Fréttablaðið - 05.06.2003, Qupperneq 21
19FIMMTUDAGUR 5. júní 2003
hvað?hvar?hvenær?
2 3 4 5 6 7 8
JÚNÍ
Fimmtudagur
Samningur Schumacher
að renna út:
Ákvörðun
í haust
FORMÚLA 1 Umboðsmaður Michael
Schumacher, margfalds meistara
í Formúlu 1 segir að líklega ráðist
framtíð hans fyrir september.
„Ef hann ákveður að halda
áfram að keyra verður hann ör-
ugglega áfram hjá Ferrari-liðinu,“
sagði Willi Weber, umboðsmaður
ökumannsins til margra ára.
Schumacher reynir nú við sinn
sjötta heimsmeistaratitil en
samningur hans við Ferrari renn-
ur út árið 2004. Hann hefur sjálf-
ur fengið nýtt tilboð í hendurnar
og vill taka sér góðan tíma. ■
Losnar um tangarhald
Breta í róðri:
Þjóðverjar
hirða gullið
SIGLINGAR Þjóðverjar sigruðu á
fyrsta hluta heimsmeistara-
mótsins í róðri sem fram fer á
Ítalíu en keppnin er í nokkrum
hlutum og fer sá næsti fram í
Þýskalandi seinna í þessum
mánuði.
Þýska liðið vann fjórar af
þeim fjórtán greinum sem keppt
var í og hlaut silfur í tveimur
öðrum. Ítalir urðu í öðru sæti en
stórlið Breta, sem hafa verið
afar sigursælir í róðrarkeppnum
gegnum tíðina, létu sér lynda
þriðja sætið. ■
KÖRFUBOLTI „Hvorki ég né aðal-
þjálfarinn höfum áður séð jafn
fjölhæfan leikmann á þessum
aldri,“ sagði Patrick Border,
framkvæmdastjóri TBB Trier, um
Jón Arnór Stefánsson, sem tekur
þátt í NBA-nýliðavalinu sem fram
fer þann 26. júní næstkomandi.
„Leikni hans með knöttinn og leið-
togahæfileikar hans eru slíkir að
hann getur vel leikið í sterkari
deild en nú er.“
Blaðamenn vefsíðunnar NBA-
draft.net telja Jón eina af upp-
rennandi stjörnum í Evrópu og
líkja honum helst við Marko
Jaric, leikmann Los Angeles
Clippers, en sá þykir hafa spilað
vel síðan hann færði sig frá
meistaraliði Bologna á Ítalíu fyr-
ir þremur árum.
Gaman er að geta þess að sam-
kvæmt sömu síðu kemur Jón frá
smábænum Svíþjóð á Íslandi. ■
JÓN ARNÓR
Draumurinn er að komast að í NBA.
Íslendingar eiga mann í nýliðavali NBA:
Upprennandi stjarna í Evrópu
SAN ANTONIO SPURS
Hver veit nema Jordan kaupi það.
Skórnir komnir upp
á hillu:
Jordan
hættir aldrei
KÖRFUBOLTI Körfuboltasnillingur-
inn Michael Jordan er ekkert á
því að setjast í helgan stein. Nú
berast fregnir af því að hann hafi
kannað að kaupa sig inn í lið
Milwaukee Bucks. Ef af yrði tæki
hann við sem forseti félagsins og
sérlegur ráðgjafi.
Flestir áttu von á að sjá hann
aftur sem stjórnarmann hjá
Washington Wizards, sem hann
spilaði með í vetur, en forseti fé-
lagsins hafði ekki áhuga á því.
„Jordan veit hvar við stönd-
um,“ sagði Bob Johnson, eigandi
Milwaukee. „Hann veit hvað er í
boði hér og við bíðum bara eftir
að hann gefi okkur svar.“ ■
15.30 Sýn
Sýnt frá fyrsta leik San Antonio Spurs og
New Jersey Nets í úrslitum NBA-deildar-
innar (e).
16.50 RÚV
Smáþjóðaleikarnir á Möltu (e).
18.00 Sýn
Olíssport. Fjallað er um helstu íþrótta-
viðburði heima og erlendis.
18.30 Sýn
Western World Soccer Show. Heimsfót-
bolti Western World.
20.00 Sýn
US PGA Tour 2003. Þáttur um banda-
rísku mótaröðina í golfi.
21.00 Sýn
European PGA Tour 2003. Þáttur um
evrópsku mótaröðina í golfi.
22.00 Sýn
Football Week UK. Vikan í enska boltan-
um.
22.20 RÚV
Smáþjóðaleikarnir á Möltu. Samantekt
af keppni dagsins.
22.30 Sýn
Olíssport. Fjallað er um helstu íþrótta-
viðburði heima og erlendis.
23.00 Sýn
Fastrax 2002. Hraðskreiður þáttur þar
sem ökutæki af öllum stærðum og
gerðum koma við sögu.
23.30 Sýn
HM 2002. Sýnt frá leik Svía og Argent-
ínumanna (e).