Fréttablaðið - 05.06.2003, Page 7
7FIMMTUDAGUR 5. júní 2003
MADRÍD, AP Björgunarmenn og sér-
fræðingar leituðu að líkamsleif-
um í braki farþegalestar sem lenti
í árekstri við vöruflutningalest
skammt frá bænum Chinchilla á
Spáni. Þegar hafa fundist lík 22
einstaklinga en óttast er um líf
fimm annarra sem talið er að hafi
verið um borð í farþegalestinni.
Hátt í 40 manns voru fluttir á
sjúkrahús og eru þrír þeirra al-
varlega slasaðir.
Eldur kviknaði í stjórnklefa
farþegalestarinnar og fremstu
vögnunum. Fremsti vagn vöru-
flutningalestarinnar kastaðist
yfir farþegalestina með þeim af-
leiðingum að hún lagðist saman og
gerði björgunarmönnum erfitt
um vik að ná líkum úr flakinu.
Flest líkin eru mjög illa farin og
hefur því þurft að grípa til DNA-
prófa til þess að bera kennsl á
hina látnu.
Báðir lestarstjórarnir létu líf-
ið í árekstrinum. Grunur leikur á
að mannleg mistök hafi valdið
slysinu. Talsmaður yfirvalda
segir að ýmislegt bendi til þess
að járnbrautastarfsmaður hafi
gefið lestarstjórunum vitlaust
merki. ■
MILLI VONAR OG ÓTTA
Hin nígeríska Fatima Usman bíður þess að
ljóst verði hvort hún og kærasti hennar
verði grýtt til bana fyrir að stunda kynlíf
utan hjónabands. Þau hafa áfrýjað dauða-
dómi sínum.
GEIR H. HAARDE
FJÁRMÁLARÁÐHERRA
Á fundi fjármálaráðherra Eystrasaltsráðsins
mun Geir gera grein fyrir þeim kerfisbreyt-
ingum sem gripið hefur verið til hérlendis
á undanförnum árum.
Fjármálaráðherrar funda:
Ræða þenslu
og hagvöxt
EFNAHAGSMÁL Fjármálaráðherrar
aðildarríkja Eystrasaltsráðsins
ræða um það hvernig hægt er að
örva hagvöxt án þess að auka
þenslu í efnahagslífinu á fundi í
Eldborg við Bláa lónið í dag.
Auk ofangreinds munu ráð-
herrarnir ræða um áhrif stækkun-
ar Evrópusambandsins á gengis-
þróunina, jafnt frá sjónarhóli nú-
verandi sem væntanlegra aðildar-
ríkja, sem og þeirra ríkja sem
standa utan Evrópusambandsins
eins og Íslands og Noregs.
Fjármálaráðherrar Norður-
landanna, Eystrasaltsríkjanna,
Þýskalands og Póllands hafa fund-
að árlega saman frá árinu 1996, en
í ár bætist Rússland í hópinn.
Fundurinn er haldinn í boði
Geirs H. Haarde fjármálaráð-
herra og á honum mun hann gera
grein fyrir þeim kerfisbreyting-
um sem gripið hefur verið til hér-
lendis á undanförnum árum og
lagt hafa grunninn að því hag-
vaxtarskeiði sem hér hefur ríkt.
Einnig mun ráðherra fjalla um
stöðu íslensks vinnumarkaðar,
mikla atvinnuþátttöku og stöðu
lífeyrismála. ■
Hafrannsóknastofnun:
Hlýr sjór
lokkar síld
SJÁVARÚTVEGUR Hafrannsókna-
stofnun segir að ástand sjávar og
lífríkis við landið bjóði beinlínis
upp á göngur úr norsk-íslenska
síldarstofninum á næstu vikum.
Vorleiðangur Hafrannsókna-
stofnunar leiddi í ljós mikla út-
breiðslu hlýsjávar á Íslandsmið-
um, mikinn hita og mikla seltu
norðanlands og austan. Átumagn
var yfir meðaltali á flestum stöð-
um.
Hafrannsóknastofnun segir að
þó ekki sé hægt að ganga að því
vísu bjóði staðan beinlínis upp á
síldargöngur á næstu vikum. Trú-
lega yrði einnig mikið af kol-
munna á Austfjarðamiðum fram
eftir sumri. ■
Á SLYSSTAÐ
Björgunarmenn og sérfræðingar leita að líkamsleifum í flaki farþegalestarinnar.
Farþegalest rakst á vöruflutningalest:
Á þriðja tug
fórst í lestarslysi