Fréttablaðið - 31.08.2003, Blaðsíða 1
STJÓRNMÁL Davíð Oddsson forsætis-
ráðherra nýtur langmests trausts
kjósenda samkvæmt skoðanakönn-
un Fréttablaðsins. Um 34 prósent
aðspurðra nefndu hann sem þann
stjórnmálamann sem þeir treystu
best, en næst kom Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir með tæp 16 prósent. Það
er mun minna fylgi en hún hefur
áður fengið í sambærilegum könn-
unum blaðsins er snýst um traust.
Sem fyrr er Davíð umdeildur.
Nánast jafnmargir og segjast
treysta honum, segjast ekki treysta
honum, eða tæp 30 prósent. Ingi-
björg Sólrún kemur þar næst með
um 16 prósent. Össur Skarphéðins-
son, flokksbróðir hennar og formað-
ur Samfylkingarinnar, kemur fast á
hæla Ingibjargar hvað varðar van-
traust, en tæp 14 prósent aðspurðra
sögðust treysta honum minnst. Að-
eins þrjú prósent segjast hins vegar
treysta honum mest allra stjórn-
málamanna.
Athygli vekur að á meðal
nýrra einstaklinga á lista yfir þá
sem njóta lítils trausts er nýr
þingmaður, Sigurður Kári Krist-
jánsson, en tæp 3 prósent nefndu
hann sem þann stjórnmálamenn
sem minnst er treystandi. Aðrir
hástökkvarar á þeim lista eru
Kolbrún Halldórsdóttir og Gunn-
ar Örlygsson.
Nánar á síðu 26.
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500
Tónlist 42
Leikhús 42
Myndlist 42
Íþróttir 36
Sjónvarp 44
SUNNUDAGUR
31. ágúst 2003 – 207. tölublað – 3. árgangur
HRYÐJUVERK
Í ÍRAK Íraska
lögreglan hand-
tók í gær fjóra
menn, tvo Íraka
og tvo Sáda, sem
grunaðir eru um
að hafa komið
sprengjunni fyrir í
bíl við Iman Ali-moskuna í Najaf í Írak á
föstudag. Hinir handteknu tengjast allir
hryðjuverkasamtökunum al-Qaida. Að
minnsta kosti 100 létust. Þetta er þriðja
stóra hryðjuverkið í Írak í ágúst. Hand-
bragðið þeirra allra er keimlíkt að sögn
Bandarísku alríkislögreglunnar. Sjá síðu 2.
INTERPOL Á HREINDÝRAVEIÐUM
Stefán Hrafn Magnússon, hreindýrabóndi á
Suður-Grænlandi, fékk hóp bandarískra
auðjöfra og embættismanna í veiðiferð. Í
hópnum voru milljarðamæringar og yfir-
maður Interpol. Til stóð að forseti Banda-
ríkjanna kæmi með en hann hætti við. Sjá
síðu 8.
GÖGN TEPPTUST Svar við fyrirspurn
um greiðslur Reykjavíkurborgar til Stefáns
Ólafssonar prófessors dagaði uppi hjá skrif-
stofustjóra borgarstjórnar um miðjan maí.
Kjartan Magnússon borgarfulltrúi fékk
loksins á föstudag. Hann áfellist ekki skrif-
stofustjórann. Sjá síðu 6.
VEÐRIÐ Í DAG
EINN HLÝJASTI ÁGÚSTMÁNUÐUR
sem menn muna kveður landsmenn með
dumbungi um allt land. Undan hitastiginu
þarf þó varla að kvarta.
LÍNUR SKÝRAST Staðan á botni Land-
símadeildarinnar skýrist í leikjum dagsins.
Neðstu lið deildarinnar Fram, Valur og KA
leika öll leiki í dag sem geta ráðið úrslitum
um í hvaða deild þau leika að ári. Valur og
KA mætast á Hlíðarenda klukkan 18.
Frammarar mæta FH á Laugardalsvelli
klukkan 20.
DAGURINN Í DAG
Davíð nýtur mests trausts
Davíð Oddsson er sá stjórnmálamaður sem nýtur mests trausts kjósenda.
Eins og áður nýtur hann þó einnig minnsts trausts.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
JA
RG
EY
ÍSLANDSMEISTARAR KR-stúlkur urðu Íslandsmeistarar í gær þegar þær lögðu Stjörnuna að velli með fimm mörkum gegn einu. Ást-
hildur Helgadóttir og Þórunn Helga Jónsdóttir skoruðu tvö mörk hvor fyrir KR og Hólmfríður Magnúsdóttir eitt. Nánar á síðu 38.
Feður mótmæla
Meðlimir í Félagi ábyrgra feðra stóðu fyrir mótmælum við Sýslumannsembættið í Hafnarfirði í vikunni. Þeir
mótmæla því að mæður komi í veg fyrir að þeir sjái börnin sín og að réttarkerfið skuli draga taum mæðranna í
forræðismálum. Feður hafa staðið fyrir samskonar mótmælum víða erlendis og hreyfingu þeirra vex ásmeginn.
Ingibjörg Sólrún:
Verður ekki
pakkað í
kassa
VIÐTAL „Ég vil ekki vera eins og
fáni sem er dreginn að húni fyrir
kosningar og svo
bara dreginn niður
aftur og pakkað nið-
ur í kassa að þeim
loknum,“ segir
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir. „Þess
vegna fannst mér
mikilvægt að það kæmi fram að
ég stefndi að því að bjóða mig
fram til formanns eftir tvö ár.“
Sjá nánar bls. 20 - 21.
Öryggismál í Líberíu:
Íslendingur
yfirmaður
LÍBERÍA Íslenskur lögreglumaður
tekur við starfi yfirmanns örygg-
ismála Sameinuðu þjóðanna í
Líberíu í byrjun september.
Nánar á síðu 23.
▲
SÍÐUR 24 og 25
Íslensk hneyksli
og skandalar
Fjölmörg mál hafa farið fyrir brjóstið á
þjóðinni á undanförnum árum. Hvaða
mál eru þetta og hverjir eru mestu
skandalarnir á Íslandi á síðustu fimm
árum?
Gerir dansverk
um fótbolta
Hollenski danshöfundurinn Lonneke van
Leth hefur samið dansverk fyrir Íslenska
dansflokkinn um fótbolta. Verkið gerist
á landsleik milli Hollands og Íslands.
▲
SÍÐA 23
Landsbankinn í sókn:
Straumur á
viðskiptin
VIÐSKIPTI Spenna er í viðskiptalíf-
inu eftir kaup Landsbankans og
Samsonar á hlutum í fjárfesting-
arfélaginu Straumi.
Nánar á síðum 14 - 15.
▲
SÍÐUR 28 og 29