „Það
gerir þó að verkum að greiðslu-
byrðin verður aldrei skelfileg þó
hún standi mjög lengi.“ ■
HERNAÐUR Í fyrradag sýndi svæð-
issjónvarp í Bandaríkjunum
heimildarmynd með frásögnum
sjónarvotta af fjöldamorðum
bandarískra hermanna í
Afganistan. Um er að ræða allt
að 3.000 talibana, sem banda-
rískir hermenn munu hafa myrt.
Myndin hefur verið sýnd víða
um heim, en Mannréttindasam-
tök hafa krafist rannsóknar á
því hvort hermennirnir séu sek-
ir um stríðglæpi. Myndin hefur
valdið mikilli geðshræringu en
hún hefur verið sýnd ríkisfjöl-
miðlum í Bretlandi, Þýskalandi,
Ítalíu og Ástralíu. Í Bandaríkj-
unum vita menn ekkert um
myndina og þessa atburði því
einkareknar stöðvar fást ekki til
að sýna hana. RÚV greindi frá. ■
Bandaríkjamenn í Afganistan:
Sekir um stríðsglæpi?
Ölvunarakstur:
Ofsaakstur í
miðbænum
LÖGREGLUMÁL Lögreglu var til-
kynnt um glæfralegan akstur í
miðborg Reykjavíkur aðfararnótt
lagardags. Bílnum var ekið á
miklum hraða eftir Snorrabraut
og niður Laugaveg en förin endaði
við framkvæmdirnar í Banka-
stræti. Maðurinn ók utan í fjóra
bíla áður en för hans var stöðvuð.
Að sögn lögreglu stóð veruleg
hætta af manninum enda mikill
mannsöfnuður í miðbænum. Mað-
urinn er 25 ára og var verulega
ölvaður. Hann gisti fangageymsl-
ur lögreglu. ■
NORWAY
Skemmtiferðaskiptið Norway
skemmdist töluvert þegar sprenging
varð í vélarrúmi þess.
Sprenging í skemmti-
ferðaskipi á Miami:
Tveir létust
og 20 særðir
SPRENGING Tveir menn létust þeg-
ar sprenging varð í vélarrúmi
skemmtiferðaskipsins Norway,
sem lá við bryggju á Miami í Flór-
ída. 20 manns slösuðust, en engan
af 2.100 farþegum skipsins sak-
aði. Norway er í eigu norska
skipafélagsins Norwegian Cruise
Line. Skipið kom til hafnar í Mi-
ami klukkan 5 í fyrrinótt og
sprengingin varð um tveimur
stundum síðar. Talið er að um
gufusprengingu hafi verið að
ræða. ■
TF-SIF kölluð út:
Jeppamaður
slasast
SLYS Þyrla Landhelgisgæslunnar,
TF-SIF, sótti alvarlega slasaðan
mann á Vatnajökul á laugardag.
Maðurinn slasaðist er jeppi, sem
hann var að gera við, féll ofan á
hann. Slysið átti sér stað við skála
Jöklarannsóknarfélagsins í
Grímsfjöllum en hann var þar á
ferð í hópi jeppamanna. Þyrlan
flutti hinn slasaða á Landspítala -
háskólasjúkrahús í Fossvogi. Að
sögn vakthafandi læknis er líðan
mannsins nokkuð góð og hefur
hann verið útskrifaður af gjör-
gæslu. ■
ÓBREYTT VÍSITALA Vísitala bygg-
ingarkostnaðar, reiknuð eftir
verðlagi um miðjan maí, er 285,6
stig. Vísitalan, sem gildir fyrir
júní, er óbreytt frá fyrri mánuði.
Síðastliðna tólf mánuði hefur
vísitala byggingarkostnaðar
hækkað um 3%.
MARKÚS MÖLLER
Íslensk heimili skulda mikið en eru ekki
þau skuldsettustu í heimi.
BANDARÍSKIR HERMENN
Afganskt barn fylgist með bandarískum her-
mönnum skammt frá borginni Kandahar.
■ Innlent
Skuldir heimilanna:
Skulda tvöfaldar
ráðstöfunartekjur