Fréttablaðið - 05.06.2003, Page 4
4 5. júní 2003 FIMMTUDAGUR
Hver er framtíð varnarliðsins?
Spurning dagsins í dag:
Á að endurvekja sumarfrí
Sjónvarpsins?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
37,5%
27,7%
Það minnkar
34,8%Breytist ekki
Það fer
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
Húsafelli
www.centrumnatura.is ı info@centrumnatura.is
Stökktuuuuuuu!!!
ÞRÍR LEIÐTOGAR
George W. Bush ásamt þeim Ariel Sharon (til
vinstri) og Mahmoud Abbas í Jórdaníu í gær.
Bush í Jórdaníu:
Skref stigin
fram á við
JÓRDANÍA, AP Ariel Sharon, forsæt-
isráðherra Ísraels, og hinn
palestínski starfsbróðir hans,
Mahmoud Abbas, heita því að
koma á friði í Mið-Austurlöndum.
Þessu lýstu þeir yfir eftir fund
með George W. Bush Bandaríkja-
forseta í Jórdaníu í gær. Sharon
hét því að fjarlægja ólöglegar
landnemabyggðir á svæðum
Palestínumanna. Á sama tíma
hvatti Abbas landa sína til að
hætta öllum hryðjuverkaárásum
á Ísraela.
Bush Bandaríkjaforseti sagði
að framfarir hefðu náðst með
viðræðunum og bætti því við að
Bandaríkin myndu sjá til þess að
tillögum þeirra, Vegvísi til friðar,
verði komið í framkvæmd. ■
WASHINGTON, AP Í nýútkominni bók,
sem kallast „Living History,“ seg-
ir Hillary Rodham Clinton frá ár-
unum átta í Hvíta húsinu þegar
eiginmaður hennar gegndi emb-
ætti forseta Bandaríkjanna.
„Erfiðustu ákvarðanirnar sem
ég hef tekið í lífinu voru að halda
áfram að vera gift Bill og að bjóða
mig fram sem öldungadeildar-
þingmaður fyrir New York,“ segir
Hillary í bókinni.
Hún segist hafa trúað eigin-
manni sínum þegar hann sagðist
einungis hafa talað nokkrum sinn-
um við Lewinsky og að samband
þeirra hefði verið misskilið hrapa-
lega. „Mér þótti Lewinsky-málið
vera enn eitt hneysklið sem er búið
til af pólitískum andstæðingum.“
Rúmum sex mánuðum síðar, þegar
Clinton undirbjó vitnisburð sinn
fyrir hæstarétti vegna málsins,
var Hillary enn sannfærð um sak-
leysi bónda síns. Tveimur dögum
fyrir vitnisburðinn, þann 15. ágúst
árið 1998, viðurkenndi Clinton hins
vegar skömmustulegur fyrir eigin-
konu sinni að sambandið við
Lewinsky hefði verið mun alvar-
lega en hann hefði áður greint frá.
„Ég gat varla andað,“ segir Hillary
í bókinni. „Ég fór að gráta og öskr-
aði að honum, „Hvað meinarðu?
Hvers vegna laugstu að mér?“
Hann stóð fyrir framan mig og
sagði hvað eftir annað, „Fyrir-
gefðu, fyrirgefðu. Ég vildi bara
vernda þig og Chelsea.“
Bókin kemur út á mánudag og
hefur hennar verið beðið með
mikilli eftirvæntingu. Búist er við
að hún rokseljist og hefur ein
milljón eintaka þegar verið prent-
uð af fyrsta upplagi.
Hillary segir að samband
þeirra hjóna hafi verið afar stirt
eftir að hann viðurkenndi sam-
bandið við Lewinsky. Hún segir að
ákvörðun sín um að bjóða sig
fram til öldungadeildar hafi átt
stóran þátt í að hjónabandið hélt
velli. „Ég og Bill töluðum um allt
önnur málefni heldur en framtíð
hjónabandsins. Með tímanum fór-
um við bæði að slaka á.“
Hillary var vígð inn í embætti
öldungadeildarþingmanns í janú-
ar árið 2001, sama mánuði og eig-
inmaður hennar lét af forseta-
embættinu. Hún segist ekki ætla
að bjóða sig fram til forseta
Bandaríkjanna á næsta ári en hef-
ur ekki útilokað framboð árið
2008. ■
HARARE, AP Stjórnarandstaðan í
Simbabve sagði í gær að einn með-
lima hennar hefði látist eftir að
hafa verið pyntaður af lögreglunni
og hermönnum í landinu.
Mótmæli hafa staðið yfir alla
vikuna í Simbabve í von um að
steypa Robert Mugabe forseta af
stóli eftir 23 ár í embætti.
Flestar búðir og skrifstofur
voru lokaðar í höfuðborginni
Harare í gær þrátt fyrir hótanir
yfirvalda gegn fyrirtækjum sem
taka þátt í mótmælum stjórnar-
andsstöðunnar í landinu.
Fyrir vikið hefur efnahagur
landsins versnað enn frekar. Aftur
á móti tókst lögreglunni að koma í
veg fyrir að stórar mótmælagöng-
ur væru haldnar. Að minnsta kosti
300 mótmælendur hafa verið
handteknir víðs vegar um
Simbabve síðan á mánudag.
Jerome McDonald Gumbo,
talsmaður ríkisstjórnar Simb-
abve, gagnrýndi á dögunum
stjórnarandstöðuna fyrir að setja
líf fólks í landinu úr skorðum með
mótmælunum. Hann gagnrýndi
einnig aðrar þjóðir fyrir að skipta
sér af ástandinu í landinu. „Um-
heimurinn verður að leyfa
Simbabve að taka sínar eigin
ákvarðanir. Hann má ekki skipta
sér af og hvetja almenning til að
berjast innbyrðis.“ ■
Borgarráð Reykjavíkur:
Nýr skóli í
Staðahverfi
SKÓLAMÁL Borgarráð Reykjavíkur
hefur samþykkt tillögu borgar-
verkfræðings um byggingu nýs
grunnskóla í Staðahverfi. Tillagan
var samþykkt í borgarráði með
fjórum atkvæðum, en fulltrúar
Sjálfstæðisflokksins sátu hjá við
atkvæðagreiðsluna. Fulltrúar
hans óskuðu bókunar þess efnis
að ekki hefði verið staðið við
væntingar íbúa hverfisins.
Tillagan hafði áður verið sam-
þykkt í Fræðsluráði en þar sátu
fulltrúar Sjálfstæðisflokksins
einnig hjá. Þar lögðu þeir fram
bókun þar sem gerður var fyrir-
vari um stærð skólans. ■
UMHVERFISMÁL Eigendur Heiðar-
fjalls á Langanesi hafa óskað eftir
fundi með A. Elisabeth Jones, að-
stoðarutanríkisráðherra Banda-
ríkjanna.
A. Elisabeth Jones kom til Ís-
lands í gær til viðræðna við hér-
lenda ráðamenn um framhald
varnarsamnings þjóðanna. Eig-
endur Heiðarfjalls segjast í bréfi
sem Jones var sent í gær vilja
ræða viðskilnað Bandaríkjahers á
Heiðarfjalli. Þar er mikið magn
úrgangs frá ratsjárstöð sem lögð
var niður 1970. Hvorki íslensk né
bandarísk stjórnvöld kannast við
að bera ábyrgð á úrganginum eða
mengun frá honum.
Í bréfinu til aðstoðarutanríkis-
ráðherrans er lögð áhersla á að
hvorki ríkistjórnin, utanríkisráðu-
neytið né starfsmenn þess séu
lögformlegir fulltrúar eigenda
Heiðarfjalls í málinu.
„Við viljum biðja yður að eiga
með okkur fund á meðan á heim-
sókn þinni til Íslands stendur og
reyna þar að finna lausn á þessu
alvarlega vandamáli,“ segja
fjallseigendurnir á Langanesi í
bréfinu til bandaríska ráðherr-
ans. ■
Uppsagnir á Raufarhöfn:
Efast um
lögmæti
ATVINNULÍF Verkalýðsfélag Raufar-
hafnar telur að fiskvinnslufyrir-
tækið Jökull hafi ekki farið að lög-
um þegar öllum starfsmönnum
fyrirtækisins var sagt upp störf-
um.
Forystumenn verkalýðsfé-
lagsins telja að stjórnendur Jök-
uls hafi brotið gegn lögum um
fjöldauppsagnir þar sem ekki
hafi verið haft raunverulegt sam-
ráð við trúnaðarmenn starfs-
manna áður en ákvörðun var tek-
in um uppsagnir. Félagið hefur
því krafist þess að uppsagnirnar
verði dregnar til baka. ■
AP/M
YN
D
HEIÐARFJALL
Eigendur Heiðarfjalls á Langanesi berjast enn fyrir því að úrgangur frá aflagðri ratsjárstöð
verði fjarlægður eða að frá honum verði gengið á forsvaranlegan hátt.
Eigendur Heiðarfjalls:
Vilja fá einkafund með
bandarískum ráðherra
MÓTMÆLI STÖÐVUÐ
Uppþotalögregla Simbabve stöðvar mót-
mælendur í borginni Harare. Stjórnarand-
staða landsins hefur hvatt til mótmæla í
þessari viku í von um að steypa Robert
Mugabe, forseta landsins, af stóli.
Mótmælandi lést í Simbabve:
Pyntaður af lögreglunni
AP
/M
YN
D
Erfiðasta ákvörðunin
að standa með Bill
Hillary Rodham Clinton segir ákvörðun sína um þingframboð hafa átt stóran þátt í að hún skildi
ekki við Bill Clinton eftir að upp komst um framhjáhald hans. Hún segist hafa orðið ævareið
þegar hann viðurkenndi að hafa logið að henni.
CLINTON OG LEWINSKY
Monica Lewinsky (með svarta alpahúfu)
horfir aðdáunaraugum á Bill Clinton er
hann fagnaði endurkjöri sínu til forseta
ásamt starfsfólki Hvíta hússins árið 1996.
Clinton viðurkenndi síðar að hafa átt í kyn-
ferðislegu sambandi við Lewinsky, sem þá
var lærlingur í Hvíta húsinu.
HILLARY
Hillary Rodham Clinton fær greiddar tæpar
580 milljónir króna fyrir útgáfu bókarinnar,
sem er 562 blaðsíðna löng.
AP
/M
YN
D
AP
/M
YN
D
Fríhafnardagar:
Vaskinn af
VERSLUN Hagkaup efna til Fríhafn-
ardaga í snyrtivörudeildum sín-
um til að fagna opnun nýrrar
snyrtivörudeildar í Skeifunni og
til að minna um leið á þá tíma-
skekkju sem stjórnendur fyrir-
tækisins telja fyrirkomulag Frí-
hafnarinnar í Leifsstöð vera.
Verð á snyrtivörum verður
lækkað sem nemur virðisauka-
skattinum og á það að sýna að
fjölmargir einkaaðilar eru færir
um að sinna þeim rekstri sem
ríkið stendur fyrir í Fríhöfninni
og er undanþeginn opinberum
gjöldum. ■