Fréttablaðið - 16.08.2003, Qupperneq 32
Sveinn keppti í hálfmaraþoni ísíðasta Reykavíkurmaraþoni
og lenti þar í öðru sæti, en var
engu að síður fyrstur íslenskra
keppenda. Í dag ætlar hann hins
vegar að spreyta sig í heilu mara-
þoni sem er 42 kílómetrar.
Hlaupið leggst vel í Svein:
„Þetta er annað maraþonið mitt á
árinu. Ég er ekkert ókunnugur
vegalengdinni en hef að vísu
aldrei hlaupið hana hérlendis.
Veðrið á eftir að ráða miklu í dag,“
segir Sveinn.
Hann segir það vera breytilegt
eftir árum hversu margir útlend-
ingar keppa í Reykjavíkurmara-
þoninu. „Útlendingar í fremstu
röð hafa verið að láta sig vanta.
Það mætti vera meira af þeim.“
Sveinn vill ekki viðurkenna að
það sé vonlaust að vinna maraþon-
ið þegar sterkir útlendingar eiga í
höggi við Íslendinga. „Þetta er
náttúrlega ein mesta samkeppnis-
íþróttin því það geta allir hlaupið.
Það er voðalega erfitt að stefna að
sigri í maraþoni. Þetta er óút-
reiknanleg vegalengd. Þetta er
eins og lífið. Sundum þarf að
reikna þetta allt saman út, en
stundum láta menn þetta bara
ráðast,“ segir Sveinn. „Sumir
safna maraþonum og hlaupa
mörgum sinnum á ári á meðan
aðrir stefna á færri maraþon með
meiri undirbúningi. Ég hef verið
að taka eitt til tvö maraþon á ári.“
Sveinn segir að leiðin sem
hlaupin er í maraþonum skipti
miklu varðandi stuðning áhorf-
enda. „Ég og systir mín Martha
[sem einnig keppir í Reykjavíkur-
maraþoninu í ár] viljum að leiðin
verði gerð áhorfendavænni og
fari jafnvel í gengum íbúðahverfi.
Ég hef keppt í maraþoni í London,
Frankfurt og Berlín. Að vera t.d. í
London þar sem 600.000 áhorfend-
ur eru meðfram brautinni er ótrú-
leg reynsla. Svona fyrirkomulag
er miklu skemmtilegra bæði fyrir
áhorfendur og keppendur.“
Sveinn, sem er 36 ára gamall líf-
fræðingur, segist ekki vera á þeim
buxunum að hætta að hlaupa á næst-
unni. „Ætli ég detti ekki niður dauð-
ur í miðju hlaupi þegar ég verð orð-
inn fjörgamall. Það er alveg hægt að
hugsa sér verri dauðadaga.“
freyr@frettabladid.is
28 16. ágúst 2003 LAUGARDAGUR
■ Bækur
Lítil stúlka: „Hvers vegna segir sonurþinn alltaf „gagg, galla gó?“
Móðirin: „Vegna þess að hann heldur
að hann sé kjúklingur.“
Lítil stúlka: „Af hverju segirðu honum
ekki að hann er ekki kjúklingur?“
Móðirin: „Vegna þess að við þurfum á
eggjunum að halda.“
Pondus eftir Frode Øverli
Með súrmjólkinni
Maraþonhlaup
SVEINN ERNSTSSON
■ ætlar að keppa í Reykjavíkurmara-
þoninu sem hefst í dag. Hann segir það
hafa verið ótrúlega reynslu að hlaupa í
London innan um 600.000 áhorfendur.
Síðustu dagar
útsölunnar
Enn
meiri verð-
lækkun
Tvær
spennubækur
fyrir ung-
linga, Setulið-
ið og Tara,
eru komnar
út hjá Bóka-
útgáfunni
SÖLKU. Báð-
ar bækurnar
eru eftir
Ragnar Gísla-
son.
Setuliðið segir frá krökkum í
Hafnarfirði sem finna beinaleifar
auk fjársjóðs. Tara fjallar um
djúpa og sérstæða vináttu sem
nær yfir landamæri þessa heims
og annars.
Laugardagskvöldin í lífi ÞóruKarítas Árnadóttur, semstjórnar Hjartslætti á Skjá 1
ásamt Marikó Ragnarsdóttur,
hafa verið ansi skrautleg í sumar.
Hún hefur nefnilega verið óvenju
dugleg við að henda sér úr jogg-
inggallanum fræga til þess að
klæða sig upp fyrir dansinn.
„Laugardagskvöldin hafa mörg
endað þannig að ég hef verið
dansandi fram eftir nóttu á ein-
hverjum skemmtistað,“ segir
Þóra Karítas sem hefur auðheyr-
anlega átt gott sumar. „Ég labbaði
reyndar upp á Keili um daginn
sem var mjög heilsusamlegt, það
er sniðugt að gera það og fara svo
í bláa lónið á eftir og svo auðvitað
dansa um kvöldið. Það eru allir
búnir að vera svo duglegir við það
að fara út að skemmta sér í kunn-
ingjahópnum í sumar, bæði þeir
sem eru á lausu og blýföstu. Ég
held að það sé vegna þess að það
er búið að vera svo gott veður.“
Grillveislunar hafa heldur ekki
verið fáar í sumar. Á laugardegin-
um um Verslunarmannahelgina
fór hún meira að segja í tvær. „Sú
seinni var mjög skemmtileg. Hún
var haldin í fjölbýlishúsi og allir
fengu að bjóða öllum sem þeir
þekktu. Einhver hafði sett upp
sófa og stofuborð fyrir utan. Svo
var allt í klessu og tónlistin við
myndina Svartur köttur/Hvítur
köttur leikin. Við húsið var svo lít-
il brekka þar sem tveir gaurar
héldu skemmtiatriði og voru með
brekkusöng.“
Aðallega voru þetta einhverjar
klámvísur en Þóra viðurkennir að
mislukkuð tilraun af Kartöflu-
söng Árna Johnsen hafi fengið að
óma, svona fyrir þá sem sáu eftir
því að hafa ekki farið á Þjóðhátíð.
Þóra getur lítið sagt um það
hvort hún komi til með að róast
eitthvað með kólnandi veðri.
Baruglurnar mega því alveg eins
eiga von á því að rekast á hana í
vetur. „Mér finnst reyndar mjög
kósý að fara í leikhús á veturna og
ef það er kalt þá dansa ég bara
heima í stofu,“ segir hún að lokum.
Fjórir þættir eru eftir af
Hjartslætti og eftir það taka önn-
ur verkefni við.
biggi@frettabladid.is
ÞÓRA KARÍTAS ÁRNADÓTTIR
Laugardagskvöldin enda oft á því að hún dansi fram á morgunn.
Laugardagskvöld
ÞÓRA KARÍTAS ÁRNADÓTTIR
■ segir sumarið hafa verið mjög
blómlegt. Hún og Mariko hafa verið með
Hjartsláttin á Skjá 1 og skemmt sér vel.
En hvað gerir stúlkan á
laugardagskvöldum.
Djamm
og klámvísur
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
SVEINN ERNSTSSON
Vonast eftir góðu veðri í mara-
þoninu í dag.
Óútreiknanlegt eins og lífið
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
...Steinsmuga er í algjörum
sérflokki hér á Þúfnavöllum...
Já! Já!
Áfram
Steinsmuga!
Mala þetta!
...í algjörum
sérflokki...
Sem betur fer er
bara einn fábjáni
þarna einhvers
staðar sem veðjaði á
þessa truntu!
Til hamingju!