Fréttablaðið - 26.05.2003, Síða 38
38 26. maí 2003 MÁNUDAGUR
fær húsvíska söngkonan BirgittaHaukdal fyrir góða framgöngu í
Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva
á laugardagskvöld.
Hrósið
FERSK Í BÚÐIR Á HVERJUM DEGI
Kennari, bæjarstjóri og lögmaður
Áhugamálin eru bóklestur ogveiði og svo auðvitað sjávar-
útvegsmál,“ segir Hilmar Bald-
ursson lögfræðingur. Hann var
lögmaður Fiskistofu í tvö ár. Í síð-
ustu viku vann hann mál gegn
gamla vinnustaðnum sínum.
Hilmar hefur komið víða við. „Ég
er með kennarapróf og kenndi í
Fellaskóla áður en ég fór í lög-
fræðina. Ég byrjaði reyndar í við-
skiptafræði en fannst hún svo
leiðinleg að ég hætti eftir hálfan
mánuð.“ Ástæða þess að hann fór
í nám á ný var að breytingar urðu
á skilgreiningu vinnutíma. „Ég
var að vinna þá í athvarfi fyrir
krakka með félagsleg vandamál.
Það sögðu allir upp, en komu til
baka allir nema ég.“
Hilmar segir ýmislegt sameigin-
legt með kennslu og málflutningi.
„Maður er að koma á framfæri stað-
reyndum og upplýsingum, hvort
sem þær eru sannar eða lognar.“
Hilmar kenndi í forföllum með-
fram námi. Mest í Breiðholtinu. Um
tíma var hann bæjarstjóri í Hvera-
gerði. Hann segist ekki hafa sér-
stakan áhuga. „Ég hef samt sem
áður lengst af verið í lögmennsk-
unni.“ Sem lögmaður fæst hann
mest við sakamál. Hann sinnir þeim
sem víkja af þröngum vegi dyggð-
arinnar. Síðastliðin fimm ár hefur
hann einnig verið lögmaður Byrgis-
ins og aðstoðað með því þá sem eru
að reyna að komast út í lífið á ný.
„Það er ekki beinlínis sjálfboða-
vinna, en með verulegum afslætti.“
Hann er í sambúð og samtals
eiga þau þrjú börn. „Þau eru upp-
komin og komin tvö afabörn.“
Konan fer með í veiðiferðirnar og
fyrsta veiðitúrinn á að fara um
miðjan júní. „Ætli maður fari ekki
að dusta rykið af veiðigræjunum
og finna aðeins fyrir þeim,“ segir
Hilmar með greinilegri tilhlökkun
í röddinni. ■
HILMAR BALDURSSON
Fór úr kennslu í viðskiptafræði. Fannst hún
leiðinleg og fór í lögfræði.
Persónan
HILMAR BALDURSSON
■ lögmaður vann mál gegn Fiskistofu.
Hann vann þar áður en er mest í saka-
málum. Áhugamálin eru veiði og bóklest-
ur. Hann hefur líka verið bæjarstjóri og
kennari.
Arkitekt vill
fleiri götusalerni
Þetta er orðið löngu tímabærtog ég vil setja sem flest
götusalerni niður sem víðast um
höfuðborgina,“ segir Ásdís Ing-
þórsdóttir arkitekt, sem nýverið
kynnti staðsetningu á þremur nýj-
um götusalernum fyrir skipulags-
fulltrúanum í Reykjavík. „Það
hefur verið ófremdarástand í
þessum málum eins og best sést á
kvörtunum veitingahúsaeigenda
og verslunarmanna í miðbænum.
Fólk sækir þangað til að komast á
salerni,“ segir Ásdís.
Þegar er búið að setja upp tvö
götusalerni af nýrri gerð í mið-
bænum; annað þar sem Stjörnubíó
stóð og hitt á Ingólfstorgi. Nú
leggur Ásdís til að það þriðja
verði sett upp á Frakkastíg, ská-
hallt niður af Hallgrímskirkju,
það fjórða við biðstöð strætis-
vagna á Lækjargötu og það
fimmta á Veghúsastíg, rétt við
fangelsisvegg Hegningarhússins.
„Það þyrfti að gera enn betur.
Ég veit að borgin hefur verið að
leita að sérstöku húsi í miðbænum
sem yrði innréttað fyrir salerni en
ekki fundið,“ segir Ásdís og legg-
ur áherslu á að götusalernin verði
að sjálfsögðu að vera þar sem fólk
er á ferli: „Ekki síst ferðamenn
sem þekkja þessi götusalerni
annars staðar frá. Þetta er víða al-
veg eins,“ segir hún.
Nýting þeirra tveggja götusal-
erna sem þegar hafa verið sett
upp er góð og það sama má segja
um umgengnina. Vonast skipu-
lagsyfirvöld til að svo verði
áfram um þau þrjú nýju götusal-
erni sem bráðlega verða tekin í
notkun. ■
Gleymum ekki
matartímanum
Nafnið segir mjög mikið uminnihaldið en við leggjum
áherslu á að matartíminn eigi að
vera besti tími dagsins,“ segir
Helga Ólafsdóttir, ritstjóri nýs
mánaðarrits, Matartíminn – besti
tími dagsins, sem kom út í fyrsta
sinn í vikunni.
„Stemningin í blaðinu er ekki
mjög formleg enda er það á allra
færi að búa til góðan mat og við
erum að sýna fram á það á ein-
faldan og aðgengilegan hátt. Við
gleymum því oft að taka okkur
tíma til að njóta matar og drykkj-
ar í þessum hraða heimi en matur-
inn er hluti af lífi okkar allra og
við ættum að gefa honum meiri
tíma.“
Skerpla gefur Matartímann út.
Hann er seldur í verslunum Hag-
kaupa á 299 krónur og kemur út í
kringum þann 20. hvers mánaðar.
„Við munum fá valinkunna mat-
gæðinga til þess að gefa okkur
uppskriftina að eftirlætisréttum
sínum í hverju blaði og það er
Diddú sem ríður á vaðið með
skrautlegri fiskisúpu. Þá er fjall-
að um rauðvínsþrúgur í þessu
fyrsta blaði auk þess sem við kíkj-
um í tapasveislu í miðbænum og
förum út að borða með ítölskum
matgæðingi. Þá fengum við Bjór-
vinafélag Veðurstofu Íslands til
þess að smakka og dæma nokkrar
bjórtegundir þannig að það er
óhætt að segja að þeir spái í fleira
en veðrið á Veðurstofunni.“ ■
ÁSDÍS INGÞÓRSDÓTTIR Á INGÓLFSTORGI
Ferðamenn þekkja götusalernin annars staðar frá. Þetta er víðast eins.
Hreinlæti
■ Borgaryfirvöld stefna að því að setja
upp þrjú ný götusalerni í miðbæ Reykja-
víkur innan skamms. Þegar eru tvö í
notkun og reynslan af þeim góð.
Tímarit
HELGA ÓLAFSDÓTTIR
■ ritstýrir nýju tímariti sem ætlað er að
kveikja matarást hjá fólki og hvetja það
til að gefa matartímanum aukið vægi í
lífinu.
HELGA ÓLAFSDÓTTIR
„Matar- og drykkjarmenning er aðalmálið
og blaðið er stútfullt af uppskriftum og
skemmtilegum hugmyndum sem hvetja
fólk til að vera óhrætt við að prófa eitt-
hvað nýtt og gera eitthvað skemmtilegt
með mat til að gleðja sjálft sig og aðra í
hversdagsleikanum.“
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI