Fréttablaðið - 24.07.2003, Page 14
15MMTUDAGUR 24. júlí 2003
Laugardaga kl. 10:00 - 18:00 | Sunnudaga kl. 12:00 - 18:00 | Mánudaga - föstudaga kl. 10:00 - 18:30 | www.ikea.is
Settu strik í reikninginn með IKEA
24. júlí til 10. ágúst - Vinningar að verðmæti 3 milljónir króna
Færðu körfuna frítt? Með Fréttablaðinu í dag fylgir póstkort til þín frá IKEA. Á kortinu er
strikamerki. Taktu kortið með þér í IKEA, verslaðu og sýndu strikamerkið við kassann.
• Hundrað vinna 10 þúsund kr. úttekt
• Tíu vinna 50 þúsund kr. úttekt
• Einn vinnur 500 þúsund kr. úttekt
Og þú getur unnið miklu meira! Fylltu út þátttökuseðilinn á kortinu og komdu með það í IKEA.
Tíu heppnir viðskiptavinir vinna úttektir að verðmæti 100 þúsund kr. hver - samtals 1 milljón kr.
Ósvikin fjölskyldustemning í IKEA - fjöldi spennandi verðtilboða.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
I
KE
21
49
3
0
7/
20
03
ING, AP Kínversk kona sem
leiddi átta stúlkubörn í fyrra
seldi síðan var dæmd í tólf ára
gelsi. Konan seldi fimm
nanna til fjölskyldna í Guang-
ng-héraði en þrjú barnanna
u seld á markaði. Konan, sem
við kröpp kjör í Suður-Kína,
gnaðist um 350 Bandaríkjadali
ölunni, sem jafngildir 27 þús-
d íslenskum krónum. Auk
gavistar var konunni gert að
iða sekt sem nemur 28 þúsund
num.
Kínversk yfirvöld reyna nú að
ðva ört vaxandi viðskipti með
stúlkubörn. Kínverskir foreldrar
sem kjósa fremur drengi en
stúlkur hika ekki við að selja
stúlkubörn sín og sumir skilja
þau jafnvel eftir á víðavangi.
Fjölskyldur sem kaupa stúlku-
börn eru ýmist að ná sér í þjón-
ustustúlku eða brúði fyrir son
sinn.
Kínverska dómsmálaráðu-
neytið segir umfang viðskipta
með stúlkubörn ekki ljóst en að
minnsta kosti 10.000 stúlkubörn-
um var bjargað úr klóm sölu-
manna á þriggja mánaða tímabili
árið 2000. ■
Netnotkun í Kína:
Nota Netið
meir
KÍNA, AP Netnotendum í Kína fjölg-
aði um 15% síðustu sex mánuði og
eru þeir nú um 68 milljón talsins.
Á sama tíma fjölgaði kínverskum
vefsíðum um 28% og eru þær nú
474.000 talsins. Netnotendur eru
næstflestir í Kína, aðeins í Banda-
ríkjunum eru notendur fleiri, um
165 milljónir. Ungir einhleypir
karlmenn eru fjölmennastir í hópi
kínverskra netnotenda, sam-
kvæmt könnunum sem yfirvöld
framkvæma á hálfs árs fresti. Að
meðaltali eyðir hver notandi 13
klukkustundum á Netinu á viku.
Þar af fara 10 klukkustundir í ým-
iss konar leiki. ■
Fimmtán fórust:
Lentu undir
háspennulínu
HAÍTÍ, AP Fimmtán manns fórust
þegar háspennulína slitnaði og
féll ofan á áhorfendur á úrslita-
leik í körfubolta í strandbænum
Petit Coave á Haítí.
Skammhlaup í rafmagnskerf-
inu varð til þess að línan slitnaði
og féll til jarðar. Lenti hún á fjórt-
án karlmönnum og ellefu ára
gamalli stúlku, sem öll fengu ban-
vænt raflost. Tveir aðrir voru
fluttir á sjúkrahús vegna bruna-
sára.
Rafveitukerfi Petit Goave er
yfir hálfrar aldar gamalt og hefur
lítið verið við haldið. ■
GAPÚR, AP Að minnsta kosti
mtán indónesískar þjónustu-
lkur hafa látist eftir fall úr
ggum háhýsa húsbænda sinna í
gapúr það sem af er þessu ári.
Kartika Prawati, starfsmaður
diráðs Indónesíu í Singapúr,
ir ónógri þjálfun trúlega um að
na. Einhverjar hafi þó framið
lfsmorð, en dauðsföll stúlkn-
a séu enn í rannsókn. Sumar
nustustúlknanna féllu niður af
lum þegar þær voru að hengja
upp þvott, en aðrar hröpuðu þegar
þær voru að þrífa glugga.
„Við verðum að auka fræðslu og
þjálfun þessara stúlkna áður en
þær koma til Singapúr,“ sagði
Kartika Prawati.
Þúsundir kvenna frá Asíu flýja
fátæktina heima fyrir og ráða sig í
þjónustustörf hjá efnafólki í
Singapúr. Þarlend stjórnvöld sáu
ástæðu til þess fyrr í mánuðinum
að minna húsbændur á að gæta
þjónustufólks. Jafnframt voru
húsbændur minntir á að tilkynna
slys eða dauðsföll þjónustufólks
áður en tólf klukkustundir eru
liðnar frá slysi.
Á undanförnum fimm árum
hafa tæplega 100 þjónustustúlkur
látist eftir fall af svölum eða úr
gluggum háhýsa í Singapúr.
Stjórnvöld telja að einhver dauðs-
föll eða sjálfsvíg þjónustufólks
megi rekja til illrar meðferðar
húsbændanna. Stúlkurnar vinna
langan vinnudag, fá sjaldan eða
aldrei frídaga og þá er þeim mein-
að að yfirgefa heimili húsbænda
sinna. ■
TIL BETRA LÍFS
Indónesískar unglingsstúlkur flýja fátæktina heima fyrir og ráða sig meðal annars í þjón-
ustu hjá efnuðum fjölskyldum í Singapúr.
Þjónustustúlkur í Singapúr:
Hrapa í hrönn-
um til bana
EKKI STÚLKUR
Sala á stúlkubörnum er vaxandi vandamál í Kína. Foreldrar kjósa fremur drengi og freist-
ast til að yfirgefa eða selja stúlkurnar.
Seldi átta stúlkubörn:
Tólf ára fangelsi