Fréttablaðið - 05.06.2003, Síða 15
FIMMTUDAGUR 5. júní 2003 0 árár
10 ra
0 árár
1 a
10 ra
10 ra
0 árár
1 a10ára
Laugavegi 83 s: 562 3244gjafir fyrir
þá sem versla
fyrir meira en
5.000
afmæli
fmæli
afmæli
10 áraafmæli
10 áraafm li
10 áraa
fm
æl
istilboð 5-12
júní
kínatoppar
2.990
jogging-
gallar
4.990
Peysur
2 fyrir 1
gallabuxur
3.990
fullt af
tilboðum í
gangi
sk
ór
3.
99
0
sa
nd
al
ar
3.9
90
og millifært í eigin þágu yfir
100 milljónir króna. Þetta var í
miðri fjárfestingargleðinni og
enginn innan Símans veitti því
eftirtekt fremur en
endurskoðandi fyrirtækisins
eða PriceWaterhouse Cooper
sem samdi útboðslýsingu vegna
ætlaðrar einkavæðingar. „Hvað
munaði svo sem um einn kepp í
sláturtíðinni?“ sagði einn heim-
ildarmanna Fréttablaðsins, sem
þá starfaði á Landssímanum.
En Þórarinn Viðar sat síður
en svo á friðarstóli sem
forstjóri. Aðeins ári eftir að lagt
var í fjárfestingu í @IP-Bell var
allt komið á hliðina og frumherj-
arnir voru horfnir. Skráning á
Nasdaq varð aldrei að veruleika.
Í fyrstu var nafni fyrirtækisins
breytt í Cascade en síðan
reyndu stjórnendur Símans í
örvæntingu að bjarga fjár-
festingunni með því að stofa
nýtt fyrirtæki, IP-fjarskipti, en
allt kom fyrir ekki og heims-
byltingin var fyrir bí.
Landssíminn sat uppi með
fjárhagstjón sem var á bilinu
300 til 500 milljónir króna, allt
eftir því hvernig það var reikn-
að út. Merkilegt þótti að í
útboðslýsingunni vegna sölu
Símans var eignin í @fyrirtæk-
inu metin á 130 milljónir króna.
Að baki þeirri eign voru
nokkrar verðlitlar tölvur og
deilar eða „routerar“.
Beðist vægðar
Aðeins ári eftir að Þórarinn
Viðar tók við forstjórastarfinu
var tekið að hitna ískyggilega
undir honum. Hann var sagður í
ónáð hjá Davíð Oddssyni forsæt-
isráðherra vegna þess að hann
hlýddi því ekki að segja af sér í
stjórn Þróunarfélagsins og Líf-
eyrissjóðsins Framsýnar og stóð
að auki í umfangsmiklum einka-
viðskiptum í nafni Stofna, sem
reyndar högnuðust um 50 millj-
ónir króna árið 2001 og með bók-
færðar eignir upp á 200 milljón-
ir króna. Á stjórnarfundi í Sím-
anum um páska 2001 bauðst Þór-
arinn Viðar til að leyfa endur-
skoðendum Símans að skoða
bókhald Stofna og sagði sögu-
sagnir um óeðlileg hagsmuna-
tengsl við Símann vera úr lausu
lofti gripnar. Boðið var ekki þeg-
ið.
Upp úr sauð þegar sást til Þór-
arins Viðars að snæða með Jóni
Ólafssyni, forstjóra Norðurljósa,
á veitingastaðnum La Primavera
þar sem samið var um að breyta
100 milljóna króna vanskila-
skuldum Norðurljósa í lán. Þórar-
inn Viðar fékk fund með Davíð
Oddssyni forsætisráðherra þar
sem hann baðst vægðar en hlaut
litlar undirtektir. Í október árið
2001 var Þórarni Viðari ekki
lengur sætt á forstjórastóli og
hann vék úr starfi tímabundið að
því er sagt var. Í stað hans kom
endurskoðandinn Óskar Jósefs-
son. Sýnt þótti að einkavæðing
Landssímans, sem var megin-
verkefni Friðriks og Þórarins,
væri í uppnámi.
Um áramótin 2001 og 2002 var
ákveðið að Þórarinn Viðar hætti
störfum. Starfslokasamningur
hans var upp á 37 milljónir króna
enda var ákvæði í ráðningar-
samningi hans um að hann hefði
5 ára uppsagnarfrest. Óskar hélt
áfram sem forstjóri til bráða-
birgða og Síminn var með þrjá
forstjóra á launum, þar af tvo á
uppsagnarfresti.
Litli Landssímamaðurinn
Snemma á árinu 2002 dundu
hneykslismálin á þeim Friðriki
og Þórarni. Upphafið var að í
febrúar var sagt frá því að Þór-
arinn Viðar hafði látið Símann
greiða fyrir tré og gróðursetn-
ingu við sumarbústað hans á
Þingvöllum. Þá hafði forstjórinn
látið leggja ISDN-línu að bú-
staðnum með ærnum tilkostn-
aði. Friðrik stjórnarformaður
brá skjótt við og lét leita þeirra
sem hefðu lekið upplýsingum úr
fyrirtækinu. Nokkru síðar vís-
aði hann máli Þórarins til endur-
skoðanda fyrirtækisins. Með því
tryggði hann reyndar að niður-
staðan yrði ekki opinberuð
nema með leyfi stjórnar. Næsta
mál sem kom upp sneri að Frið-
riki sjálfum þegar samningur-
inn við Góðráð var upplýstur og
sagt frá því að fyrirtækið hefði
rukkað Símann um 7,6 milljónir
króna fyrir ráðgjafarstörf á ár-
inu 2001. Friðrik brást illa við
þeim uppljóstrunum sem átt
höfðu sér stað varðandi hann og
Þórarin Viðar og leit var hafin
að þeim sem hefði fundið Góð-
ráð í bókhaldskerfi Landssím-
ans. Einnig kom upp að Síminn
hafði beint viðskiptum í
nokkrum mæli til Hótels Rangár
á Suðurlandi en Friðrik var
stjórnarformaður hótelsins.
Hann sór af sér afskipti þar.
Nokkrum dögum eftir uppljóstr-
anirnar fundust starfsmenn sem
játuðu að hafa lekið upplýsing-
um. Annar sagðist hafa haft
frumkvæði að þeirri leit og var
umsvifalaust rekinn. Litli
Landssímamaðurinn, eins og
hann kallaðist, varð að fara sam-
dægurs. Hinn fékk áminningu.
Í framhaldi af þessum upp-
ljóstrunum sögðu tveir stjórnar-
menn af sér vegna trúnaðar-
brests við formanninn. Á aðal-
fundi Símans nokkru síðar var
allri stjórninni skipt út og Frið-
rik missti stjórnarformennsk-
una. Tvíeykið sem ætlaði að
gera Símann að alþjóðlegu stór-
veldi var horfið af vettvangi og
sjóðir Símans voru rýrari en
fyrr. Þar bar hæst tapið vegna
@IP-Bell en í bókhaldinu var
einnig á sveimi 150 milljóna
króna gat sem enginn vissi af
nema Sveinbjörn féhirðir.
Ríkisendurskoðandi skilaði
niðurstöðu á máli Þórarins
Viðars en ný stjórn Símans
undir forsæti Rannveigar Rist
ákvað að niðurstöðurnar kæmu
ekki almenningi við. Lögregla
fékk málið aldrei til umfjöllunar
þrátt fyrir að ljóst væri að
forstjórinn hefði haft nokkur
hundruð þúsund af fyrirtækinu.
En lögreglan átti þó eftir að fá
nóg að gera síðar við að rann-
saka bókhald Landssímans. Í
júní 2002 var Brynjólfur
Bjarnason ráðinn sem forstjóri
Símans. Hann er þaulreyndur og
virtur viðskiptamaður sem um
árabil stjórnaði Granda hf.
Hlutverk hans var að endur-
reisa ímynd Landssímans ásamt
Rannveigu Rist. En það voru
ekki öll kurl komin til grafar.
Misferli uppgötvast
Í maímánuði síðastliðnum varð
tilviljun til þess að í ljós kom að
árið 1999 hafði Sveinbjörn aðalfé-
hirðir Símans tekið ófrjálsri hendi
langt á annað hundrað milljónir
króna. Einkafyrirtækið Alvara
lífsins, sem var í eigu Kristjáns
Ra Kristjánssonar, bróður Svein-
björns, og Árna Þórs Vigfússonar,
stofnenda Skjáseins, hafði ekki
skilað inn ársreikningi. Ríkis-
skattstjóri hóf þá rannsókn sem
leiddi í ljós tengslin við Landssím-
ann og fjárdrátt sem Sveinbjörn
hefur játað. Sveinbjörn, Árni Þór
og Kristján Ra voru allir hnepptir
í gæsluvarðhald og viðamikil
rannsókn hófst á bókhaldi Símans
til að rekja slóð Sveinbjörns, sem
talin er nái allt fram á síðustu
daga.
Mesta undrun í málinu vekur
að stjórnendur Símans skyldu
sofa á verðinum. Orðrómur hafði
lengi verið á sveimi um mikil um-
svif Sveinbjörns í einkarekstri
en enginn aðhafðist neitt fyrr en
málið uppgötvaðist utan Símans.
Við nánari skoðun kom í ljós að
svo virtist sem gjaldkerinn hefði
á síðustu misserum haldið áfram
að draga sér fé til að standa und-
ir rekstri einkafyrirtækja sinna.
Óháður endurskoðandi hefur ver-
ið fenginn til þess að fara yfir
bókhaldið og víst þykir að
Brynjólfur Bjarnason forstjóri
eigi eftir að taka rækilega til í
starfsmannamálum Símans. Enn
á eftir að koma í ljós hve miklu
Síminn tapaði á aðalgjaldkeran-
um sem átti sitt blómaskeið í tíð
Þórarins Viðars og Friðriks Páls-
sonar.
rt@frettabladid.is
ÞÓRARINN VIÐAR
ÞÓRARINSSON
Lét Símann gróður-
setja fyrir sig.