Fréttablaðið - 05.06.2003, Qupperneq 25
Ég stakk upp á þessu við ÍvarEskeland, sem var forstjóri
Norræna hússins og fram-
kvæmdastjóri fyrstu listahátíðar-
innar sem haldin var 1970, að við
fengjum einhverja öfluga rokk-
hljómsveit til landsins í tengslum
við hátíðina,“ segir Sveinn Rúnar
Hauksson læknir.
Sveinn var einn helsti hvata-
maður þess að Led Zeppelin kom
hingað til landsins og hélt ein-
hverja eftirminnilegustu rokktón-
leika sem hér hafa verið. Þeir sem
fóru eru enn að tala um þetta æv-
intýri og þeir sem ekki komust
naga á sér handarbökin. Sveinn
segir svo frá að ekki hafi þótt
nógu fínt að bendla hina æruverð-
ugu Listahátíð við rokktónlistina
en framkvæmdastjórinn hafi séð
peningana í þessu.
„Þetta var á endanum sam-
þykkt og ég gerði óskalista yfir
þær hljómsveitir sem mig langaði
að fá hingað: Á listanum voru
Rolling Stones og John Lennon.
Bítlunum var nú ekki til að dreifa
þá. Og ef ég man rétt var Led
Zeppelin í 3. sæti. Listinn var
sendur til umboðsmanns í London
sem fenginn var til að vinna í
þessu fyrir okkur. Ég var einmitt
að rekast á nýlega minnispunkta
frá þessum tíma á ensku sem ég
sendi út honum til gagns – svona
til að kynna Ísland í augum þeirra.
Lofaði land og þjóð í hástert og
Listahátíðina sem slíka,“ segir
Sveinn. Óskaplegur spenningur
myndaðist í tengslum við miðasöl-
una og í fyrsta skipti sem fólk tók
upp á því að vaka yfir nótt til að
tryggja sér miða. „Til að gera
langa sögu stutta seldist upp á
tónleikana og gerði þetta gott fyr-
ir fjármál Listahátíðar sem og
lukku meðal rokkaðdáenda.“ ■
23FIMMTUDAGUR 5. júní 2003
SVEINN RÚNAR
HAUKSSON LÆKNIR
Ekki þótti mjög fínt að bendla
hina háæruverðugu Listahátíð
við þetta, en þeir sáu sér hag
í þessu fjárhagslega.
Zeppelin í Laugardalshöll 1970:
Zeppelin bjargar Listahátíð
III og Led Zeppelin IV eftir, var
hljómsveitin farin að hægja á
ferðinni, lék á færri hljómleikum
og einbeitti sér að stærri leik-
vöngum þess í stað. Árið 1972
drógu meðlimirnir sig í hlé frá
sviðsljósinu og hófu hljóðritun
plötu sem fékk nafnið „Houses of
the Holy“ en þar má greina áhrif
frá funki og jafnvel reggí auk
vörumerkis þeirra: Kraftmikið
blúsrokk með þjóðlagaeinkenn-
um. Platan fór beint á toppinn í
Ameríku og Bretlandi og lagði
grunninn að hljómleikaferð árið
1973 um Ameríku sem sló öll met
hvað aðsókn snerti, mörg hver
met sem Bítlarnir höfðu áður
slegið. Hljómleikar þeirra í Madi-
son Square Garden í júlí voru
kvikmyndaðir og urðu uppistaðan
í myndinni The Song Remains the
Same.
Banvæn áföll
Árið 1974 var rólegt í sögu
hljómsveitarinnar en þá stofnuðu
þeir eigið hljómplötufyrirtæki:
Swan Song, sem
gaf meðal ann-
ars út plötur
með Bad
Company og the
Pretty Things.
Tvöfalda platan
P h y s i c a l
Graffiti kom út
árið 1975 og
þegar Led
Zeppelin voru
að leggja drög
að hljómleika-
ferð til að fylgja henni eftir lenti
Robert Plant og kona hans í alvar-
legu bílslysi sem urðu til að þau
áform urðu að engu. Plant þurfti
árið til að jafna sig á því áfalli –
áfalli sem gaf tóninn fyrir það
sem koma skyldi.
Vorið 1976 kom platan Presence
út og þó hún færi á toppinn bæði í
Ameríku og Englandi voru viðtök-
urnar blendnar, til að mynda dóm-
ar ekki mjög góðir. Hljómsveitin
átti reyndar því að venjast, en
kvikmyndin gekk ekkert of vel en
hún birtist sjónum almennings
haustið 1976.
Hljómsveitin
hélt af stað í
hljómleikaferð
sem reyndist
endaslepp því
eftir fáeina
mánuði dó
Karac, sex ára
sonur Plants,
úr sýkingu í
maga. Hljóm-
leikaferðinni
var snarlega
aflýst og um tíma leit út fyrir að
dagar Led Zeppelin væru einnig
taldir. Plant dró sig algerlega í hlé
í hálft annað ár. Dánarvottorð
hljómsveitarinnar var hins vegar
ótímabært því Led Zeppelin hóf
upptökur í stúdíói Abba í Svíþjóð
1979. Ári síðar fór hljómsveitin í
stutta hljómleikaferð um Evrópu.
Platan In Through the Out Door
kom út það ár og toppaði listana
beggja vegna Atlantshafsins. Síðla
árs hóf hljómsveitin æfingar í
húsakynnum Jimmy Page til að
undirbúa hljómleikaferð um Am-
eríku. Það er svo 25. september,
við þá æfingalotu, sem John Bon-
ham, þá 32 ára gamall, fannst lát-
inn í rúmi sínu. Hann hafði drukk-
ið stíft daginn áður og kafnaði í
eigin ælu. Fljótlega eftir það til-
kynntu meðlimir hljómsveitarinn-
ar að hún væri hætt störfum – þeir
treystu sér ekki til að halda áfram
án Bonhams. Félagarnir sneru sér
að sólóferli hver um sig og stúdíó-
vinnu. Page gekk frá óútgefnum
upptökum sem komu út undir
nafninu Coda árið 1982. Þeir hafa
komið saman stöku sinnum við
sérstök tækifæri, eins og á Live
Aid-tónleikunum, og Plant og Page
komu saman árið 1994 til að spila á
MTV Unplugged tónleikum. Þær
upptökur seldust undir nafninu
Unledded upp í platínu en viðtök-
urnar ollu þó vonbrigðum. Næsta
ár fóru Page og Plant í tónleikaferð
saman og gerðu stúdíóplötuna
Walking into Clarksdale, en sala
þeirrar plötu stóð engan veginn
undir væntingum og enn skildu
leiðir með tvíeykinu.
jakob@frettabladid.is
TVÍEYKIÐ PAGE OG PLANT
Jimmy Page þótti og þykir einn allra flinkasti
gítarleikari sögunnar og rödd Plant ein sú öfl-
ugasta, enda þurfti skerandi rokkraust til að
brjótast í gegnum „hljóðmúrinn“.
Mörkinni 6, sími 588 5518.
Opið 9-18 virka daga og 10-15 laugardaga.
Fallegar
Regnkápur
Frá 4900 kr
Hattar og húfur
Salernisgámar
Til sölu eru tveir 20 feta salernisgám-
ar. Í hvorum gám eru tvö salerni, tvær
sturtur auk handlauga. Gámarnir eru
snyrtilegir og auðvelt að tengja þá raf-
magni vatni og frárennsli. 60 lítra
hitakútur er í hvorum gám. Góð lausn
fyrir tjaldsvæði, útivistarsvæði, vinnu-
flokka og þess háttar. Auðvelt að fjar-
lægja sturturnar og útbúa kaffistofu.
Upplýsingar í síma
862 2279