Fréttablaðið - 05.06.2003, Síða 13
13FIMMTUDAGUR 5. júní 2003
stærðir: 36-44 stærðir: 42-56
Full búð af frábærum
sumartilboðum
SKIPULAGSMÁL Verið er að undir-
búa byggingu margra nýrra lóða
í Fjarðabyggð. „Þetta eru hefð-
bundin hús: einbýlishús, tvíbýlis-
hús og fjölbýlishús,“ segir Krist-
inn Ívarsson, byggingafulltrúi í
Fjarðabyggð. Hann segir að
markmiðið í skipulagsmálum sé
auðvitað að þétta byggðina til að
hafa hagkvæmnina sem mesta.
Búist er við töluverðri aukn-
ingu íbúa í Fjarðabyggð vegna
byggingar virkjunar við Kára-
hnjúka og álvers í Reyðarfirði.
Kristinn segir að búið sé að ljúka
við skipulag vegna stækkunar
byggðarinnar. „Búið er að
stækka grunnskólana í Neskaup-
stað og á Eskifirði, og stækkun
grunnskólans á Reyðarfirði er í
bígerð,“ segir Kristinn. Einnig
eru uppi á teikniborðinu áætlan-
ir um byggingu íþróttamann-
virkja, en fyrir utan þær áætlan-
ir er ekki gert ráð fyrir stækkun
annara opinberra bygginga. ■
NÝBYGGINGAR Á REYÐARFIRÐI
Skipulag er tilbúið fyrir stækkun byggðar í
Fjarðabyggð.
Skipulagsmál í Fjarðabyggð:
Grunnskólar
stækkaðir
ÍRAN, AP Ayatollah Ali Khameini,
æðstiklerkur Írans, hefur vísað á
bug ásökunum Bandaríkjamanna
um að þjóðin haldi hlífiskildi yfir
liðsmönnum al Kaída-samtakanna
og vinni að þróun kjarnorku-
vopna.
Á fjöldafundi í gær sagðist
Khameini ekki óttast Bandaríkin.
„Hernaðarárás gegn Íran, sem er
merk þjóð með ungt fólk tilbúið til
að verja land sitt, yrði sjálfsmorð
fyrir árásaraðilann,“ sagði
Khameini en bætti við: „Íranska
þjóðin veit, eins og óvinurinn ætti
að vita, að yfirvöld þessa íslamska
ríkis vilja ekki fara í stríð við
neinn.“ ■
KHAMEINI
Khameini flytur ræðu í tilefni af því að 14
ár voru í gær liðin frá dauða Ayatollah
Khomeini, andlegs leiðtoga Írans.
Æðstiklerkur Írans óhræddur við Bandaríkin:
Innrás væri sjálfsmorð FUNDU FÍKNIEFNI Fíkniefnifundust í bíl í Kópavogi um
fimmleytið í fyrrinótt við reglu-
bundið eftirlit lögreglu. Ökumað-
ur, sem er á þrítugsaldri, var
einn á ferð og var hann handtek-
inn. Efnin sem fundust voru í
formi taflna og hvíts efnis. Þá
var einn ökumaður stöðvaður í
nótt vegna ölvunaraksturs.
HANDSÖMUÐU UNGLINGSPILT
Lögreglan hljóp uppi ungan mann
sem hafði stolið geisladiskum úr
bíl við Dalhús í Grafarvogi. Ráns-
fengur mannsins reyndist vera
kassi með fjörutíu geisladiskum.
Hann viðurkenndi þjófnaðinn.
■ Lögreglufréttir
AP
/M
YN
D