Fréttablaðið - 06.06.2003, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 06.06.2003, Blaðsíða 27
■ Landsleikur 19MIÐVIKUDAGUR 6. júní 2003  16.50 RÚV Smáþjóðaleikarnir á Möltu (e).  18.00 Sýn Olíssport. Fjallað er um helstu íþróttavið- burði heima og erlendis.  18.30 Sýn Trans World Sport. Íþróttir um allan heim.  19.30 Sýn Football Week UK. Vikan í enska boltan- um.  20.00 Kópavogsvöllur Breiðablik og Haukar leika í 1. deild karla.  20.00 Stjörnuvöllur Stjarnan fær sameiginlegt lið Leifturs og Dalvíkur í heimsókn í 1. deild karla.  20.00 Akureyrarvöllur Þór mætir Njarðvík í 1. deild karla.  20.00 Sýn Gillette-sportpakkinn. Íþróttaviðburðir um allan heim.  20.30 Sýn Rip Curl Present 1. hvað?hvar?hvenær? 3 4 5 6 7 8 9 JÚNÍ Föstudagur Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100 Hva› ertu a› hugsa? 12 . og 1 9 jú ní o g 18 . jú lí. V er › kr. á mann 36 .2 40 36 .2 40 *Innifalið: Flug, gisting, akstur til og frá flugvelli erlendis og íslensk fararstjórn. Miðað við 2 fullorðna og 2 börn 2ja-11 ára. **Innifalið: Flug, gisting, akstur til og frá flugvelli erlendis og íslensk fararstjórn. Miðað við 2 fullorðna. Takmarkað sætaframboð Sólarplús fiú velur dagsetningu, bókar og grei›ir sta›festingargjald. Gistista›urinn er sta›festur viku fyrir brottför. * 47 .6 30 k r. ** Sama sólin, sama fríi› bara a›eins ód‡rara M al lo rc a M al lo rc a FÓTBOLTI KR leikur í 1. riðli und- ankeppni Evrópukeppni kvenna í fótbolta. KR mætir dönsku meist- urunum, Kilmarnock frá Skotlandi og meisturum Serbíu og Svartfjallands. Allir leikirnir verða í Danmörku í ágúst. Keppninni í Danmörku lýkur í þessum mánuði. Fortuna Hjørr- ing og Brøndby IF eru efst og jöfn en Brøndby á leik til góða. Á mánudag leikur Fortuna Hjørring fyrri úrslitaleik Evrópukeppni kvenna gegn sænska félaginu Umeå IK. Seinni leikurinn verður í Danmörku tveimur vikum síðar. Kilmarnock varð tvöfaldur meistari í vor. Félagið varð tveim- ur stigum á undan Hibernian í deildinni og burstaði Glasgow City 5-0 í úrslitaleik bikarkeppn- innar. Ekki er ljóst hverjir verða full- trúar Serbíu og Svartfjallands. Fulltrúar landsins í keppninni í fyrra, ZFK Masinac-Classic Nis, stóðu sig vel og unnu félag frá Ír- landi og Króatíu en töpuðu fyrir Evrópumeisturum 1. FFC Frank- furt í undankeppninni. ■ Færeyingar léku sína fyrstulandsleiki í júní árið 1930. Þeir léku þrjá leiki í Leirvík gegn Hjaltlandseyjum, gerðu eitt jafn- tefli en töpuðu tveimur. Árin 1935 til 1967 kepptu Fær-eyingar og Hjaltlendingar tíu sinnum um Adamsskjöldinn. Færeyingar unnu átta sinnum en Hjaltlendingar tvisvar. Fyrsti landsleikur Færeyingaeftir að þeir urðu aðilar að UEFA fór fram á Akranesi 24. ágúst 1988. Íslendingar unnu 1:0 með marki Ómars Torfasonar. Rúnar Kristinsson lék sinn sjötta landsleik. Rúnar er leikman- nahópnum á laugardaginn. Leikur Færeyinga og íslensksúrvalsliðs á Ólafsvökunni árið 1930 telst til landsleikja Færeyja. Fyrsti leikur Færeyinga í al-þjóðlegri keppni fór fram í Landskrona í Svíþjóð 12. septem- ber 1990. Leikurinn vakti heim- sathygli því Færeyingar unnu Austurríkismenn 1:0. Leikurinn var liður í undankeppni Evrópu- meistarakeppninnar og skoraði Torkil Nielsen mark þeirra í sein- ni hálfleik. Ísland - Færeyjar: Liba dæmir öðru sinni FÓTBOLTI Tékkinn Miroslav Liba dæmir leik Íslands og Færeyja á laugardag. Liba, sem er einn sjö FIFA-dómara Tékklands, dæmdi leik Íslands og Andorra árið 1999. Liba hefur dæmt 18 leiki í efstu deild Tékklands í vetur og er meðal- einkunn hans 7,22, en það er aðeins undir meðaleinkunn hans (7,47) í 95 leikjum sl. fimm ár. Leikir Sviss og Wales í undankeppni EM árið 1999 og Póllands og Noregs í undankeppni HM árið 2001 eru meðal stærstu verkefna hans. Í vetur dæmdi hann leik Dinamo Tiblisi gegn TVMK Tall- inn og leik Celtic og FK Sudova í UEFA-bikarkeppninni. ■ GEIR ÞORSTEINSSON Ásgeir veit alveg hvað hann er að gera. Geir Þorsteinsson: Vill þrjú stig KNATTSPYRNA „Það skiptir öllu máli að ná þremur stigum úr lands- leiknum við Færeyjar,“ sagði Geir Þorsteinsson, framkvæmda- stjóri Knattspyrnusambands Ís- lands. „Ef það gengur ekki eftir er draumurinn úti í þessum riðli. Við höfðum ákveðnar væntingar hér í upphafi riðilsins, eygðum von um að komast langt en eftir töpin gegn Skotum er sá draumur orðinn ansi fjarlægur þó að enn sé fræðilegur möguleiki.“ Geir er ekki sammála þeim sem segja að allt nema sigur gegn Færeyjum sé fyrir neðan allar hellur. „Alls ekki, Færeyingar hafa sýnt það undanfarin tímabil að þeir eru sýnd veiði en ekki gef- in. Við vitum það hins vegar og Ásgeir og strákarnir vita það líka að það kemur ekkert annað til greina en þrjú stig gegn þeim. En KSÍ þarf ekkert að setja pressu á Ásgeir, hann veit nákvæmlega sjálfur hvað þarf að gera og það vita allir að fólkið í landinu fylgist mjög vel með landsliðinu og gjörðum þess, innan vallar og utan.“ ■ EVRÓPUKEPPNI KVENNALIÐA Íslandsmeistarar KR taka þátt í Evrópukeppni kvennaliða í haust. 3. Evrópukeppni kvennaliða: KR til Danmerkur

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.