Fréttablaðið - 26.05.2003, Qupperneq 40
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Tvö fyrirtæki hafa reynslu af þvíað stjórna Lýðveldinu. Það eru
Sjálfstæðisflokkur og Framsóknar-
flokkur. Óreynd verktakafyrirtæki í
lýðveldisstjórnunarbransanum eru:
Samfylking sem varð til þegar nokk-
ur lítil og skuldsett verktakafyrir-
tæki sameinuðust og hugðust ná ráð-
andi markaðshlutdeild með samein-
ingu og samlegðaráhrifum. VG og
FF eru smá fyrirtæki sem vilja
verða undirverktakar hjá stóru fyr-
irtækjunum. Gæðastjórnunardeild
Lýðveldisins heitir Alþingi.
ÍSLENDINGAR eru hjátrúarfullir
og trúa því að efnahagslíf Lýðveldis-
ins sé andsetið og í sál og pyngju
Lýðveldisins hafi demón sem kallast
Verðbólgudraugur tekið sér bólfestu.
Íslendingar telja að vábeiða þessi
óttist aðeins tvo draugabana (exor-
sista). Það eru (lands)feðurnir Davíð
og Halldór sem eru báðir af léttasta
skeiði og hafa Íslendingar af því
áhyggjur hvort þeir nái að þjálfa
upp draugabana og særingamenn
gegn Verðbólgudraugnum áður en
þeir setjast sjálfir í helgan stein í
Turni Seðlabankans.
FAÐIR DAVÍÐ hefur ekki fundið
verðugan arftaka í sínu fyrirtæki
svo að hann hefur afsalað sér kápu
yfirtöframanns til föður Halldórs
sem mun taka við töfrasprotanum
eftir eitt og hálft ár. Þá verða þeir
sem telja sig réttborna til arfs eftir
föður Davíð að berjast til valda og
keppa innbyrðis um að ná sprotan-
um úr greipum föður Halldórs. Verð-
ur sú barátta löng og ströng því að
vinsældir Halldórs munu stóraukast
eftir að hann kemst í hásætið og út-
deilir skattalækkunum og 90% hús-
næðislánum á báðar hendur.
FAÐIR HALLDÓR hefur valið sér
eftirmann. Sá lærisveinn galdra-
mannsins er hinn nývígði drauga-
bani, bróðir Árni, sem verið hefur
ráðherradjákni og numið Svarta-
galdur í tveimur ráðuneytum, og er
þar að auki þekktur seyðkarl í sinni
brennisteinsangandi heimabyggð.
Árni í félagsmálaráðuneytinu verður
því hlíf þjóðarinnar gegn Verðbólgu-
draugnum í framtíðinni meðan litlir
seyðskrattar í Sjálfstæðisflokknum
berjast innbyrðis. Þykir mönnum því
sem frammistaða föður Halldórs
upp á síðkastið minni helst á sjálfan
Hringadrottin en fyrirhyggja föður
Davíðs á Harry Potter. Abraka-
dabra! ■
Bakþankar
ÞRÁINS BERTELSSONAR
Djákninn
í Féló