Fréttablaðið - 24.07.2003, Blaðsíða 39

Fréttablaðið - 24.07.2003, Blaðsíða 39
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500 Bakþankar STEINUNNAR STEFÁNSDÓTTUR Í löggu og bófa Nú kemur þú golfinu á kortið Golfkort Búnaðarbankans – góður félagi innan vallar sem utan. • 20% afsláttur af vallargjöldum á völlum GSÍ. • 5–15% afsláttur í völdum golfverslunum. • Ferðatryggingar og neyðarþjónusta á ferðalögum erlendis. • SMS skilaboð með upplýsingum um stöðu og notkun kortsins. • MasterCard ferðaávísun fylgir Gull Golfkorti. • Ekkert stofngjald og frítt árgjald fyrsta árið. Búnaðarbankinn er aðal styrktaraðili GSÍ Gull Golfkort – víðtækar ferðatryggingar, MasterCard ferðaávísun og golftengd fríðindi. Almennt Golfkort – ferðatryggingar og golftengd fríðindi. Almennt Golfkort Plús – fyrirframgreitt greiðslukort. Ferðatryggingar og golftengd fríðindi. Viðskiptavinir geta fengið Golfkort Plús frá 12 ára aldri. Golfkortið er einungis fyrir félaga í Golfsambandi Íslands Hægt er að velja um þrjár tegundir korta Þú getur sótt um Golfkort á www.bi.is, í síma 525 6000, eða í næsta útibúi Búnaðarbankans Búnaðarbankinn styrkir Ólöfu Maríu Jónsdóttur Golfkort Búnaðarbankans – nýtt fullgilt kreditkort hlaðið golftengdum fríðindum www.bi.is Villta vestrið er enn til, nema núer það í austrinu. Í Írak. Upp- lausnin er alger, fólk þorir ekki út á götu af ótta við rán eða líkamsárásir. Þar virðist frumskógarlögmálið í fullu gildi þrátt fyrir að hættuleg yf- irvöld séu þar ekki lengur við völd. Og þarna eru menn eftirlýstir eins og í villta vestrinu, „wanted dead or alive“. Í VIKUNNI var ráðist til atlögu við syni Saddams og félaga þeirra og þeir skotnir á færi. Í kjölfarið fylgdu svo fréttir af því hvílík ómenni þeir bræður hefðu verið, hvor á sinn sér- staka hátt. Að því ógleymdu að fögn- uður hefði brotist út í Írak þegar fréttist af falli þeirra bræðra. Auð- vitað var mikilvægt að geta sýnt heiminum fram á árangur í Írak meðan ekki finnast vopnin og ekki heldur Saddam sjálfur. Og það tókst. Smám saman er saxað á lista eftir- lýstra ráðamanna í Írak, sumir hafa verið teknir höndum, aðrir drepnir. Ráðamenn ýmissa þjóða fagna, telja fall þeirra bræðra sigur fyrir Írak. Leitin að Saddam og vopnunum held- ur áfram. MAÐUR GETUR ekki annað en spurt sig að því hvar réttarríkið sé. Að vísu voru þessir synir Saddams engin börn og bera sína ábyrgð á ýmsum óhæfuverkum. Enginn efast um það. Og þeir voru meðal hinna 55 eftirlýstu Íraka sem nú er leitað log- andi ljósi. Það er hins vegar erfitt að sjá að með falli þessara tveggja kóna og hinna sem með þeim féllu verði straumhvörf hjá írösku þjóðinni. Viðbrögð þjóðarleiðtoganna hefðu verið skiljanleg ef gereyðingarvopn- in hefðu fundist, eða Saddam. HRYÐJUVERK eru vissulega ekki neitt grín og það þarf að berjast gegn þeim. Innrás í land er hins vegar ekki löggu og bófaleikur. Hún snýst um líf og limi fjölda manna, íbúa landsins sem ráðist er inn í og hermannanna ungu sem veljast í innrásarherinn. Hvert mannslíf er mikilvægt, þau eru ekkert til að leika sér með. Og er endilega víst að árangursríkast sé að reka illt út með illu? Það er að minnsta kosti ekki boðskapur Biblíunnar. En hún gildir kannski ekki í fyrrum Mesó- potamíu.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.