Fréttablaðið - 16.08.2003, Blaðsíða 2
2 16. ágúst 2003 LAUGARDAGUR
Nei, ég er að tala fyrir samþykkt-
um Framsóknarflokksins og hags-
munum almennings.
Kristinn H. Gunnarsson alþingismaður Framsókn-
arflokksins krefst þess að tekin verði upp línuíviln-
un fyrir dagróðrabáta strax í haust. Hann hefur
sagt að ef sjávarútvegsráðherra geti ekki staðið
við stefnu ríkisstjórnar og stjórnarflokka þá eigi
hann að víkja. Formaður Framsóknarflokksins seg-
ir kröfuna vera út í hött. Þá hefur Kristinn einn
stjórnarþingmanna gagnrýnt aðgerðarleysi ríkis-
lögreglustjóra í olíumálinu.
Spurningdagsins
Kristinn, ertu kominn í
stjórnarandstöðu?
■ Viðskipti
Annað réttarkerfi
fyrir áhrifamenn
Kristinn H. Gunnarsson ásakar lögreglu og ákæruvald fyrir að taka
ekki frumkvæði í sakarannsókn á olíumálinu. Haraldur Johannessen,
ríkislögreglustjóri, segir ummæli Kristins fráleit.
SAMKEPPNI „Aðgerðarleysi lög-
reglu og ákæruvalds í þessu mikla
svikamáli vekur mér grunsemdir
um að hér sé eitt réttarkerfi fyrir
almenning en
annað fyrir
áhrifamikla ein-
staklinga,“ segir
Kristinn H.
Gunnarsson, al-
þ i n g i s m a ð u r
F r a m s ó k n a r -
flokks og vara-
formaður efna-
hags- og við-
skiptanefndar
Alþingis, um þá
stöðu sem samráðsmál olíufélag-
anna er í þar sem ekki virðist vera
hægt að koma því til lögreglu-
rannsóknar.
Kristinn H. segir vera dæmi um
að lögregla hafi byrjað rannsókn á
málum af eigin frumkvæði. Þar
nefnir hann Spegilsmálið árið 1983
þegar ríkissaksóknari gerði lög-
reglu að gera upplag blaðsins upp-
tækt vegna meintra ærumeiðinga
og kláms en ákært var fyrir guðlast
og klám. Annað dæmi segir hann
vera endurupptöku Geirfinnsmáls
og hnífsstungumálið í sumar þegar
varnarliðsmaður var ákærður.
„Í þeim tilvikum áttu embætt-
in frumkvæði að aðgerðum og
enginn þurfti að kæra. Það er óá-
sættanlegt að samráðsmál olíu-
félaganna verði áfram í þeirri
stöðu sem það er nú. Kjarni
málsins er sá að lögregla og
ákæruvald eiga lögum sam-
kvæmt að hefja rannsókn. Ann-
að er óafsakanlegur undanslátt-
ur. Þegar er viðurkennt að um
var að ræða refsivert athæfi að
nokkru leyti og grunur er um
mun umfangsmeira brot á lögum
með sýndartilboðum í útboðum
og fyrirfram skiptingu ágóða,“
segir Kristinn.
Hann segist undrandi á þeim
röddum sem vilji kenna Samkeppn-
isstofnun um að ekki skuli hafa
tekist að koma af stað lögreglu-
rannsókn á meintum brotum þeirra
einstaklinga sem réðu ferðinni hjá
olíufélögunum á þeim tíma sem
rannsóknin nær til.
„Það er út í hött hjá lögreglu og
ákæruvaldi að gera Samkeppnis-
stofnun að blóraböggli í þessu máli.
Samkeppnisstofnun vakti upp mál-
ið og er að rannsaka það eins og
henni ber,“ segir Kristinn H.
„Um getgátur þess efnis að
pólitískur draugagangur fari um
réttarkerfið í landinu og stjórni
því hef ég ekkert að segja. Það er
svo fráleitt. Ég ætla ekki að taka
þátt í umræðu á þessu plani,“ seg-
ir Haraldur Johannessen ríkislög-
reglustjóri um ummæli Kristins.
rt@frettabladid.is
hrs@frettabladid.is
Fjölskyldur fórnarlamba fá hundruð milljóna í bætur:
Viðskiptaþvingunum
hugsanlega aflétt
WASHINGTON, AP Fjölskyldur fórn-
arlamba sprengjuárásarinnar yfir
bænum Lockerbie í Skotlandi fá
hver um sig sem svarar að
minnsta kosti 400 milljónum ís-
lenskra króna í bætur, samkvæmt
samningi sem lögfræðingar þeir-
ra hafa gert við stjórnvöld í Líbíu.
Líbíustjórn á að leggja sem
nemur um 215 milljörðum ís-
lenskra króna inn á svissneskan
bankareikning. Einnig er gert ráð
fyrir því að landið lýsi ábyrgð á
sprengjuárásinni á hendur sér í
formlegu bréfi til Sameinuðu
þjóðanna og yfirvöld veiti rann-
sóknaraðilum aðgang að þeim
upplýsingum sem þau hafa um at-
vikið. Gangi þetta eftir eru taldar
miklar líkur á því að SÞ aflétti
viðskiptaþvingunum af landinu en
ákvörðun um slíkt er í höndum ör-
yggisráðsins.
Ef Bandaríkin fallast á það að
hætta refsiaðgerðum gegn Líbíu
og taka hana af lista yfir þau lönd
sem styðja hryðjuverkasamtök
munu fjölskyldur fórnarlamb-
anna fá allt að 800 milljónum
króna í bætur.
Alls fórust 270 manns þegar
sprengja sprakk um borð í flugvél
Pan Am flugfélagsins yfir Locker-
bie árið 1988. Vélin var á leið frá
Lundúnum til Bandaríkjanna og
voru flest fórnarlömbin Banda-
ríkjamenn. ■
Óupplýst dauðsfall:
Lífsýni verða
send heim
LÖGREGLUMÁL Fjölskylda Hjálmars
Björnssonar, sem fannst látinn á
árbakka í Hollandi í fyrra, hefur
nú fengið umbeðin lífssýni úr
drengnum.
Í tilkynningu frá fjölskyldu
Hjálmars, sem var 16 ára þegar
hann fannst látinn í Rotterdam 29.
júní í fyrra, segir að bæði hvarf
hans og dánarorsök séu óupplýst.
Lífsýni úr drengnum verða send til
Íslands innan tíðar. Vonast fjöl-
skyldan til þess að frekari meina-
fræðileg rannsókn hér á landi
varpi ljósi á það hvernig lát hans
bar að og leiði til endurupptöku
málsins í Hollandi. ■
Tveggja ára barn:
Lokaðist í
hvelfingu
KALIFORNÍA, AP Tveggja ára gömul
stúlka var lokuð inni í bankahvelf-
ingu í meira en fimm klukku-
stundir áður en henni var bjargað
með því að bora gat á rammgerða
stálhurð.
Stúlkan, sem var dóttir eins af
gjaldkerum bankans, hafði ráfað
inn í hvelfinguna til að leika sér á
meðan starfsmenn voru að ganga
frá eftir lokun. Þegar farið var að
leita að barninu var búið að loka
hvelfingunni og vegna sérstaks
öryggisláss á hurðinni var ekki
hægt að opna hana aftur fyrr en
daginn eftir. Var því haft samband
við fyrirtæki sem gat borað nógu
stórt gat á hurðina til að barnið
gæti skriðið út.
Stúlkan var flutt á sjúkrahús til
aðhlynningar. ■
Lýðheilsustöð:
Fimmtán
sóttu um
LÝÐHEILSUSTÖÐ Fimmtán sóttu um
stöðu forstjóra Lýðheilsustöðv-
ar, en umsóknarfrestur rann út á
mánudag. Guðjón Magnússon
hafði verið skipaður forstjóri
stöðvarinnar, en ákvað að taka
ekki við starfinu eftir að beiðni
hans um fimmtán mánaða leyfi
frá störfum hafði verið hafnað.
Umsóknirnar verða sendar til
umfjöllunar nefndar sem skipuð
hefur verið af heilbrigðisráð-
herra. Nefndin mun skila áliti
sínu innan skamms og er gert
ráð fyrir því að forstjórinn hefji
störf í byrjun október. Jóhannes
Pálmason, lögfræðingur Land-
spítala, gegnir starfinu þangað
til, en hann var settur forstjóri
til bráðabirgða í fjarveru Guð-
jóns. ■
KONUNGLEGA DÓMSHÚSIÐ
Yfirheyrslur vegna rannsóknarinnar á
dauða David Kellys fara fram í Konunglega
dómshúsinu í Lundúnum.
Óháð rannsókn:
Campbell
ber vitni
LUNDÚNIR, AP Upplýsingafulltrúi
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, verður yfirheyrður í
tengslum við rannsóknina á dauða
vopnasérfræðingsins David
Kelly. Alastair Campbell mun
bera vitni á þriðjudaginn.
Í frétt breska ríkisútvarpsins,
BBC, var því haldið fram að
Campbell hefði látið gera breyt-
ingar á skýrslum ríkisstjórnar-
innar um vopnaeign Íraka til að
réttlæta hernaðaraðgerðir gegn
Írak. Að sögn BBC var fréttin
byggð á orðum Kelly.
Embættismenn hjá forsætis-
ráðuneytinu og varnarmálaráðu-
neytinu munu einnig bera vitni í
næstu viku auk blaðamanna hjá
Financial Times, Guardian, Times
og Sunday Times. ■
Laugavegur 53, sími 5523737
NÝJAR VÖRUR
SJÁVARÚTVEGSMÁL „Þeir hafa ekki
umboð til annars en að standa við
loforð um að setja á línuívilnun,“
segir Guðmundur Halldórsson.,
formaður smábátafélagsins Eld-
ingar á Vestfjörðum vegna
þeirra orða Davíðs Oddssonar
forsætisráðherra að Alþingi verði
að taka sér tíma til að fjalla um
málið og línuívilnun verði hugs-
anlega á næsta fiskiveiðiári. Með
þessu hefur Davíð snúist hugur
því hann sagði í kosningabarátt-
unni að ekkert væri því til fyrir-
stöðu að taka upp línuívilnunina
strax í haust. Haldinn var fundur
í Eldingu í seinustu viku þar sem
samþykkt var að berjast fyrir
réttlæti í þessu máli. Þá er stefnt
að stórfundi á Ísafirði um mánað-
armót. Guðmundur, sem stendur
á sjötugu, segir að stjórnarflokk-
arnir hafi „notað“ þetta mál í
kosningunum til að hala inn at-
kvæði og þeir mættu ekki komast
undan loforðum sínum. Hann seg-
ir að Árni Mathiesen sjávarút-
vegsráðherra geri allt til þess að
komast undan þessum loforðum
sem sé að finna í stefnuyfirlýs-
ingu ríkisstjórnarinnar. Þá hafi
Árni hótað sér því á fundi í
Reykjavík að tefja málið ef ekki
næðist sátt um að afnema
byggðakvótann til að slétta út
línuívilnunina.
„Hótanir sjávarútvegsráðherra
reka mig áfram í þessu máli. Með-
al minna manna er algjör einhug-
ur um að taka slaginn og berjast,“
segir Guðmundur. ■
FORELDRAR FÓRNARLAMBS
Susan og Daniel Cohen misstu dóttur sína
Theodoru þegar sprengja sprakk um borð í
flugvél bandaríska flugfélagsins Pan Am
árið 1988.
M
YN
D
/A
P
M
YN
D
/A
P
GUÐMUNDUR HALLDÓRSSON
Gefur hvergi eftir í baráttu sinni
fyrir línuívilnun.
Forsætisráðherra frestar kosningaloforði:
Davíð efni
loforðið strax
„Það er út í
hött hjá lög-
reglu og
ákæruvaldi
að gera Sam-
keppnisstofn-
un að blóra-
böggli.
KRISTINN H. GUNNARSSON
Saknar frumvkæðis lögreglu.
HARALDUR JOHANNESSEN
Segist ekki taka í umræðu á þessu plani.
SPARISJÓÐUR MEÐ HAGNAÐ
SPRON skilaði 202 milljóna
króna hagnaði eftir skatta fyrstu
sex mánuði ársins, sem er 70
milljónum meira en í fyrra.
Mestu munar að Frjálsi fjárfest-
ingabankinn hf. er nú hluti af
uppgjöri. Verðbréfaeign spari-
sjóðsins skilaði góðri ávöxtun en
hins vegar var hefðbundin lána-
starfsemi undir væntingum.