Fréttablaðið - 31.08.2003, Side 11

Fréttablaðið - 31.08.2003, Side 11
11SUNNUDAGUR 31. ágúst 2003 Ég get ekki orða bundist eftirlestur á grein sem Gunnar Örlygsson birti í Fréttablaðinu 27. ágúst sl. Rangfærslurnar eru svo margar að manni dettur helst í hug að verið sé að greiða fyrir laxveiðileyfi með grein- inni. Það má vel þykja smekk- legt að laxveiði sé það dýr á Ís- landi að einungis erlendir auð- menn hafa efni á þokkalegum dögum í bærilegum ám, og auð- vitað þingmenn og bankastjórar sem þangað er boðið, en í öðrum löndum er talið eðlilegt að al- menningur eigi greiðan aðgang að veiðiám fyrir hófleg gjöld. Laxeldi - hætta? Hér í Mið-Noregi er mikið um laxeldi. Í sveitarfélaginu sem ég starfa er framleitt u.þ.b. 13-15.000 tonn af slægðum laxi árlega. Við þetta starfa í eldi, slátrun og flökun um 120 manns. Í viðbót koma að öll þjónustustörf s.s. slippur, vöru- flutningar, netaverkstæði, fóð- urframleiðsla o.s.frv. Í tveimur nálægum sveitarfélögum er framleiðslan enn meiri, þrátt fyrir þau séu í nálægð við eina bestu laxveiðiá í Noregi, Nam- sen. Þó að óhöpp hafi átt sér stað og laxar sloppið úr kvíum, sem er reyndar mjög sjaldgæft, er sú á enn við besta líði. Reyndar svo góð að síðasta ár var metveiði í ánni. Nútíma laxeldi er byggt á þekkingu sem iðnaðurinn hefur byggt upp síðustu 30 árin. Þar á meðal eru allar staðsetningar sem laxinn er alinn hvíldar eftir einn eldisferil. Þetta gerir það að verkum að allur úrgangur sem þar kynni að vera hefur hafstraumur fjarlægt áður en staðsetningin er notuð að nýju. Þegar norskt laxeldi óx sem mest var flutt til Noregs mikið af íslenskum laxaseiðum. Þau þóttu mjög góð og Íslendingar voru mjög framarlega í fram- leiðslu á seiðum. Ekki heyrðist þá mikið um að íslenskur lax ógnaði norskum ám. Metralög af skít „Metralög af skít“ fyrirfinn- ast ekki í norskum fjörðum, enda eru einungis firðir sem eru með góða sjávarstrauma notaðir til laxeldis. Gunnar hefði vel getað kynnt sér þetta með að spyrja menn með lág- marksþekkingu á laxeldi. Árin 1998-2001 seldist norsk- ur lax fyrir 300 - 350 kr/kg. Framleiðslukostnaður á laxi er u.þ.b. 180 kr./kg. Þessar tölur sýna að framlegð þessara ára var stórkostleg fyrir iðnaðinn. Þeir aðilar sem hafa verið í fiskiðnaði í lengri tíma vita að verð sveiflast mikið milli mán- aða og nota þeir góðæristíma til að safna í sarpinn. Þau fyrir- tæki standa vel í dag. Ganga sum hver með smá hagnaði þrátt fyrir lægstu verð sem nokkurn tímann hafa fengist fyrir lax. Síðustu tvö árin hafa verið iðnaðinum þung vegna ógnarvaxtar Chile í laxeldi sem varð þess valdandi að verðhrun átti sér stað á helstu mörkuðum. Lágt verð, mikið af sameining- um og yfirtökum á fyrirtækj- um, gjarnan með lánsfé og út- boðum á verðbréfamarkaði, hafa skapað óróleika í iðnaðin- um. Þessi fyrirtæki s.s. Fjord Seafood og Pan Fish þurfa að standa undir gríðarlegum fjár- magnskostnaði, u.þ.b. 40-50 kr/kg. Eðlilega tapa fyrirtækin peningum þegar laxverð er 160- 170 kr/kg. ■ Dagana sem Davíð Oddssonformaður Sjálfstæðisflokks- ins gaf drottningarviðtöl sín að hann hefði tryggt áframhaldandi hersetu á Íslandi með því að taka þátt í hernámi Íraks svo þar mætti byggja „lýðræðisríki“, sá ég þrjá fréttamenn á tveimur sjónvarpsstöðum ræða við hann. Allir tengdust þeir á einhvern hátt skrifstofum Sjálfstæðisflokksins. Mér fannst þetta frekar broslegt og hugsaði: Já, landið er lítið. Daginn sem Kastljósþáttur RÚV boðaði til umræðu hvort Björn Bjarnason hefði verið að hygla náfrænda Davíðs Oddsonar þegar hann skipaði hæstarréttar- dómara, var m.a. kallaður í sjón- varpssal náfrændi Björns til að verja gerðir hans. Þá hló ég og hugsaði: Já, þau hafa bara húmor unga fólkið í Kastljósinu. En daginn áður, þegar Björn Bjarnason var í viðtali hjá Ara Sigvaldasyni á RÚV, brosti ég hvorki né hló. Þar svaraði hann spurningu Ara, hvort frændsemi Ólafs Barkar við Davíð hefði eitt- hvað ráðið ákvörðun hans, á eftir- farandi hátt: „Það eru ómálefna- legar ástæður, það er ómálefna- legt af þér að spyrja á þessum for- sendum og það væri ómálefnalegt af mér að taka ákvörðun um það á þessum forsendum. Ég tók ákvörðunina á málefnalegum for- sendum, þess vegna er hún hafin yfir gagnrýni.“ Þarna hvorki brosti ég né hló yfir lýðræðislegri umræðu á Íslandi. Mig setti hljóða. Mér var hugsað til þeirrar fornu menningarþjóðar í Mesa- pótamíu sem Björn og Davíð eru að hjálpa Bush við að gera að „lýð- ræðisríki“. Hvernig ætli hún myndi bregðast við þessum orð- um íslensks dómsmálaráðherra um að ákvarðanir hans séu hafnar yfir gagnrýni? Vissulega hefur þjóðin búið lengi við einræðis- stjórn en ég býst við að hún myndi kurteislega benda honum á að í Kóraninum sé hvergi minnst á Björn Bjarnason þar standi aðeins „Allah er hinn almáttugi og hinn alvitri“. ■ Rangfærslur um laxeldi Andsvar ARI JÓHANNES- SON ■ verksmiðjustjóri hjá laxeldisfyrirtækinu Nils Williksen, Rörvik í Noregi, skrifar um lax- eldi Umræða .MARÍA KRIST- JÁNSDÓTTIR ■ leikstjóri skrifar um skipan hæstaréttar- dómara Hver er hafinn yfir gagnrýni? HÆSTIRÉTTUR „Mér var hugsað til þeirrar fornu menningarþjóðar í Mesapótamíu sem Björn og Davíð eru að hjálpa Bush við að gera að „lýðræðisríki.“

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.