Fréttablaðið - 24.07.2003, Síða 7

Fréttablaðið - 24.07.2003, Síða 7
8 24. júlí 2003 FIMMTUDAG Rétt viðbrögð við sprengjuárásum „Einustu viðbrögð sumra eru að snúa sér af bakinu yfir á mag- ann og láta sólina verma þann hluta líkamans svo hann verði brúnn líka.“ Einvarður Jóhannsson fararstjóri. DV, 23. júlí. Einkalífvörður? „Ekki veit ég hvað veldur óör- yggi Björns Bjarnasonar þannig að hann vilji umkringja sig með vopnuðum her en ég tel þessar hugmyndir hans fráleitar.“ Ögmundur Jónasson þingmaður. DV, 23. júlí. Öllum lokið? „Þetta er þeirra einhliða fram- kvæmd, þeirra útfærsla og úr því sem komið er látum við okk- ur hana engu skipta.“ Bragi Steinarsson vararíkissaksóknari. Morgunblaðinu, 23. júlí. Orðrétt Verð á mann frá 19.500 kr. ÍS LE NS KA A UG LÝ SI NG AS TO FA N EH F/ SI A. IS IC E 21 53 5 0 5. 20 03 www.saevarkarl.is ÚTSALA Í NOKKRA DAGA Sævar Karl Bankastræti Þjófnaður á persónu- upplýsingum: Sjö milljónir sviknar GLÆPIR Rúmlega sjö milljónir Bandaríkjamanna hafa lent í því að persónuupplýsingum þeirra sé stolið. Fyrir vikið hefur óprútt- num aðilum tekist að svíkja út stórar fjárhæðir með notkun upp- lýsinganna. Þetta kemur fram í nýrri bandarískri skýrslu sem gefin var út í gær. Frá því á sama tíma í fyrra hefur þjófnaðurinn aukist um 79%. Rúmlega helmingur þjófn- aðarins var ekki framinn af skipu- lögðum glæpasamtökum eða öðr- um glæpamönnum heldur af vin- um, samstarfsfélögum og jafnvel ættingjum. Í skýrslunni var almenningur hvattur til að hafa varann á varðandi notkun upplýsinga. ■ FÆÐINGARORLOF „Við teljum að frá upphafi hafi það verið alveg skýrt hjá öllum að það ætti ekki að greiða orlof ofan á orlof,“ segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmda- stjóri Samtaka iðnaðarins. Foreldr- ar á almenna vinnumarkaðnum hafa ekki rétt til orlofslauna í fæð- ingarorlofi eins og foreldrar sem starfa hjá hinu opinbera. „Við alla útreikninga við áætlun á kostnaði við þess miklu framför og réttarbót fyrir íslenska launa- menn hefur aldrei verið reiknað með þessu,“ segir Hannes og bend- ir á að tekjur fæðingarorlofssjóðs séu mun minni en gjöld hans. „Brýnasta verkefnið er að sjá til þess að tekjur og gjöld standist á, í stað þess að ræð um að auka hall- ann á honum enn frekar,“ segir Hannes. „Þarna er verið að búa til mis- munun á milli jafnsettra einstak- linga í launaðri vinnu hjá sama að- ila,“ segir Magnús M. Norðdahl, deildarstjóri lögfræðideildar ASÍ. „Það á ekki að nota opinbert fé þannig að það mismuni þegnunum. Þá verður ríkisvaldið bara að stan- da undir því með auknum fra lögum.“ ■ VIÐSKIPTI „Margir samningar eru í gildi milli Shell og Skeljungs. Þessir samningar eru endurskoð- aðir með reglulegu millibili. Við sölu á hlutabréfum Shell var á k v e ð n u m ákvæðum í samningi félag- anna breytt, en j a f n f r a m t tryggt að Skelj- ungur heldur áfram að selja og dreifa Shell- vörum hér á landi. Þessar breytingar hafa óveruleg áhrif gagnvart við- skiptavinum Skeljungs eða á rekstur félagsins“. Þetta segir Benedikt Jóhannesson, stjórnar- formaður Skeljungs, Eimskips og Haukþings, í skriflegu svari vegna fyrirspurnar Fréttablaðs- ins um það hvort Skeljungur hafi gert nýja viðskiptasamninga við Shell International samhliða því að Sjóvá og Burðarás keyptu hlut- inn í Skeljungi á genginu 12, sem er undirverð. Benedikt Jóhannesson hefur svarað fyrirspurn Fréttablaðsins um það hvort bréf sem Íslands- banki seldi í umboðssölu þann 30. júní á markaðsgengi hafi tengst einhverjum af þeim fyrirtækjum sem hann er í forsvari fyrir. Benedikt neitar að Íslandsbanki hafi haft milligöngu um að bréf Skeljungs, Sjóvár, Haukþings, Burðaráss eða Eimskips hafi verið seld á markaðsgengi áður en tilkynnt var um sölu á hlut Shell International á genginu 12. Í svarbréfi Benedikts segir m.a: „...jafnframt er sagt að félög sem undirritaður tengist hafi selt bréf sama dag á hærra gengi en keypt var af Shell.“ Og síðar seg- ir: „Þessar fréttir eru rangar og fela í sér ásökun um að undirritað- ur hafi gerst sekur um að misnota stöðu sína til auðgunar sem er að sjálfsögðu ólöglegt athæfi“. Fyrir mistök var staðhæft í undirfyrirsögn að Sjóvá og Burðarás hafi selt á markaðs- gengi. Í fréttinni sjálfri var því lýst að líklegt væri að umræddir aðilar hefðu selt í skjóli Íslands- banka. Beðist er velvirðinga þeim mistökum. Enn hefur ekki fengist uppl fyrir hvern Íslandsbanki se þennan dag. Fjármálaeftirli rannsakar þessi mál. rt@frettablad brynjolfur@frettabld SKELJUNGUR Um svipað leyti og Shell International seldi hlut sinn í Skeljungi var samningum milli f tækjanna breytt. „Þessar breytingar hafa óveruleg áhrif gagn- vart viðskipta- vinum Skeljungs. Staðfest að samningum við Shell var breytt Benedikt Jóhannesson, stjórnarformaður Skeljungs, Haukþings og Eimskips, staðfestir að viðskiptasamningum við Shell International var „breytt“ samhliða kaupum á 21 prósents hlut félagsins. Neitar því að fyrirtæki honum tengd hafi selt á markaðsverði 30. júní. FORELDRAR Foreldrar á almenna vinnumarkaðnum hafa ekki rétt til orlofslauna í fæðingarorlofi e og foreldrar sem starfa hjá hinu opinbera. Foreldrar á almenna vinnumarkaðnum hafa ekki rétt til orlofslauna í fæðingarorlofi: Mismunun milli jafnsettra einstaklinga

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.