Fréttablaðið - 31.08.2003, Side 2
2 31. ágúst 2003 SUNNUDAGUR
„Ætli við verðum ekki að taka mið
af því við yfirstandandi endur-
skoðun leiðarkerfisins.“
Guðjón Ólafur Jónsson er stjórnarformaður
Strætós bs. Bankaræningi einn á leið úr ráni á
Seltjarnarnesi hugðist nýta sér þjónustu Strætó en
var handtekinn með feng sinn í biðskýli skammt
frá bankanum.
Spurningdagsins
Guðjón, er ekki hægt að hafa stoppi-
stöðvarnar nær bönkunum?
■ Lögreglufréttir
Al-Qaida að baki
hryðjuverkinu
Fjórir menn voru í gær handteknir vegna hryðjuverkaárásarinnar á
Shíta-múslima í Najaf. Að minnsta kosti 100 létust. Þetta er þriðja stóra
hryðjuverkið í Írak í ágúst. Handbragðið þeirra allra er keimlíkt að sögn
FBI.
NAJAF, AP Írakska lögreglan hand-
tók í gær fjóra menn, tvo Íraka og
tvo Sáda, sem grunaðir eru um að
hafa komið sprengjunni fyrir í bíl
við Iman Ali-moskuna í Najaf í
Írak á föstudag. Hinir handteknu
tengjast allir hryðjuverkasamtök-
unum al-Qaida.
Sprengjunni
var komið fyrir í
bíl við Iman Ali-
moskuna í Najaf
og sprakk þar
skömmu eftir
bænastund mús-
líma.
Að minnsta
kosti 107 létust í
árásinni á Iman
Ali-moskuna í gær og á annað hund-
rað særðust. Meðal þeirra sem fór-
ust var Mohammed Baqir al-
Hakim, einn virtasti leiðtogi Shíta-
múslima í Írak. al-Hakim hafði unn-
ið náið með hernámsliðinu að und-
anförnu. Hann hafði verið í 20 ár í
útlegð í Íran og hefur þriggja daga
þjóðarsorg verið lýst yfir í Íran
vegna drápsins.
Árásin á Iman Ali-moskuna er
þriðja alvarlega hryðjuverkið í
Írak í mánuðinum. Skemmst er að
minnast árásarinnar á höfuðstöðv-
ar Sameinuðu þjóðana í Bagdad þar
sem 23 létust og árásar á sendiráð
Jórdaníu í Bagdad þar sem 19 lét-
ust. Hundruð hafa særst í þessum
árásum.
Bandaríska alríkislögreglan,
FBI, fullyrðir að sama handbragð
hafi verið á hryðjuverkaárásinni
við Iman Ali-moskuna á föstudag
og við hryðjuverkaárásina á höfuð-
stöðvar Sameinuðu þjóðanna í
Bagdad á dögunum. FBI segir að
700 kílógrömmum af sprengiefni
hafi verið komið fyrir í tveimur bíl-
um fyrir utan moskuna, rétt eftir að
föstudagsbænum lauk og var mikill
mannfjöldi fyrir framan Iman Ali-
moskuna.
Þúsundir Shíta-múslima komu
þar saman í gær og mótmæltu
drápunum. Fylgismönnum Sadd-
ams er kennt um ódæðið og hefnd-
um er hótað. Fólkið er líka reitt út í
Bandaríkjamenn fyrir að geta ekki
tryggt öryggi í Írak.
Leiðtogar erlendra ríkja hafa
fordæmt hryðjuverkið. Kofi Ann-
an, framkvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna gagnrýndi árásina einnig
og sagði hana óverjandi.
the@frettabladid.is
Baráttan um Skeljung:
Upplýsingagjöf var ábótavant
VIÐSKIPTI Kauphöll Íslands telur að
betur hefði mátt standa að upplýs-
ingagjöf varðandi viðskipti með
bréf Skeljungs þann 30. júní. Þá
keyptu Sjóvá-Almennar og Skelj-
ungur hlut Shell Petroleum í fé-
laginu. Dráttur varð á því að við-
skiptin væru tilkynnt í Kauphöll
Íslands. Kauphöllin sendi frá sér
yfirlýsingu vegna þessara við-
skipta. Kauphöllin telur æskilegt
að send hefði verið tilkynning um
fyrirhuguð viðskipti. Stór við-
skipti voru með bréfinu á genginu
12 á sama tíma og verð á markaði
var á bilinu 15 til 15,7. Telur
Kauphöllin að í þeim viðskiptum
hefðu menn átt að halda að sér
höndum þangað til eignarhald var
að fullu ljóst.
Kauphöllin getur beitt þrenns
konar athugasemdum í slíkum
málum. Hægt er að áminna með
trúnaðarbréfi, birta opinbera
áminningu eða beita sektum.
Þórður Friðjónsson forstjóri
Kauphallarinnar segir yfirlýsing-
una ígildi áminningar. „Við töld-
um mikilvægt að koma skilaboð-
um til markaðarins um vandaða
upplýsingagjöf í stað þess að
senda hlutaðeigandi bréf.“
Hann leggur áherslu á að
Kauphöllin hafi einungis með
verðmyndun og upplýsingar að
gera. Sá þáttur sem snýr að inn-
herjaviðskiptum og hugsanlegum
brotum þar að lútandi séu á hendi
Fjármálaeftirlitsins. ■
LUNDI
Pysjan, afkvæmi lundans, leitar í ljósadýrð-
ina í Vestmannaeyjum og þarfnast hjálpar
til að komast í sín náttúrulegu heimkynni.
Vestmannaeyjar:
Hermenn
bjarga pysj-
um
FERÐALÖG Fjöldi ferðamanna er nú
í Vestmannaeyjum til að taka þátt
í að bjarga villuráfandi pysjum.
Afkvæmi lundans hneigjast til að
leita í ljósið í mannabyggðum á
Heimaey, afvegaleidd frá náttúru-
legum heimkynnum. Níutíu ferða-
menn komu með Herjólfi á föstu-
daginn til að veita pysjunum
hjálparhönd. Pysjurnar eru settar
í kassa og þeim sleppt fram af
hömrum.
Að sögn lögreglunnar í Eyjum
er nú mikið um ferðir bandarískra
hermanna af Keflavíkurflugvelli
sem njóta þess að bjarga pysjun-
um frá illum örlögum í manna-
byggðum. ■
ERILL Í KÓPAVOGI
Mikið var að gera hjá lögreglunni í
Kópavogi frá föstudagskvöldi
fram á laugardag. Lögreglan sinnti
fjórum umferðaróhöppum, vinnu-
slysum, afstungumálum og gripu
auk þess tvö ungmenni með fíkni-
efni. Lögreglan varðist frekari
frétta af málunum.
DANSAÐ Í BORGAFIRÐI
Lögreglan í Borgarnesi átti ró-
legt föstudagskvöld og voru
skemmtistaðir lítið sóttir. Yfir
hundrað manns mættu þó á töðu-
gjaldadansleik í Þverárrétt, þar
sem Geirmundur Valtýsson spil-
aði. Þras og rifrildi fólks leystist
án pústra, en lögregla leitaðist
við að róa æsta menn.
SKRÍLSLÆTI Í MIÐBÆNUM
Margmenni lagði leið sína í mið-
borg Reykjavíkur aðfaranótt
laugardags til að sækja skemmti-
staði. Töluverð ölvun var í tengsl-
um við skemmtanirnar og skríls-
læti, að sögn lögreglunnar í
Reykjavík. Skemmtunin gekk þó
stórslysalaust fyrir sig, eftir því
sem lögreglan komst næst.
HENTI SÉR Í HÖFNINA
Ölvuð kona stökk í höfnina í
Keflavík á föstudagskvöldið. Lög-
reglumenn voru vitni að atvikinu
og stukku tveir á eftir henni í sjó-
inn. Nokkuð gott var í sjóinn og
hann með eindæmum hlýr. Lög-
regluþjónarnir náðu konunni á
land og varð henni ekki meint af
volkinu.
AFSKRÁNING
Fyrirtækið Skeljungur er ekki lengur skráð
á markaði. Þar með er ekkert olíufélaga
lengur skráð í Kauphöll Íslands.
Skeljungur afskráður:
Kauphöll-
in olíulaus
HLUTABRÉFAMARKAÐUR Olíufélagið
Skeljungur hefur verið afskráður
úr Kauphöll Íslands í kjölfar þess
að eignarhaldsfélagið Steinhólar
yfirtóku félagið. Þar með er ekk-
ert olíufélag lengur skráð í kaup-
höllinni. Vísitala olíudreifingar
hefur verið lögð af í kjölfarið. Ol-
íufélögin Ker og OLÍS voru af-
skráð fyrr á árinu vegna yfirtöku.
Skeljungur er tólfta félagið
sem er afskráð á árinu. Ekki er
þar með sagt að öll félögin hafi
horfið úr Kauphöllinni. Nokkur
hafa runnið saman við skráð fyr-
irtæki. Fyrir utan olíufélögin hafa
fyrirtæki eins og Baugur og Ís-
lenskir aðalverktakar verið af-
skráð.
Heildarverðmæti fyrirtækja í
Kauphöllinni hefur þó ekki
minnkað eins og ætla mætti.
Markaðsverðmæti skráðra fyrir-
tækja hefur vaxið á árinu og veg-
ur það upp á móti missinum af af-
skráðum fyrirtækjum.
Að mati forsvarmanna Kaup-
hallarinnar er ekki ástæða til þess
að hafa áhyggjur af þessari þró-
un. Hún sé eðlileg og í samræmi
við það sem hefur verið að gerast
í Kauphöllum annars staðar í
heiminum. ■
GENF, AP Alþjóðaviðskiptastofnun-
in hefur fallist á að leyfa þróunar-
löndum að flytja inn ódýr sam-
heitalyf gegn lífshættulegum
sjúkdómum á borð við alnæmi,
malaríu og berkla.
Fulltrúar aðildarríkjanna 146
komust á fimmtudag að sam-
komulagi um að veita fátækum
löndum aðgang að ódýrum lyfj-
um. Ganga átti frá samningnum á
fundi stofnunarinnar í Genf á
föstudag en snurða hljóp á þráð-
inn. Útlit var fyrir að endanlegri
afgreiðslu málsins yrði frestað
fram að leiðtogafundi Alþjóðavið-
skiptastofnunarinnar í Mexíkó
dagana 10. til 14. september en
samkomulag tókst í gær.
Fulltrúar Bandaríkjanna hjá
Alþjóðaviðskiptastofnuninni
höfðu áhyggjur af því að heimild-
in yrði misnotuð af lyfjafyrir-
tækjum í Brasilíu, á Indlandi og
víðar. Bandaríkin ákváðu þó að
samþykkja tillöguna þegar hin að-
ildarríkin höfðu heitið því að
reyna að koma í veg fyrir að
verslað yrði með samheitalyf
geng sjúkdómum sem hvorki eru
smitandi né banvænir. ■
„Árásin á
Iman Ali-
moskuna er
þriðja alvar-
lega hryðju-
verkið í Írak í
mánuðinum
KREFJAST HEFNDA
Þúsundir Shíta múslima komu saman við Iman Ali-moskuna í Najaf í gær til að mótmæla
hryðjuverkaárás sem varð rúmlega 100 manns að bana. Meðal þeirra sem fórust var
Mohammed Baqir al-Hakim, einn virtasti leiðtogi Shíta-múslima í Írak. Mótmælendur
krefjast hefnda vegna ódæðisins.
Leit hafin að 14 ára
stúlku í Bretlandi:
Hvarf með
46 ára karl-
manni
KENT, AP Umfangsmikil leit er haf-
in um allt Bretland að Stacey
Marie Champ, 14 ára stúlku sem
talin er hafa horfið með David
Milner, 46 ára karlmanni.
Stúlkunnar hefur verið saknað
síðan á fimmtudagsmorgun.
Milner, sem er náinn vinur fjöl-
skyldu stúlkunnar, hefur undan-
farna daga tekið út rúmlega þús-
und sterlingspund af reikningi
sínum og er óttast að hann hafi
farið með stúlkuna úr landi.
Móðir stúlkunnar kom fram á
blaðamannafundi í gær og hvatti
dóttur sína til að snúa heim. ■
VIÐSKIPTIN MEÐ SKELJUNG
Kauphöll Íslands telur upplýsingagjöf hafa
verið ábótavant í viðskiptum með bréf
Skeljungs. Afstaðan til þess hvort um
óeðlileg innherjaviðskipti hafi verið að
ræða er á forræði Fjármálaeftirlitsins.
LÍBERÍSKUR MALARÍUSJÚKLINGUR
Samkomulagið veitir meðal annars fjölda fólks í fátækum ríkjum Afríku aðgang að ódýr-
um lyfjum gegn malaríu.
Ódýr samheitalyf handa þróunarlöndum:
Samkomulag loks í höfn
Fjölskylda Laxness:
Leggst gegn
ævisögu
BÓKMENNTIR Fjölskylda Halldórs
Laxness leggst gegn ævisagnaritun
Hannesar Hólmsteins Gissurarson-
ar á lífshlaupi skáldsins. Tveir höf-
undar vinna að ævisögu skáldsins
og fjölskyldan styður Halldór Guð-
mundsson. „Við þekkjum Halldór
og hann þekkti föður okkar. Halldór
er bókmenntafræðingur, en Hannes
er stjórnmálafræðingur. Ég skil
ekki af hverju hann ryður sér inn á
annarra manna svið. Hins vegar
getum við ekki bannað neinum að
skrifa bók,“ segir Sigríður Hall-
dórsdóttir Laxness.
Hannes Hólmsteinn Gissurar-
son vildi ekki tjá sig um málið. ■