Fréttablaðið - 06.06.2003, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 06.06.2003, Blaðsíða 30
6. júní 2003 FÖSTUDAGUR22 VIEW FROM THE TOP kl. 4, 6, 8 og 10 JOHNNY ENGLISH kl. 4 og 6 HOW TO LOOSE ... kl. 8 og 10.10 KANGAROO JACK kl. 4, 6, 8 og 10Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10 b.i. 16 ár Sýnd kl. 5, 7, og 10 b.i. 12 ára kl. 5NÓI ALBINÓIRESPIRO Sýnd kl. 4, 6, 8, og 10 b.i. 12 ára Sýnd í lúxus kl. 5.30, 8 og 10.30 TÖFRABÚÐINGURINN m/ísl. kl. 4 kl. 6JOHNNY ENGLISH Tvöföld sýning í stóra salnum kl. 8 THE MATRIX/MATRIX RELOADED kl. 6, 8 og 10 b.i. 12 Sýnd kl. 6, 8 og 10 b.i. 12 ára Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8, 10.10 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 Sýnd í lúxus kl. 6, 8.30 og 11 kl. 5,45, 8 og 10.15HOW TO LOSE A... XMEN kl. 5, 8 og 10.40 bi 12 SKÓGARLÍF 2 kl. 4 Fréttiraf fólki TÓNLIST Sumarið er komið eins og flestir vita og margt er bardúsað í tilefni af illa klæddu fólki, rigningu og skordýrafári. Útgáfufyrirtækið Edda stendur til að mynda að Ís- lensku sumarsafnplötunni „Halló halló halló“ sem kom út í gær. „Hér er ekki um þessa venjulegu safn- plötu að ræða, þegar lög eru tínd til af öðrum útgáfum; sum laganna voru beint eða óbeint samin fyrir þennan disk eða þá eru að koma hér út í fyrsta skipti,“ segir Skúli Helgason. „Hugsunin á bak við batteríið var að gera vandaða sum- arplötu fyrir alla fjölskylduna og blanda saman alls konar tónlist. Við hjá Eddu settum okkur svo í sam- band við þjóðþekkt nöfn og vorum hvatamenn að nýju efni frá ýmsum gömlum brýnum.“ Skúli bendir sérstaklega á nokk- ur lög sem brjóta blað: „Súellen eru með nýtt lag eftir fjölmörg þögul ár og Raggi Bjarna syngur fyrsta nýja íslenska lagið sitt í háa herr- ans tíð (ef ekki eru taldar með upp- tökur á jólalögum), lagið Skuggi eftir Karl Olgeirsson. Hljómar eiga svo sérstaklega eftirtektarverða innkomu á þessari útgáfu, lagið Við saman, þeirra fyrsta nýja lag síðan 1974.“ Safnplatan dregur nafn sitt af nýju lagi Stuðmanna, en þeir eiga tvö lög á plötunni. Einnig eru nokkrar perlur teknar fyrir í nýjum búningi. Regína Ósk syngur Don’t Try to Fool Me eftir Jóhann G. Jó- hannsson, en 30 ár eru síðan sú klassík leit fyrst dagsins ljós, og Eivör Pálsdóttir syngur svo nýtt lag eftir Björgvin Guðmundsson við hina angurværu barnagælu Sofðu unga ástin mín, svo dæmi séu tekin. „Aðal disksins er þessar eldri sveitir og þjóðþekktir popptilburð- ir, en þó læðast nokkur lög af yngri kynslóðinni með, Bang Gang-liðar taka ofursmellinn Stop in the Name of Love og Jagúar er með fönkslag- ara í sólina til dæmis.“ Annað efni fetar milliveg þarna á milli, til að mynda Páll Óskar og Milljónamæringarnir, Borgardæt- ur, Papar og margt, margt fleira. Skúli fékk hugmyndina að plöt- unni á síðasta ári en hefur verið með hana í fullri vinnslu og sem að- almál síðan um áramótin. Nú þegar komið er að útgáfu er hann þess fullviss að vel hafi tekist til. „Þó að ég sé auðvitað ánægður með sögu- legt gildi útgáfunnar, ef svo stórt má að orði komast, þá er þetta aðal- lega á heildina litið stútfull plata af góðu efni, og það var jú hugmynd- in, diskur sem klikkar ekki í bílinn þegar keyrt er í fríið,“ segir Skúli. david@frettabladid.is Halló Halló Halló! Edda útgáfa gaf út safnplötu í gær þar sem saman eru komnir margir af ástkærustu flytjendum þjóðarinnar í bland við yngri sveitir. Fréttablaðið tók útgáfustjórann, Skúla Helgason, í spjall til að fá botn í það hvort hér væri eitthvað nýtt á ferð. Chester Bennington, söngvari írokk-rapp ofurgrúppunni Linkin Park, fékk svo ægilega í bakið að flytja þurfti piltinn á spít- ala með hraði, og það sem meira er, hljómsveitin aflýsti tólf tónleik- um í Evróputúr sínum 7. til 23. júní. Hljómsveitarmeðlimir hafa ekkert sagt um hvort þeir ætli að halda aukatónleika síðar til að bæta upp fyrir þetta, en hljóm- sveitin er með þéttbókaða dag- skrá. Í byrjun júlí kemur hún fram í Bandaríkjunum á hátíðinni Summer Sanitarium með sveitum eins og Metallica og Limp Bizkit. Ef meiðsli Chesters reynast alvar- leg gætu þau þó haft áhrif á þá tónleika líka. Gríðarlegur áhugi er fyrir syk-urstráknum Justin Timberlake í Bretlandi. Hann er nú á leið í tón- leikaferðalag um landið og miðasölu fer bráðum að ljúka; 14 miðar á tónleika hans seljast hverja sekúndu og fyrsta tvo og hálfa tímann seldust 130.000 miðar. Aukatón- leikar voru skipulagðir strax en samt er búist við stútfullu húsi hvar sem drengurinn treður upp. Í öðrum fréttum af íðilfagrapoppvælaranum kemur fram að Calvin Klein hafi sent Justin 50 pör af boxer-nærbuxum með kveðju. Þetta gerði Klein vegna þess að drengurinn sagði í viðtali að hann skipti sex sinnum um nærföt á dag og hann væri alltaf í CK boxerum. Notuðum nærbuxum hendir hann svo. Ewan McGregor hefur leikið ífjölmörgum myndum um ævina og í mörgum þeirra hafa verið ást- arsenur. Kona kappans, Eve, sem er franskur leikmyndasmið- ur, segist oft verða afbrýð- isöm vegna þess. Hún náði að hemja tilfinning- ar sínar gagn- vart atriðum eiginmannsins móti stórleikkonunum Nicole Kidman og Cameron Diaz eða gervimökum hans með Önnu Friel og Rachel Weisz, en hún einfaldlega sprakk af afbrýði þegar hún sá ástaratrið- ið í Trainspotting. Þar lék Ewan móti táningsleikkonunni Kelly McDonald, en Eve, sem þá var ófrísk, gat ekki horft á brot af at- riðinu án þess að nötra. „Það gætu hafa verið hormónarnir,“ segir hún, en skömmu eftir fæðinguna gat hún horft á atriðið. Hörðu íslensku rafpoppararnir íGus Gus eru að fara að spila á V-festi- val Virg- in út- gáfufé- lagsins 16. og 17. ágúst í Essex í Englandi, en mál Gus Gus-liða eru nú komin á fullt eftir hlé, manna- og stefnubreytingar. Þetta er gríð- arstór hátíð en stærstu böndin sem spila eru Íslandsvinirnir Cold- play, Red Hot Chili Peppers og Foo Fighters. Einnig eru fjölmarg- ir minni spámenn þar á ferðinni; Underworld, The Hives, Queens of the Stone Age, PJ Harvey og svo mætti lengi telja. Led Zeppelin hefur nú, í fyrstaskipti síðan 1979, komist með plötu í efsta sæti ameríska sölu- listans. Um er að ræða 3 diska upptökur af tónleikum sem heitir How the West Was Won sem fór beint í fyrsta sæti með 154.000 eintök seld. Þetta er þar með sjöt- ta plata þessarar goðsagnakenndu rokksveitar sem kemst á toppinn. Í öðru sæti situr frumburður rapp- arans 50 Cent sem trónað hefur á toppnum heillengi og er kominn í fimm milljón eintök. Merkisákvörðun var tekin af al-ríkisdómstól í Bandaríkjunum fyrir stuttu, sem gæti haft gríðar- leg áhrif á kvikmynda- og tölvu- leikjaiðnaðinn. Þá tók dómurinn bann á ofbeldistölvuleikjum í St. Louis-sýslu úr gildi og sagði ríkis- stjórnina ekki fara með alvald yfir banni á þegar vernduðu söluefni. Enn fremur var sagt að stjórnvöld- um hefði ekki tekist að sýna fram á skaðsemi ofbeldisfullra tölvu- leikja fyrir fólk undir lögaldri og að verndun barna fyrir ofbeldis- efni fælist í yfirsjón foreldra en ekki ritskoðun stjórnvalda. Metallica-gargarinn JamesHetfeild segist oft hafa feng- ið svo brjálæðisleg reiðisköst hann hafi óttast hann myndi raun- verulega myrða einhvern. Nýja platan St. Anger var víst leið til að miðla þessari reiði frá sér og horfast í augu við hana og það hefur hjálpað honum að sigr- ast á alkóhól- isma, sem var hans helsta meðal við reið- inni. Nú einskorðar hann sig við tónlist og stóra bíla til þess að stýra skapinu. „Mér hefur alltaf þótt bílar vera eins konar fram- lenging á sjálfinu. Mig hefur alltaf langað að vera stór og skelfilegur svo ég keyri um á bif- reið á stærð við hús.“ MILLJÓNAMÆRINGARNIR, PÁLL ÓSKAR OG RAGGI BJARNA Sumargleði og stuð er aðal þessara manna á disknum. RAGNHEIÐUR GRÖNDAL OG SAMBASVEITIN Taka evróvisjón-undanúrslitalag sitt Ferrari í nýjum búningi. HLJÓMAR Lagið Við saman er þeirra fyrsta lag í hartnær 30 ár. Nýtt 60 fm sumarhús í Sölvaslóð 7, Arnarstapa, Snæfellsnesi. Upplýsingar í síma 895 0583 Til sölu Mörkinni 6, sími 588 5518. Opið 9-18 virka daga og 10-15 laugardaga. Vínrauðir Leðurjakkar 19.900 kr Stutt kápur Hyrjarhöfði 7, sími 567 8730/6937154 www.teflon.is LAKKVÖRN BRYNGLJÁI Á BÍLINN! Blettun-djúphreinsun-alþrif.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.