Fréttablaðið - 24.07.2003, Síða 2
2 24. júlí 2003 FIMMTUDAGUR
“Já, við erum úrvals bakarameistarar.“
Sjónvarpsstöðin Sýn fer mikinn á íþróttasviðinu
og Ríkisútvarpið virðist eiga undir högg að sækja.
Arnar Björnsson er einn af íþróttafréttamönnum
Sýnar.
Spurningdagsins
Arnar, er Sýn að baka RÚV
í sportinu?
■ Lögreglufréttir
Landssímamálið:
Bókhaldið
rannsakað
FJÁRDRÁTTUR „Við erum enn að
rannsaka málið innanhúss en ég
reikna með að því ljúki í haust,“
segir Brynjólfur Bjarnason, for-
stjóri Landssímans, um innan-
hússrannsókn á fjárdrætti Svein-
björns Ragnarssonar, fyrrum
aðalgjaldkera fyrirtækisins, sem
talinn er hafa dregið sér fé sem er
yfir 200 milljónir króna.
Starfsmenn Símans hafa allt
síðan málið kom upp farið í gegn-
um bókhaldið allt frá því árið
1999. Brynjólfur segir að það sé
flókið og viðamikið verk sem taki
mikinn tíma.
„Við erum meðal annars að
kanna áhrifin á efnhagsreikning
fyrirtækisins,“ segir Brynjólfur. ■
Samráð olíufélaga:
Ekki áhrif
á laun
SJÓMENN Meint ólöglegt samráð
olíufélaganna hefur ekki bein áhrif
á kjör sjómanna, að sögn Jónasar
Garðarssonar, formanns Sjómanna-
félags Reykjavíkur.
Olíuverð er dregið frá aflaverð-
mæti áður en skiptahlutur er reikn-
aður. Hins vegar er miðað við olíu-
verð á heimsmarkaði. Því hefur það
ekki bein áhrif á laun sjómanna hafi
bensínverð til útgerða verið hærra
en ella vegna meints samráðs. ■
WASHINGTON, AP Stephen Hadley,
aðstoðarþjóðaröryggisráðgjafi
Georges W. Bush Bandaríkjafor-
seta, baðst formlega afsökunar á
fullyrðingu í stefnuræðu Bush frá
í vetur þess efnis að Írakar hefðu
ætlað að kaupa úraníum frá Afr-
íkuríkinu Níger. Fram hefur kom-
ið að fullyrðingin var byggð á
fölsuðum skjölum og sagðist
Hadley taka fulla ábyrgð á því að
hún hefði ratað í stefnuræðu for-
setans.
Hadley sagðist hafa fengið tvö
minnisblöð frá bandarísku leyni-
þjónustunni CIA og þá hefði
George Tenet, yfirmaður CIA,
líka hringt í sig í október og lýst
efasemdum um fullyrðingar um
úraníumkaup Íraka. Hadley
sagðist í kjölfar þess hafa látið
taka út kafla úr stefnuræðu for-
setans sem hann flutti í október.
Slíkt hið sama hefði hann átt að
gera í janúar.
„Hefði ég gert það hefði ég
komið í veg fyrir deilur undanfar-
inna vikna,“ sagði Hadley og
bætti við: „ég sé það nú að ég
brást forsetanum að þessu leyti.“
Hadley, sem er helsti aðstoðar-
maður Condoleezzu Rice þjóðar-
öryggisráðgjafa, sagðist axla
ábyrgð á málinu fyrir hönd starfs-
liðs forsetans eins og Tenet hefði
gert fyrir hönd CIA. ■
STEPHEN HADLEY
Segist hafa gleymt að taka út úr stefnu-
ræðu Bandaríkjaforseta kafla um úraníum-
kaup Íraka. Hadley hefur beðið Bush af-
sökunar á yfirsjón sinni.
Aðstoðarþjóðaröryggisráðgjafi Bandaríkjaforseta:
Stóð mig ekki í stykkinu Í VÍMU AF ÞÝFINUBrotist var inn í félagsheimilið
á Ólafsfirði og fjórum bjórköss-
um stolið í gærmorgun. Farið
hafði verið inn um mjög þröng-
an loftstokk sem er fáum fær.
Grunaðir menn voru í haldi hjá
lögregunni og þegar síðast var
vitað var þess beðið að áfengis-
víman rynni af þeim svo hægt
væri að yfirheyra þá.
ÁREKSTUR Á AKUREYRI
Árekstur varð við innkeyrslu
Hagkaups við Hjalteyrargötu á
Akureyri í gærdag. Þrír kenndu
eymsla. Bílarnir voru nokkuð
skemmdir og voru fluttir á
brott með kranabíl.
SÍLDARVINNSLAN Í NESKAUPSTAÐ
Samtals hefur verið tekið á móti 130.000
tonnum af uppsjávarfiski í fiskimjölsverk-
smiðju Síldarvinnslunnar í Neskaupstað
það sem af er árinu.
Síldarvinnslan hf.:
340.000 tonn
FISKVINNSLA Frá því um síðastliðin
áramót hafa fiskimjölsverksmiðj-
ur Síldarvinnslunnar hf. tekið á
móti um 340 þúsund tonnum af
uppsjávarfiski til vinnslu, það er
af loðnu, kolmunna og síld.
Samtals hefur verið tekið á
móti 232.500 tonnum af loðnu,
83.100 tonnum af kolmunna og
22.600 tonnum af síld úr norsk-ís-
lenska síldarstofninum í fiski-
mjölsverksmiðjur Síldarvinnsl-
unnar á Siglufirði, Raufarhöfn,
Seyðisfirði, Neskaupstað, Reyðar-
firði og Helguvík. ■
Erlendur ferðamaður:
Missti stjórn
á bíl sínum
LÖGREGLUFRÉTTIR Erlendur ökumað-
ur missti stjórn á bifreið sinni
þegar hann mætti bíl á malarvegi
og lenti utan vegar í Auðbjargar-
staðabrekku á Tjörnesi. Betur fór
en á horfist þar sem hinum megin
vegarins eru tugir metra niður.
Farþegarnir sluppu allir slysa-
laust en bíllinn er mikið skemmd-
ur. Nýr vegur um svæðið verður
tekinn í notkun eftir rúma viku og
þeim gamla lokað. ■
SAMGÖNGUR Siglfirðingar héldu í
fyrradag borgarafund til að fara
yfir breytta stöðu bæjarfélagsins
í kjölfar frestunar á opnun Héð-
insfjarðarganga um eitt ár, sem
stjórnvöld kynntu fyrr í sumar.
Húsfyllir var í Nýja-Bíó, um 120
manns.
Guðmundur Guðlaugsson, bæj-
arstjóri á Siglufirði, segir íbúa
bæjarins hafa bitið í það súra epli
að frestunin verði, en snúi nú bök-
um saman. „Fólk er ekki sátt, en
auðvitað verða menn að vinna við
þá áætlun sem fyrir liggur. Það er
niðurstaða fundarins að snúa bök-
um saman.“
Vegalengdin milli Siglufjaðar
og Ólafsfjarðar er nú 60 kílómetr-
ar að sumri, en 240 kílómetrar
þegar lágheiðin er ófær að vetri.
Við opnun ganganna skilja 15 kíló-
metrar bæina að. Héðinsfjarðar-
göng eru forsenda fyrir samein-
ingu Siglufjarðar, Ólafsfjarðar og
Dalvíkur, auk þess sem allur
Eyjafjörðurinn gæti sameinast í
framtíðinni, með tilheyrandi sam-
rekstri og hagkvæmni.
Guðmundur segir göngin þjóð-
þrifamál. „Það er dýrara fyrir
þjóðfélagið að gera ekki göngin en
að gera þau.“ ■
BORGARAFUNDUR
Um 120 manns mættu á borgarafund á Siglufirði í fyrradag, þar sem menn ræddu stöð-
una að aflokinni frestun Héðinsfjarðarganga.
Borgarafundur um jarðgöng:
Siglfirðingar bíta í súrt epli
VIÐSKIPTI Fyrirtækið Baugur skrif-
aði utanríkisráðuneytinu bréf í
gær og óskaði eftir afnotum á ol-
íutönkum varnarliðsins í Helgu-
vík í þeim tilgangi að hefja inn-
flutning og dreifingu á eldsneyti.
Á sama tíma sendi fyrirtækið út
bréf til borgaryfirvalda þar sem
óskað var viðræðna um stofnsetn-
ingu bensínstöðvar við Holta-
garða.
Jón Ásgeir Jóhannesson, for-
stjóri Baugs, kveðst vongóður um
að bensínsala geti hafist innan
skamms. „Við vonumst til að yfir-
völd verði jákvæð, ekki síst í ljósi
þess sem komið hefur í ljós með
hin olíufélögin. Við höfum átt
þessa viðskiptahugmynd inni í
skúffunni um nokkurt skeið og
eigum lóðir, bæði í Kópavogi og
Reykjavík, sem myndu henta vel í
þessa starfsemi.“
Fordæmi eru fyrir því erlendis
að smásölufyrirtæki starfræki
bensínstöðvar við verslanir sínar.
Að sögn Jóns Ásgeirs eru smá-
sölufyrirtæki einhverjir stærstu
söluaðilar bensíns í Bretlandi.
Hugmyndin er að fyrirtækið
utan um bensínstöðvar Baugs
verði smátt í sniðum, með fimm
til tíu starfsmenn, en bensínstöðv-
arnar sjálfar verði mannlausar
með 20 til 30 dælum.
Skarphéðinn Berg Steinarsson,
yfirmaður innlendra fjárfestinga
Baugs, segir úttekt hafa farið af
stað um möguleikann á bensínsölu
í lok síðasta árs. „Ég held að við
getum verið býsna snöggir að
koma starfseminni af stað, en al-
ger forsenda er að borgaryfirvöld
veiti leyfi fyrir henni. Skipulagið
gerir ráð fyrir að Holtagarðar séu
hafnarsvæði, en þarna er nú ein
stærsta verslunarmiðstöð lands-
ins.“
Olíutankar varnarliðsins í
Helguvík standa að hluta ónýttir
og hefur utanríkisráðuneytið
þreifað fyrir sér með áhuga ís-
lenskra aðila á að nota þá. Matthí-
as Geir Pálsson, sendiráðsfulltrúi
á varnarmálaskrifstofu utanríkis-
ráðuneytisins, segir Íslendinga
hafa sýnt tönkunum áhuga, en
ekki hafi orðið mikil hreyfing á
málinu af hálfu Bandaríkjanna.
Varnarliðið á sjö tanka í Helguvík
og nýtir þá ekki alla.
„Tankarnir eru þeirra eign og
það er alveg undir þeim komið
hvað þeir gera við þá. Varnarliðið
er að athuga þann kost að leyfa af-
not af þessu. Þeir þurfa einhvern
tíma til að athuga málið og fá leyfi
frá Bandaríkjunum.“
jtr@frettabladid.is
FYRIRHUGUÐ BENSÍNSTÖÐ
Baugur hefur óskað eftir viðræðum við Reykjavíkurborg um að stofnsetja bensínstöð á
landi í eigu dótturfyrirtækis Baugs milli Sæbrautar og verslunarmiðstöðvarinnar í Holta-
görðum.
Baugur undirbýr
sölu á bensíni
Baugur hefur skrifað utanríkisráðuneytinu bréf þar sem óskað er eftir
að fá bensíntanka í Helguvík keypta eða leigða. Fyrirtækið vill viðræður
við borgaryfirvöld vegna fyrirhugaðrar bensínstöðvar við Holtagarða.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
AUKIN SALA HJÁ AMAZON
Amazon.com hefur aukið sölu um
37% miðað við sama tíma og í
fyrra. Á síðasta viðskiptafjórð-
ungi nam salan 80 milljörðum
króna og hefur tapið minnkað
umtalsvert á tímabilinu. Aukna
sölu má rekja til tilboða um
ókeypis heimsendingu og mikils
áhuga á nýju bókinni um Harry
Potter.
■ Viðskipti