Fréttablaðið - 26.05.2003, Qupperneq 22
26. maí 2003 MÁNUDAGUR
Kosningarnar sáu til þess aðstaða samfélagsins verður
óbreytt næstu árin. Júróvisjón sá
til þess að staða Íslands á alþjóða-
vettvangi er einnig óbreytt. Þeir
sem vonuðust eftir breytingum
þetta vorið geta pakkað vænting-
unum ofan í tösku og geymt þær
til betri tíma.
Breytingar verða venjulega
þegar maður á síst von á þeim og
nánast aldrei þegar þeirra er
vænst.
Birgitta Haukdal stóð sig nátt-
úrlega vel á sviðinu í Riga og ár-
angurinn var fínn. Tyrkirnir
sendu lag sem var með sam-
evrópskri laglínu og þjóðlegu
undirspili. Kannski hefði Diddi
fiðla með langspilið fengið Evr-
ópu til að opna hjarta sitt fyrir
framlagi Íslands þetta árið.
Maður lætur sjálfur ekki sitt
eftir liggja í stuðningnum við út-
rás Íslands. Hélt mitt eigið Júró-
visjónpartí með gestum sem voru
valdir með slembiúrtaki úr síma-
skrá. Svaka fín stemning og skot-
ið upp flugeldum og allt.
Eldri dóttirin á heimilinu kann
íslenska lagið á blokkflautu og
æfir það tyrkneska í vikunni. Sú
yngri ljómar eins og sól í heiði
þegar hún sér mynd af Birgittu
Haukdal. Vissi reyndar ekki hvað
hún gerði. Og viðbótin við útlistun
þess að hún væri fulltrúi Íslands í
Júróvisjón var: „Hún borðar líka
súkkulaði.“
Semsagt fínt Júróvisjón í ár.
Sæti yfir meðallagi. Fín frammi-
staða og gott partí. Með reynslu af
jafn mörgum keppnum með mikl-
um væntingum fyrir hönd þjóðar-
innar gerir maður ekki meiri
kröfur. ■
Við tækið
HAFLIÐI HELGASON
■ er lífsreyndur þegar kemur að Júró-
visjón og alsæll með partíið í ár.
Óbreytt staða á alþjóðavettvangi
Með áskrift að stafrænu sjón-
varpi Breiðbandsins fæst
aðgangur að rúmlega 40
erlendum sjónvarpsstöðvum,
þar á meðal 6 Norðurlanda-
stöðvum. Nánari upplýsingar
um áskrift í síma 800 7000.
16.30 NBA (Úrslitakeppni NBA)
19.00 Landsbankadeildin Bein út-
sending frá leik Fylkis og Grindavíkur.
21.30 Spænsku mörkin
22.30 Olíssport
23.00 Gillette-sportpakkinn
23.30 Bud The Chud (C.H.U.D. II)
(Ófreskjan II) Gamansöm hrollvekja.
Nokkrir unglingar stela líki en hefðu bet-
ur látið það ógert því líkið á það til að
narta í fólk og þeir sem eru bitnir verða
að mannætum. Aðalhlutverk: Brian
Robbins, Tricia Leigh Fisher, Gerrit Gra-
ham. Leikstjóri: David Irving. 1989.
Bönnuð börnum.
1.00 Spænsku mörkin
2.00 Dagskrárlok og skjáleikur
6.58 Ísland í bítið
9.00 Bold and the Beautiful
9.20 Í fínu formi
9.35 Oprah Winfrey
10.20 Ísland í bítið
12.00 Neighbours
12.25 Í fínu formi (Þolfimi)
12.40 Dharma og Greg (3:24)
13.00 A Midsummer Night’s Dream
(Draumur á Jónsmessunótt) Faðir Herm-
inu hefur fundið henni efnilegan eigi-
mann. En dóttirin er ástfangin af öðrum
manni og þau flýja inn í skóginn. Þar
með hefst bráðskemmtileg og fjörug at-
burðarás. Aðalhlutverk: Kevin Kline,
Michelle Pfeiffer, Rupert Everett, Calista
Flockhart. 1999.
14.55 Tónlist
15.15 Bull (2:22)
16.00 Barnatími Stöðvar 2
17.40 Neighbours
18.05 Off Centre (13:21)
18.30 Fréttir Stöðvar 2
19.00 Ísland í dag, íþróttir, veður
19.30 Friends 4 (9:24)
20.00 Smallville (15:23)
20.45 American Dreams (9:25)
21.35 Bojangles Bill Robinson, ávallt
kallaður Bojangels, var um margt ákaf-
lega merkilegur listamaður. Hann var t.d.
fyrstur blökkumanna til að flytja atriði sitt
einn á sviði fyrir hvíta áhorfendur (1913).
Hann flutti síðar til New York og lék m.a.
í söngleikjum á Broadway. Bojangles lést
1949 en við útför hans voru stórmenni
eins og Duke Ellington, Joe Luis, Bob
Hope og Joe DiMaggio. Aðalhlutverk:
Gregory Hines, Peter Riegert, Kimberly
Elise. Leikstjóri: Joseph Sargent. 2001.
23.15 Cold Feet (3:6)
0.05 A Midsummer Night’s Dream
Sjá nánar að ofan.
2.00 Friends 4 (9:24)
2.20 Ísland í dag, íþróttir, veður
bönd frá Popp TíVí
6.00 Final Fantasy:
The Spirits Within
8.00 Josie and the Pussycats
10.00 Blast from the Past
12.00 Get Real
14.00 Angels in the Infield
16.00 Josie and the Pussycats
18.00 Blast from the Past
20.00 Get Real
22.00 My Husband My Killer
0.00 Final Fantasy:
The Spirits Within
2.00 Midnight Crossing
4.00 My Husband My Killer
7.00 70 mínútur
16.00 Pikk TV
20.00 Is Harry on the Boat?
21.00 Greece Uncovered (4:8)
22.03 70 mínútur
23.10 X-strím
0.00 Lúkkið
0.30 Meiri músík
Horatio, Speedle og Calleigh róta í
gegnum gögn er sérvitur háskóla-
prófessor er myrtur en hann fannst
bundinn við tré. Delko og Megan
rannsaka bíl sem finnst við strönd-
ina með lík í skottinu. Grunur leik-
ur á að um tryggingasvik sé að
ræða.
Skjár einn
19.00 Stöð 2 21.15
23.15 Cold Feet (3:6) (Haltu mér
slepptu mér) Margverðlaunaður mynda-
flokkur sem hefur slegið í gegn hér sem
annars staðar. Þetta er síðasta syrpan
um vinina í Manchester og gerist hún
sex mánuðum eftir ferðalag þeirra til
Ástralíu. Pete og Jo eru komin heim aft-
ur, Adam og Rachel takast á við fjöl-
skyldulífið, David og Karen reyna að skil-
ja í vinsemd og barnfóstran Ramona
finnur sér nýjan elskhuga.
CSI Miami
Cold Feet
22
SIMON
Meira að segja fúli dómarinn var sáttur
við úrslitin.
Úrslit „American Idol“:
24 milljónir
atkvæða
bárust
SJÓNVARP Úrslitaþáttur „American
Idol“ fór í loftið í Bandaríkjunum
síðasta miðvikudagskvöld. Áhorf
á þáttinn var framar öllum vonum
og talið er að um 38 milljón manns
hafi fylgst með því þegar einn
keppandanna varð að stórstjörnu
á einni nóttu. Tveir keppendur
voru eftir í lokaþættinum og voru
það 130 þúsund atkvæði sem
skáru úr um sigurvegarann. Það
verða að teljast smámunir í ljósi
þess að um 24 milljónir atkvæða
bárust þættinum í gegnum síma-
kosningu. Sigurvegarinn vann því
með 50,3% meirihluta. Tæpara
getur það varla verið.
Miðað við þetta áhorf þykir ör-
uggt að þátturinn verði langlífur í
bandarísku sjónvarpi. Meira að
segja dómarinn fúli var ánægður
með úrslitin. Kannski ekki furða
því vinningshafinn í ár var...? ■
18.30 Leap Years (e)
19.30 Malcolm in the Middle (e)
20.00 World’s Wildest Police Videos
Jack Bunnell er harður í horn að taka
enda fógeti á eftirlaunum. Honum er því
sönn ánægja að kynna þessa þætti sem
sýna lögregluna í ýmsum heimshornum í
eltingarleik við bófa á bílum og reiðskjót-
um postulanna.
21.00 CSI Miami
22.00 Philly Kathleen er fyrsta flokks
verjandi, sannur riddari hringborðsins í
leit að hinum heilaga kaleik réttlætisins.
Ásamt félaga sínum berst hún harðri bar-
áttu við hrokafulla saksóknara og dóm-
ara í von um að fá kerfið til að virka.
Kathleen er líka einstæð móðir og barns-
faðirinn jafnframt helsti andstæðingur
hennar og ofurfjandi, sjálfur aðalsak-
sóknari Fíladelfíuborgar. Spennandi rétt-
ardrama.
22.50 Jay Leno
23.40 The Practice (e)
0.50 Dagskrárlok
16.30 Helgarsportið
16.45 Fótboltakvöld
17.05 Leiðarljós
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 Myndasafnið
18.30 Spæjarar (3:26)
19.00 Fréttir, íþróttir og veður
19.35 Kastljósið
20.00 Lífshættir spendýra (8:10) (The
Life of Mammals) Breskur heimildar-
myndaflokkur þar sem David Atten-
borough fjallar um fjölbreyttasta flokk
dýra sem lifað hafa á jörðinni. Sum
spendýr hafa sogskálar á fótum og
griprófu sem gera þeim auðveldara að
lifa í trjám, og í dimmum skógi er líka
betra að hafa skynfærin í lagi. Heimasíðu
þáttanna er að finna á vefslóðinni
www.bbc.co.uk/nature/animals/-
mammals/.
20.55 Vesturálman (8:22) (West Wing)
Bandarísk þáttaröð um forseta Bandaríkj-
anna og samstarfsfólk hans í vesturálmu
Hvíta hússins. Aðalhlutverk: Martin
Sheen, Alison Janney, Bradley Whitford,
Rob Lowe, John Spencer og Richard
Schiff. Nánari upplýsingar um þættina er
að finna á vefslóðinni www.warner-
bros.com/web/westwingtv.
21.40 Timburmenn Smíðaþáttur á létt-
um nótum í umsjón Arnar Árnasonar
leikara og Guðjóns Guðlaugssonar
smiðs. e.
22.00 Tíufréttir
22.20 Soprano-fjölskyldan (13:13)
Myndaflokkur um mafíósann Tony
Soprano og fjölskyldu hans. Frændi
gamli fær frelsið á ný og Christopher er
falið að koma foringjanum í New York
fyrir kattarnef. Gömul hjákona Tonys
hringir í Carmelu og eftir það á hann
ekki sjö dagana sæla.
23.35 Markaregn
0.20 Kastljósið
0.40 Dagskrárlok