Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.07.2003, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 24.07.2003, Qupperneq 4
4 24. júlí 2003 FIMMTUDAGUR Ætlarðu að heiman um verslunar- mannahelgina? Spurning dagsins í dag: Á að setja á fót heimavarnarlið? Niðurstöður gærdagsins á www.frett.is 44,4% 39,3% Nei 16,3%Veit ekki Já Kjörkassinn Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun frétt.is ■ Alnæmi Alltaf ód‡rast á netinu Verð á mann frá 19.500 kr. ÍS LE NS KA A UG LÝ SI NG AS TO FA N EH F/ SI A. IS IC E 21 53 5 0 5. 20 03 Formaður Sjómannafélags Reykjavíkur fagnar breyttri reglugerð: Engin undankomuleið eftir ATVINNUMÁL „Það verður ekkert undan því komist lengur að hafa áhafnir með íslenska kjara- samninga á skipum sem flytja vörur fyrir varnarliðið,“ segir Jónas Garðarsson, formaður Sjómannafélags Reykjavíkur, um nýja reglugerð utanríkis- ráðuneytisins um flutninga fyr- ir varnarliðið. Þar kemur fram að áhöfn skips verði að vera á forræði þess félags sem sér um flutningana, ekki megi leigja áhöfn með skipi sem notað er til flutninganna. Jónas segist ánægður með reglugerðina. „Þetta er sú laga- skýring sem við höfum lagt í málið allan tímann síðan Atl- antsskip hrepptu flutningana fyrir varnarliðið.“ Félagið hefur barist gegn því að áhafnir skipa fái greitt samkvæmt erlendum kjarasamningum og hefur hald- ið því fram að áhafnarmeðlimir séu hlunnfarnir. Jónas segir að hann hefði viljað að utanríkis- ráðuneytið gripi fyrr inn í málið en lýsti ánægju með að loks væri búið að festa málið í reglu- gerð. ■ Ríkislögreglustjóri hefji rannsókn strax Kristinn H. Gunnarsson vill að stjórnarflokkarnir beiti sér þegar og sýni að tengsl forsvarsmanna inn í stjórnarflokka hafi ekki áhrif. Sam- keppnisstofnun verði fær undir Ríkislögreglustjóra. SAMKEPPNI „Ég tel eðlilegt að efna- hagsbrotadeild Ríkislögreglu- stjóra hefji þegar rannsókn á meintu samráði olíufélaganna. Stjórnvöld verða að beita sér fyr- ir því að rannsókn hefjist strax,“ segir Kristinn H. Gunnarsson, al- þingismaður Framsóknarflokks- ins og nefndarmaður í efnahags- og viðskipta- nefnd Alþingis, vegna frum- skýrslu Sam- keppnisstofnun- ar sem lýsir víð- tæku samráði o l íufélaganna þriggja um að mæta útboðum viðskiptavina sinna. Kristinn segir að í skýrslunni séu svo alvarlegar athugasemdir að það gefi fullt tilefni til rann- sóknar. „Við eigum að draga lærdóm af því að mál á hendur einstakling- um í sambærilegum málum hafa áður fyrnst. Lögreglan verður að koma strax að málum,“ segir Kristinn. Hann segir að nauðsynlegt sé fyrir stjórnmálin að málið verði þegar rannsakað. „Forsvarsmenn olíufélaganna eru mjög tengdir stjórnarflokkun- um og því er nauðsynlegt að bregðast skjótt við og sýna þannig fram á að tengsl áhrifamanna inn í flokkana hafi ekki áhrif á ákvarðanatöku í þessum málum,“ segir Kristinn. Hann segir að eftirlit með sam- keppnismálum hér sé ekki nógu skilvirkt og þar þurfi að bæta úr. Hann vill að Samkeppnisstofnun verði færð undir aðra rannsókna- stofnun, til dæmis embætti Ríkis- lögreglustjóra. „Kerfið er of þunglamalegt í dag. Samkeppnisstofnun rannsak- ar bæði og úrskurðar og mál geta þurft að fara fyrir fjögur stig áður en endanleg niðurstaða fæst. Best væri að mál færu beint fyrir dómstóla þegar rannsókn lýkur og samhliða yrði tekið á meintum brotum einstaklinga. Þannig mætti hraða afgreiðslu mála,“ segir Kristinn. rt@frettabladid.is Snælda í eigu BBC: Kelly lýsti yfir áhyggjum BRETLAND Breska ríkisútvarpið, BBC, segist hafa í fórum sínum snældu þar sem vísindamaðurinn dr. David Kelly lýsir yfir áhyggj- um sínum af því hvernig breska ríkisstjórnin birti almenningi upplýsingar um vopnaeign Íraka. Búist er við því að BBC muni afhenda snælduna sem sönnunar- gagn í rannsókn sem stendur yfir á dauða Kellys. Talið er að Kelly, sem var ráðgjafi ríkisstjórnarinn- ar í vopnamálum, hafi framið sjálfsvíg eftir að hafa upp komst að hann hefði upplýst ýkjur um vopnaeign Íraka til að réttlæta árás á landið. Geoff Hoon, varnarmálaráð- herra Bretlands, heimsótti ekkju Kellys í gær. Ekkert var gefið upp nánar um heimsóknina og var að- eins sagt að um „einkafund“ hafi verið að ræða. ■ GENGISHAGNAÐUR Lunginn af hagnaði Baugs fyrsta ársfjórð- unginn felst í gengishagnaði af fjárfesting- um í Bretlandi. Baugur: 3,5 milljarða hagnaður VIÐSKIPTI Hagnaður Baugs Group eftir skatta fyrsta ársfjórðunginn var 3,5 milljarðar króna, saman- borið við 513 milljóna króna hagn- að á sama tímabili í fyrra. Góð af- koma skýrist fyrst og fremst af gengishagnaði af fjárfestingum í Bretlandi. Til að mynda hækkuðu hlutabréf Baugs í The Big Food Group um 2,4 milljarða króna. Önnur fyrirtæki, að hluta í eigu Baugs í Bretlandi, hækkuðu einnig. Í kjölfar afskráningar úr Kaup- höll Íslands ber Baugi ekki skylda til að aðgreina rekstrarafkomu fé- lagsins í afkomutölum. Baugur stefnir að því að draga sig út af bandarískum smásölumarkaði og sækja í frekari uppbyggingu á Norðurlöndunum og í Bretlandi. ■ Vesturbær Reykjavíkur: Hnífi beitt LÍKAMSÁRÁS Rúmlega þrítugur maður var særður með hnífi í vesturbæ Reykjavíkur aðfaranótt sunnudags. „Hann hlaut áverka í kringum hné og var fluttur á sjúkrahús. Lögreglan hefur ein- hverja vitneskju um hverjir voru að verki og er málið til rannsókn- ar,“ segir Hörður Jóhannesson hjá lögreglunni í Reykjavík. ■ SMYGLAÐ HASS Íslendingurinn er grunaður um aðild að tíu kílóa hasssendingu. Dani hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan í byrjun júní vegna málsins. Fíkniefnamál: Handtekinn í Danmörku LÖGREGLUMÁL Íslendingur búsett- ur í Danmörku var handtekinn í síðustu viku vegna gruns um að- ild að tíu kílóa hasssendingu hingað til lands. „Dani flutti inn tíu kíló af hassi með vörusend- ingu í byrjun júní. Hann var handtekinn og settur í gæslu- varðhald. Í tengslum við málið var Íslendingurinn handtekinn í Danmörku að okkar beiðni. Tveir menn á okkar vegum fóru og sóttu manninn. Aðild mannsins að málinu er til rannsóknar,“ seg- ir Hörður Jóhannesson, yfirlög- regluþjónn í Reykjavík. Tollgæslan í Reykjavík fann hassið í skipi frá Danmörku. Fíkniefnalögreglan var látin vita og var Daninn handtekinn þegar hann kom til að vitja sendingar- innar. Hann hefur játað að eiga efnið og að hafa ætlað það til sölu hér á landi. ■ VERSNANDI ÁHRIF ALNÆMIS Efnahagsleg áhrif alnæmis eiga eftir að verða mun verri en áður hefur verið haldið fram. Einhver Afríkuríki eiga fyrir vikið eftir að missa algjörlega fótanna. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn. Eftirlýstir Írakar: Fáir eftir BAGDAD, AP Enn einn háttsettur yfir- maður úr fyrrverandi stjórn Íraks var handtekinn í gærmorgun. Ricardo Sanchez, hershöfðingi í bandaríska hernum í Írak, sagði að hermenn hefðu handtekið Barzan Abd Al-Ghafur Sulayman Majid Al- Tikriti, sem var ellefti á lista Banda- ríkjamanna yfir eftirlýsta Íraka. Al- Tikriti er fyrrum yfirmaður í sér- sveitum Lýðveldisvarðar Saddams Husseins og frændi forsetans fyrr- verandi. Þar með hafa 38 af 55 eftir- lýstum Írökum annað hvort verið handteknir eða drepnir. Spaðaásinn sjálfur, Saddam Hussein, gengur þó enn laus líkt og Ali Hassan al-Majid eða efnavopna-Ali eins og hann er kallaður. Sá er einn illræmdasti fylgismaður Saddams. ■ BLAIR Ríksstjórn Tonys Blairs, forsætisráðherra Bretlands, hefur verið harðlega gagnrýnd fyrir að beita dr. David Kelly miklum þrýstingi í Íraksmálinu. AP /M YN D JÓNAS GARÐARSSON Reglugerðin í takt við það sem Sjómannafélag Reykjavíkur hefur knúið á um í mörg ár. KRISTINN H. GUNNARSSON Vill að efnhagsbrotadeild rannsaki olíufélögin tafarlaust. „Forsvars- menn olíufé- laganna eru mjög tengdir stjórnarflokk- unum. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B IL LI FYRIR FRAMAN RÁÐHÚSIÐ Fólk þusti út eftir árásina. Lögreglumenn umkringdu ráðhúsið. Tveir felldir: Skotárás í ráðhúsi NEW YORK, AP Tveir létust þegar maður hóf skothríð í ráðhúsi New York-borgar í gærkvöldi. Annar hinna látnu er borgarráðsmaður- inn James Davis, fyrrum lög- reglumaður, sem hafði barist af krafti gegn ofbeldisglæpum. Morðinginn hafði ekki fundist þegar blaðið fór í prentun. „Við vitum ekki hvernig mað- urinn komst með vopn inn í bygg- inguna,“ sagði Michael Bloomberg borgarstjóri skömmu eftir árásina. „Þetta er árás á alla Bandaríkjamenn,“ sagði borgar- stjórinn ómyrkur í máli. ■

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.