Fréttablaðið - 05.06.2003, Qupperneq 24
Nú eru jólin hjá Led Zeppelin-aðdáendum því nýlega voru
settir á markað tveir feitir pakk-
ar: Þreföld hljómleikaplata með
áður óútgefnu efni. Á How the
West Was Won er hljómsveitin í
sínu allra besta formi og flytur
nokkur laga sinna. Og við sama
tækifæri kom út Led Zeppelin-
DVD þar sem getur að líta hljóm-
sveitina á sviði og ýmislegt ítar-
efni, hvalreki á fjörur áhuga-
samra.
Lögðu línuna fyrir þung-
arokkið
Auk þess að eiga 4. söluhæstu
plötu frá upphafi (Eagles: Their
Greatest Hits, Michael Jackson
með Thriller, Pink Floyd: The
Dark Side of the Moon og þá Led
Zeppelin IV) þá lagði Led Zeppel-
in línuna fyrir þungarokkið, stað-
reynd sem margir Zeppelin-aðdá-
endur verða að kyngja hvort sem
þeim líkar betur eða verr, já eða
lofa eftir atvikum. Ekki vegna
kröftugs flutnings á blústónlist
heldur fremur vegna þess hvern-
ig þeir döðruðu við hið dularfulla,
goðsagnakennda, svartagaldur og
blönduðu ýmsum tónlistarstefn-
um í einn graut og gerðu að sín-
um. Þeir veittu sjaldan viðtöl
þannig að eina aðgengi aðdáend-
anna voru plöturnar og tónleik-
arnir. Þetta leiddi til þess að ótrú-
legustu sögusagnir um lifnaðar-
hætti meðlimanna grasseruðu. Sú
staðreynd að þeir gengu í berhögg
við fjölmiðla og markaðsöfl ýmis
varð síður en svo til að draga úr
frægð þeirra. Þeir neituðu að gefa
út smáskífur samhliða breiðskíf-
um sínum, líkt og tíðkast. Það
varð til þess að styrkja plötur
þeirra sem heild – enn eitt þeirra
atriða sem þungarokkarar seinni
tíma tóku sér til fyrirmyndar.
Led Zeppelin á rústum
Yardbirds
Led Zeppelin var stofnuð á
rústum hinnar sögufrægu hljóm-
sveitar Yardbirds, sem reyndar
heimsótti Ísland nýverið. Jimmy
Page, sem starfaði áður sem
leigugítarleikari í hljóðverum,
hafði gengið til liðs við hljóm-
sveitina skömmu áður en hún
lagði upp laupana. Hann spilaði á
Little Games – síðustu plötu
þeirra, sem kom út árið 1967. Að
þeirri plötu vann einnig John Paul
Jones við strengjaútsetningar.
Yardbirds voru tiltölulega aðgerð-
arlitlir það árið og Page lék meðal
annars í útsetningu John Pauls á
lagi Donovans Hurdy Gurdy Man.
Svo gerist það að Yardbirds-
mennirnir Keith Relf og James
McCarty yfirgefa hljómsveitina
og eftir eru þeir Page og bassa-
leikarinn Chris Dreja með nafnið
og skuldbindingar um að ljúka
skráðri tónleikaferð. Dreja hljóp
einnig úr skaftinu og eftir var
Page einn, nýjasti maðurinn í
hljómsveitinni. Eftir ýmsar þreif-
ingar verður það úr að John Paul
Jones gengur til liðs við Page, þeir
náðu í Robert Plant úr hljómsveit
sem kallaðist Hobbsweedle og
fljótlega eftir það tókst þeim að
mynstra trommarann John Bon-
ham á skútuna. Bonham hafði ver-
ið með Plant í hljómsveit sem hét
The Band of Joy og var hann með
ýmis tilboð í vasanum arðvæn-
legri á þeim tíma, en hann lét til
leiðast. Saman fóru fjórmenning-
arnir af stað sem The New
Yardbirds, og léku bókaða tón-
leika í hljómleikaferð um Skand-
inavíu síðla septembermánaðar
árið 1968. Næsta mánuð hljóðrit-
uðu þeir sína fyrstu plötu á innan
við 30 tímum. Um það leyti
breyttu þeir einnig nafninu, Led
Zeppelin leit dagsins ljós og stiga-
gangurinn til himna var lagður.
Gullaldarárin
Hljómsveitin gerði plötusamn-
ing við Atlantic Records í Banda-
ríkjunum og í upphafi árs 1969
fóru þeir í sína fyrstu hljómleika-
ferð um Bandaríkin. Allt það ár
spiluðu þeir látlaust auk þess sem
hljómsveitin hljóðritaði Led Zepp-
elin II. Fyrsta platan fór á topp 10
lista á Bandaríkjunum og þessi
gerði gott betur, fór á toppinn
tveimur mánuðum eftir að hún
kom út og þar var hún í sjö vikur.
Þriðja platan kom út árið 1970 og
þykir hún þyngri og áhrif frá
breskri þjóðlagatónlist áberandi.
Og hæstu hæðum náði hljómsveit-
in með fjórðu plötu sinni, Led
Zeppelin IV, þar sem eru meðal
annars lögin Black Dog og
Stairway to Heaven – sem sló
samstundis í gegn. Hljómsveitin,
söm við sig, gaf lagið aldrei út á
smáskífu. Stairway to Heaven er
mest spilaða lag allra tíma í út-
varpi, þeirra sem ekki hafa verið
gefin út á smáskífu. Þó að platan
hafi aldrei náð á toppinn í Banda-
ríkjunum hefur hún selst í yfir 22
milljónum eintaka, síðast þegar
fréttist, og er enn að seljast.
Þegar þarna er komið sögu,
það er við að fylgja Led Zeppelin
22 5. júní 2003 FIMMTUDAGUR
Collector 33
Rafmagnssláttuvél
1000W rafmótor
27 ltr grashirðupoki
Euro 45
Bensínsláttuvél
4 hestöfl B&S mótor
55 ltr grashirðupoki
Silent 45 Combi
Bensínsláttuvél
4 hestöfl B&S mótor
55 ltr grashirðupoki
Verð: 17.900 Verð: 34.900 Verð: 44.900
Hágæða sláttuvélar
Vetrarsól - Askalind 4 - Kópavogi - Sími 564 1864
A
U
G
L
Ý
S
I
N
G
A
S
E
T
R
I
Ð
JOHN BONHAM
Þótti ótrúlega góður á trommusettið og
villimannslegur eftir því. Lífernið var í stíl
og hann endaði sinn feril hörmulega, með
því að kafna í eigin ælu.
Íslenska Zeppelin-hljómsveitin:
Fiðluboginn og allur pakkinn
Jájá, við tókum bara Zeppelin-lög. Þetta var magnað band og
ég með fiðlubogann að hætti Page
og allur pakkinn,“ segir Sigurður
Gröndal gítarleikari, sem nú er
reyndar orðinn bóndi í nágrenni
Hveragerðis.
Led Zeppelin hefur haft tölu-
verð áhrif hér á landi sem annars
staðar og á árunum 1994 til 1995
var stofnaður sérstakur Zeppelin-
klúbbur á Íslandi. Í tengslum við
það var sett saman hljómsveit
með valinn mann í hverju rúmi:
Sigurður Gröndal, Jóhann Ás-
mundsson, Gunnlaugur Briem,
Atli Örvarsson og söngvari var
Jóhannes Eiðsson. Sigurður segir
svo frá að þetta hafi verið sérlega
skemmtilegt dæmi og eftir spila-
mennsku með þeirri hljómsveit
hafi hann verið þreyttari en eftir
fimm tíma ballspilamennsku við
að leika píkupopp með Stebba
Hilmars. „Við lögðum mikið í
þetta þó að um tilfallandi grín
væri að ræða, og ótrúlegt að menn
skyldu hafa nennt þessu – heil-
miklar æfingar fylgdu. Gulli
Briem fór meira að segja að
reykja Salem Light, hann var orð-
inn svo mikill töffari, og fór úr að
ofan. Við urðum alveg undrandi.
Hvort hann fékk sér ekki Jack
Daníels líka, því það er fílíngur-
inn sem skiptir máli. Það þýðir
ekkert að ætla sér að telja Bon-
ham út. Og engin hljómsveit er
betri en trommarinn. Jói náði
röddinni ótrúlega vel og lagði sig
allan fram, missti tvö kíló á
hverju giggi.“
Sigurður Gröndal segist ekki
hafa fengið að fara á Led
Zeppelin-tónleikana 1970, enda
var hann bara 11 ára pottormur,
og varð að láta sér nægja að lesa
um þann viðburð í Alþýðublaðinu.
PAGE EN EKKI SIGGI GRÖNDAL
„Gulli Briem fór meira að segja að
reykja Salem Light og fór úr að
ofan, svo mikill töffari var hann
orðinn – við urðum alveg undrandi.“
Loftskip rokksins
Led Zeppelin er einhver
sögufrægasta hljómsveit
rokksögunnar. Þeir voru
fjölmiðlafælnir og voru fyr-
ir vikið engir augnakarlar
blaðamanna. Það kom ekki
í veg fyrir gífurlegar vin-
sældir og um þá spunnust
miklar sögusagnir. Þá varð
hljómsveitin fyrir miklum
áföllum sem riðu henni á
slig. Hér er saga Led Zepp-
elin í stórum dráttum.
LED ZEPPELIN
John Paul Jones, Robert Plant, John Bon-
ham og Jimmy Page. Kannski ekki fríðasta
bandið í bransanum, en örugglega eitt það
allra flottasta.
Led Zeppelin