Fréttablaðið


Fréttablaðið - 26.05.2003, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 26.05.2003, Qupperneq 16
FYRSTI SIGUR CHILE Chile sigraði Tékkland 2:1 í úrslitaleik heims- meistarakeppni karlaliða í tennis. Þetta var fyrsti sigur Chilebúa í 25 ára sögu keppninnar. Fern- ando Gonzalez (23. sæti heims- listans), Marcelo Rios (43. sæti) og Nicolas Massu (83. sæti) kepp- tu fyrir hönd Chile. SÁ EFSTI MÆTTI Lleyton Hewitt, efsti maður heimslistans, fór fyr- ir Áströlum í keppninni. Þeir töp- uðu fyrir Tékkum og Spánverjum en unnu Bandaríkjamenn. Spán- verjinn Carlos Moya var næst- efstur þeirra sem tóku þátt í mót- inu en hann var í 4. sæti heims- listans. 16 26. maí 2003 MÁNUDAGUR ■ Tennis Fjölbreytt og framsækið nám HÓLASKÓLI háskólinn á Hólum S í ð a n 1 1 0 6 Nám sem nýtist Velkomin heim að Hólum Ferðamáladeild •Diploma í ferðamálafræðum •Einnig boðið í fjarnámi Guðrún Þóra Gunnarsdóttir MA, deildarstjóri ggunn@holar.is Ferðamálanám á Hólum Kynntu þér málið - www.holar . is Umsóknarfrestur er til 10. júní S : 455 6300 MENNTUN ...forsenda framfara Starfsnám í ferðaþjónustu tengdri menningu og náttúru Metið til eininga í HÍ, HA og á Bifröst Gefur landvarðaréttindi 90% útskrifaðra starfa við ferðaþjónustu eða eru í framhaldsnámi á því sviði Hægt að taka allt námið í fjarnámi Fagmennska og fjölbreytni í fyrirrúmi Ferðamáladeild Hólaskóla sérhæfir sig í ferðaþjónustu í dreifbýli og hefur traust tengsl við atvinnugreinina. Ferðamáladeild Hólaskóla –eitthvað fyrir þig? „Við gerðum svo margt sem við hefðum annars aldrei fengið tækifæri til að gera.“ Halla Rún Tryggvadóttir nemandi 1998-9 „Námið er búið að vera mjög gagnlegt og skemmti- legt og alltaf verið að glíma við spennandi verkefni.“ Þórunn Sigþórsdóttir nemandi í fjarnámi 2002-3 H V ÍT T o g S V A R T WANG HEIMSMEISTARI Kínverska stúlkan Nan Wang varð heims- meistari í borðtennis á laugardag eftir sig- ur á löndu sinni Yining Zhang í úrslitaleik. Stangarstökk: Þórey Edda í fimmta sæti FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR Þórey Edda Elísdóttir varð í fimmta sæti í stangarstökki á stigamóti Alþjóða frjálsíþróttasambandsins sem fram fór í Bandaríkjunum á laugardag. Þórey Edda fór yfir 4,22 metra, sömu hæð og Bandaríkjamennirnir Tracy O’Hara og Mary Sauer. Ólympíu- meistarinn Stacy Dragila frá Bandaríkjunum sigraði á mótinu eftir harða keppni við Svetlönu Feofanovu frá Rússlandi. Dragila stökk 4,62 metra en Feofanova 4,52. Kellie Suttle frá Bandaríkj- unum varð þriðja en hún stökk yfir 4,32. ■ FYLKIR - GRINDAVÍK Fylkismenn fá Grindvíkinga í heimsókn í lokaleik 2. umferðar Landsbankadeildarinnar. Ætlum að bæta upp slæman leik í fyrstu umferð Bjarni Jóhannsson, þjálfari Grindavíkur, mæt- ir sínum gömlu lærisveinum í Fylki í kvöld. Grindvíkingar verða án Grétars Hjartarsonar. FÓTBOLTI Fylkir og Grindavík mæt- ast í kvöld í lokaleik 2. umferðar Landsbankadeildar karla. Fylki gekk vel í 1. umferð og vann ör- uggan sigur á Fram en Grindavík tapaði óvænt fyrir nýliðum Vals. Bjarni Jóhannsson, þjálfari Grindavíkur, var meðal áhorfenda á Fylkisvelli í 1. umferð. „Ég sá Fylkismenn spila á móti Fram. Þeir voru í fínum málum í þeim leik, skoruðu snemma og það hentar þeim ágætlega. Þeir voru að spila ágætlega miðað við fyrsta leik í móti. Þeir hafa gríðarlega stóran leikmannahóp og eflast með hverjum manni sem kemur til þeirra.“ Bjarni þjálfaði Fylki árin 2000 og 2001 en sér hann sitt hand- bragð á Fylkisliðinu? „Nei, nei. Það er kominn annar stíll á liðið enda sami þjálfari sem stýrir því annað árið í röð. Það er Fylkis- bragur á liðinu, svona svipaður bragur og hefur verið síðustu fimm til sex árin en það hafa ver- ið bestu ár þeirra í boltanum.“ Grindvíkingar söknuðu Grét- ars Hjartarsonar í leiknum gegn Val. „Grétar er ökklabrotinn og verður ekki með í það minnsta næstu tvær til þjár vikurnar. Það er mikill missir að vera án Grét- ars enda var hann markakóngur mótsins í fyrra og við verðum að finna einhverja aðra línu í sóknar- leikinn þegar hans nýtur ekki við.“ Sinisa Kekic var lengstum í sókn Grindvíkinga en hefur leikið í vörinni frá miðju móti í fyrra. Hann lék í vörninni á Val en verð- ur hann í sókninni í kvöld? „Nei, væntanlega ekki,“ segir Bjarni. „Við vissum að það yrði mikil pressa á okkur því við spiluðum vel í vetur og fengum Ólaf Gott- skálksson og Lee Sharpe til okk- ar. Þetta er bara pressa sem menn verða að læra að vinna með. Leikmennirnir verða sjálf- ir að gera það upp við sig hvort þeir eru stressaðir út af þessari spá eða ekki. Það er svolítill fjölmiðlastíll á Grindavíkurlið- inu. Það er mikið í umræðunni og miklar væntingar gerðar til liðsins á meðan öll önnur lið eru að stækka sína leikmannahópa.“ Grindvíkingar eru staðráðnir í að sækja þrjú stig á Fylkisvöllinn. „Við lítum á tapið gegn Val sem slys og erum staðráðnir að taka okkur saman í andlitinu og mæt- um ferskir í Árbæinn.“ obh@frettabladid.is  16.30 RÚV Helgarsportið. Þáttur um helstu íþrótta- viðburði helgarinnar.  16.30 Sýn Sýnt frá leik Dallas Mavericks og San Antonio Spurs í úrslitakeppni NBA.  16.45 RÚV Fótboltakvöld. Sýnt verður úr leikjum 2. umferðar Landsbankadeildarinnar.  19.00 Sýn Bein útsending frá leik Fylkis og Grinda- víkur í Landsbankadeild karla.  21.30 Sýn Spænsku mörkin. Sýnt frá leikjum í 35. umferð spænsku 1. deildarinnar.  22.30 Sýn Olíssport. hvað?hvar?hvenær? 23 24 25 26 27 28 29 MAÍ Mánudagur Skoska knattspyrnan: Rangers meistari í 50. sinn FÓTBOLTI Rangers varð skoskur meistari í 50. sinn eftir 6:1 sigur á Dunfermline í lokaumferðinni. Erkifjendurnir í Celtic unnu Kilmarnock aðeins 4:0 en þeir hefðu þurft sex marka sigur til þess að komast upp fyrir Rangers. Lokasprettur skosku keppn- innar var mjög jafn og spennandi. Fyrir síðustu umferðina höfðu Rangers og Celtic jafn mörg stig og sama markamun en Rangers hafði skorað einu marki meira. Í lokaumferðinni hafði Celtic frumkvæðið á tíu mínútna kafla í síðari hálfleik en annars var Rangers alltaf feti framar. Alan Thompson kom Celtic í 3:0 á 54. mínútu þegar Rangers leiddi 3:1 gegn Dunfermline. Ronald De Boer skoraði fjórða mark Rangers tíu mínútum síðar og Steven Thompson jók forskotið í 5:1 stuttu síðar. Lokamínúturnar voru dramatískar en Spánverjinn Mikel Arteta tryggði Rangers sig- ur með marki úr vítaspyrnu tveimur mínútum fyrir leikslok. Skoskir meistarar 1891-2003: Rangers 50 sinnum, Celtic 38 sinnum, Hearts, Hibernian og Aberdeen fjórum sinnum, Dumb- arton tvisvar og Third Lanark, Motherwell, Dundee, Kilmarnock og Dundee United einu sinni. ■ VIKA VONBRIGÐA Celtic tapaði úrslitaleik UEFA-bikarkeppn- innar á miðvikudag og missti af skoska meistaratitlinum í gær.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.