Fréttablaðið - 31.08.2003, Side 45
SUNNUDAGUR 24. ágúst 2003
Nú hefur loksins fengist stað-festing á því að tökur á
fjórðu mynd-
inni um
Indana Jones
hefjist næsta
sumar. Harri-
son Ford hef-
ur einnig
staðfest að
hann muni
mæta aftur í
hlutverk fornleifafræðingsins.
Sean Connery verður einnig með.
Steven Spielberg er þó hættur
við að leikstýra myndinni en ætl-
ar að framleiða hana. George
Lucas fær svo það hlutverk að
semja söguna en handritið verður
skrifað af Frank Darabont.
Enn ein sönnunin fyrir því aðhjónabönd í Hollywood endast
ekki varð ljós á föstudag þegar
hjónin Ethan
Hawke og
Uma Thur-
man greindu
frá því að
þau væru að
skilja. Ástæð-
an er sú að
Hawke átti í
ástarsam-
bandi við kanadíska fyrirsætu á
meðan hann var við tökur á mynd
þar í landi. Uma komst að þessu í
gegnum slúðurblöðin þrátt fyrir
ítrekaðar tilraunir hans til að
halda sambandi þeirra leyndu.
Þau voru gift í fimm ár og eiga
tvö börn saman.
Eins og við mátti búast er mik-ið gert úr því að grafa upp á
yfirborðið vafasöm atriði úr for-
tíð Arnold Schwarzenegger. Nú
birtist
skyndilega
viðtal sem
hann gaf
þýska ljós-
bláablaðinu
Oui árið 1977
aftur á síðum
blaðsins. Þar
sagðist
Arnold oft
hafa tekið þátt í hópsexi með fé-
lögum sínum úr vaxtaræktinni og
að hann gerði mikið af því að
sofa hjá kvenkyns aðdáendum
sínum. Arnold viðurkennir allt og
segir einfaldlega að þetta sér for-
tíð hans og hann hafi aldrei lifað
lífi sínu með það í huga að verða
stjórnmálamaður.
Kántrígoðið Johnny Cash varlagður inn á spítala á
fimmtu-
dagskvöld-
ið. Hann
ætlaði sér
að koma
fram á
mynd-
bandaverð-
launahátíð
MTV en
varð að
hætta við
vegna magakveisu. Talsmenn
hans segja að hann sé á batavegi.
Cash, sem er orðinn 71 árs gam-
all, missti nýlega eiginkonu sína.
Skrýtnafréttin
45
SÆNSKAR BULLUR
Það er kannski ekki von að Fylkir hafi gert jafntefli við Svíana á Laugardalsvelli á dögun-
um. Og þeir eru dottnir út úr keppninni því Svíar unnu heimaleik sinn. Sænsku bullurnar
komust því áfram. Enda frekar vígalegir og langt í að Íslendingar komi sér upp jafnrosa-
legum stuðningsmönnum og eru úti í heimi. Sumir höfðu orð á því í stúkunni að þessir
menn hlytu að vera einhverskonar nýnasistar en það fékkst ekki staðfest.
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/VILH
ELM
Átta ára gömul stúlka varð áfimmtudag yngsta mann-
eskjan til þess að klífa þrjá
hæstu tinda Bretlands á innan
við sólarhring.
Rebecca Shedden, sem kemur
frá bænum Hoyland Common,
kleif Snowdon, Scafell Pike og
Ben Nevis á 23 klukkustundum
og fimmtán mínútum.
Samanlögð hæð þessa tinda er
um 3,3 kílómetrar. Auk þess gekk
hún 38,6 kílómetra á leið sinni að
tindunum. Faðir stúlkunnar var
ferðafélagi hennar en móðir
hennar ferjaði þau á milli staða í
fjölskyldubíl sínum.
Til þess að fagna áfanga sín-
um hljóp stúlkan tæpan kílómet-
er.
„Mér finnst skemmtilegast að
ganga í myrkrinu,“ sagði stúlkan
í samtali við The Sun. „Ég var
ekkert hrædd en var orðin mjög
þreytt á Scafell Pike.“
Breska fjallgönguráðið stað-
festi að Rebecca væri yngsta
manneskjan til þess að hafa klif-
ið tindana þrjá á sama sólar-
hringnum. Hún hafði farið upp á
þá alla áður. Hún var sex ára þeg-
ar hún fyrst upp á Scafell Pike.
Næsta stopp feðginana verður
víst að klífa Kilimanjaro, hæsta
fjall Afríku. ■
SCAFELL PIKE
Það er nú ekki margir sem nenna að
drasla sér upp á einn svona, hvað þá þrjá
... á sama degi.
Átta ára fjallgöngu-
garpur slær met
Fréttiraf fólki