Fréttablaðið - 24.07.2003, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 24.07.2003, Blaðsíða 11
12 24. júlí 2003 FIMMTUDAG JÓLASVEINARÁÐSTEFNA Fertugasta árlega jólasveinaráðstefnan stendur nú yfir í Kaupmannahöfn. Rúm- lega 100 jólasveinar taka þátt og á meðal þeirra mátti sjá þennan Elvis-jólasvein í góðum gír. AP/MYND VETTVANGUR HARMLEIKSINS Gatan í Santa Monica þar sem útimarkað- urinn var haldinn var lokuð í nokkra daga í kjölfar slyssins. Ökumaður á níræðis- aldri: Hjartað brostið LOS ANGELES, AP „Hjarta mitt er brostið vegna þessa mikla harm- leiks“ sagði maður á níræðisaldri sem ók í gegnum útimarkað síð- astliðinn miðvikudag með þeim afleiðingum að tíu manns létust. Russell Weller sendi frá sér op- inberlega yfirlýsingu í fyrsta skipti síðan atburðurinn átti sér stað. „Það eru engin orð sem lýsa þeim tilfinningum sem ég og fjöl- skylda mín berum til þeirra sem eiga um sárt að binda vegna slyss- ins,“ sagði hann. Nokkrir aðstandendur hafa lát- ið í ljós reiði sína í garð Weller og heyrst hafa kröfur þess efnis að eldra fólk verði látið gangast und- ir próf til að endurnýja ökuleyfi sín. Lögreglan rannsakar enn til- drög slyssins. ■ ÚTIHÁTÍÐ „Við höfum ekki verið beðnar um að koma á neinar úti- hátíðir en við bregðumst við ef þess er óskað,“ segir Díana Sig- urðardóttir, starfskona Stígamóta. Að mati Díönu er það á ábyrgð hvers og eins mótshaldara hvern- ig búið er að málum á hverjum stað fyrir sig. „ Það sem skiptir mestu máli er að einhver sé til staðar á hverri hátíð til að bregð- ast við ef eitthvað gerist. Það er einnig nauðsynlegt að fólk viti hvert það á að leita verði það fyrir nauðgun.“ Birgir Guðjónsson, formaður Þjóðhátíðarnefndar, segir vel búið að málum fyrir Þjóðhátíðina í Vestmannaeyjum. „Við erum með sterkt teymi í dalnum, þrjá lækna auk hjúkrunarfólks og aðila sem sjá um sálargæslu á svæðinu og sálfræðinga. Fólkið er allt á okkar snærum og er með mikla reynslu.“ Birgir segir mikinn kostnað fylgja aukinni gæslu en að hans mati er þó nauðsynlegt að hafa sálargæ og viðveru hjúkrunarfólks. „ viljum alls ekki halda Þjóðhátíð þessa fólks, það er nokkuð ljóst Melgerðishátíð blásin af Til stóð að halda mikla útihátíð á Melgerðismelum en mótshöldurum tókst ekki að standa und skilyrðum sýslumanns. Aðstandendur hátíðarinnar hyggjast leggja fram stjórnsýslukæru vegn málsins og tala um valdníðslu. SAMGÖNGUR „Það lítur út fyrir minnkandi sam- göngur til Vest- mannaeyja á með- an á Þjóðhátíð stendur miðað við árin á undan,“ segir Birgir Guðjónsson, formaður þjóðhá- tíðarnefndar. Birgir er þó ekki búinn að gefa upp alla von og segir ástandið enn geta breyst. „Flug- félag Íslands er al- veg hætt að fljúga hingað og nú þegar er uppselt í Herjólf. Flugfélag Vestmannaeyja og Íslandsflug verða þau flugfélög sem fljúga og það er vonandi að þau fjölgi ferðum þegar nær dreg- ur Þjóðhátíð.“ Birgir segir skipu- lagninguna ganga mjög vel og s ir spurninguna núna snúast hvort hægt verði að koma öllu fó inu yfir sundið. „Okkur vantar e faldlega göng til að koma fólki y akandi.“ ■ BIRGIR GUÐJÓNSSON Mikil ásókn er í miða á Þjóðhátíð og óttast Eyjamenn að sa göngur hafi ekki undan um verslunarmannahelgina. Minnkandi samgöngur til Eyja: Vantar göng M YN D /AP ÚTIHÁTÍÐ „Ég tel þetta valdníðslu af versta toga og auðvitað hvarfl- ar að mér að sýslumaðurinn, Björn Jósep Arnviðarson, sé að gæta hagsmuna kaupmanna á Ak- ureyri,“ segir Ingólfur Þór Hlyns- son, sem ásamt Ómari Aage Tryggvasyni og Þorkeli Hróari Björnssyni stendur fyrir mikilli útihátíð á Melgerðismelum nú um verslunarmannahelgina. Til stóð að Stuðmenn, Jagúar, Land og synir, Jet Black Joe, Mín- us og Gleðisveit Ingólfs léku á há- tíðinni. Ingólfur neitar því ekki að vera sár og svekktur og telur sig fórnarlamb embættismanna. „Það er búið að kippa stoðunum undan þessum hljómsveitum á þessari stærstu helgi ársins með ein- hverri geðþóttaákvörðun, eyði- leggja vinnu fjölmargra sem ætl- uðu að vinna við hátíðina, sex vikna stranga undirbúningsvinnu, og talsverðir fjármunir eru tapað- ir sem mótshaldarar hafa þurft að leggja út.“ Björn Jósep, sýslumaður á Ak- ureyri, segir ljóst að ekki verði nein útihátíð á Eyjafjarðarsvæð- inu úr því sem komið er en mikil fjölskylduhátíð verði á Akureyri. „Þeim voru sett ákveðin skilyrði áður en tekin yrði afstaða til leyf- isins til hátíðarninnar á Melgerð- ismelum. Þau voru ekki uppfyllt og því verður ekkert af þeirri há- tíð.“ Ingólfur hyggst leggja fram stjórnsýslukæru vegna þessa máls. „Við sóttum um leyfi fyrir sex vikum sem var þá veitt, enda uppfylltum við ýmis skilyrði. Svo á elleftu stundu fer sýslumaður- inn fram á 8,5 milljónir vegna lög- gæslu á svæðinu. Manninum mátti fulljóst vera að við gætum aldrei lagt slíka peninga fram með svo stuttum fyrirvara,“ seg- ir Ingólfur. Hann bendir á að Björn Jósep hafi þá miðað við 10 til 11 þúsund manns. Hátíðin stæði undir sér við 2.500 gesti. Rúmlega 10 þúsund gestir hefðu þýtt 70 milljónir og sýslumanni mætti því vera ljóst að þá væri lítið mál að greiða umbeðna upp- hæð. Ingólfur sagðist hafa lagt fram þrjár milljónir og ávísun upp á aðrar þrjár sem leysa mætti út eftir hátíðina en allt kom fyrir ekki. „Hann segir þvert nei, hann vilji fá trygg- ingu. Þetta var enn eitt útspilið af hans hálfu því hann ætlaði með einhverjum ráðum að koma í veg fyrir að hátíðin yrði haldin. Hann hlýtur að hafa vitað að við gátum aldrei staðið undir slíku. En burtséð frá því komumst við að því að Vestmannaeyingar e að borga þrjár milljónir og að eina, og þeir eru að barma yfir þessu. Þetta er hagsmu mál fyrir marga, ekki síst heim menn, og með þessu tiltæki hann líklega að hafa af þe möguleika á tekjum sem he getað skipt milljónum – hver þetta landsvæði að gjalda?“ jakob@frettablad ÞORKELL HRÓAR BJÖRNSSON OG INGÓLFUR ÞÓR HLYNSSON Segja sýslumanninn á Akureyri hafa verið á móti fyrirhugaðri hátíð allt frá upphafi og lagt stein í götu mótshaldara – síðast farið fram 8,5 milljónir sem tryggingu fyrir löggæslu á staðnum, sem reyndist aðstandendum óyfirstíganlegt. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /I R A STARFSKONUR STÍGAMÓTA Aðstoðar þeirra hefur ekki verið óskað um komandi verslunarmannahelgi. Díana Sigur dóttir segir það á ábyrgð hvers mótshaldara fyrir sig hvernig staðið er að málum. Aðbúnaður á útihátíðum: Ábyrgð mótshaldara FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M www.saevarkarl.is ÚTSALA Í NOKKRA DAGA Sævar Karl Bankastræti

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.