Fréttablaðið - 31.08.2003, Qupperneq 22
Karlmenn hafa borið sig illayfir því hvernig farið er með
kynbræður þeirra í gamanþáttum
í sjónvarpi, en aðalpersónur
bandarískra sjónvarpsþátta eru
iðulega latir, sjálfselskir og væru-
kærir, hvítir, karlmenn á miðjum
aldri og flestir of feitir. Þeir virð-
ast flestir byggðir á höfuðpáfa
húðlatra og treggáfaðra sófa-
rottna, sjálfum Hómer Simpson.
Þeir smellpassa inn í klisjukennda
hellisbúakenninguna og kunna
best við sig fyrir framan sjón-
varpið með bjór í annarri og rusl-
fæði í hinni. Þessir hjassar eru
ekki beinlínis aðlaðandi, en eiga
þó nær allir gullfallegar, bráðgáf-
aðar konur sem umbera þá og
reyna að hafa stjórn á heimsku-
pörum þeirra.
Fallegar konur og feitir
menn
Þeim karlmönnum, sem sárnar
þessi birtingarmynd kynbræðra
sinna mest, hafa látið að því liggja
að þessi lenska sé enn ein sönnun-
in fyrir því að kvenréttindabarátt-
an sé komin út í öfgar. Þær hafi
tekið völdin á heimilinu og í af-
þreyingariðnaðinum og geri sér
það að leik að grafa undan karl-
mennskunni.
Þórunn Hrefna Sigurjónsdótt-
ir, blaðamaður, hefur kynnt sér
stöðu karlmanna í amerískum
gamanþáttum og hefur meðal
annars skrifað grein um þessa
hysknu steríótýpu í Veru. Hún
segist vel geta skilið að venjuleg-
um körlum úti í bæ sé misboðið,
en telur viðbrögð þeirra fulltil-
finningaþrungin enda sé staða
karlanna enn sterk ef vel er að
gáð.
„Ætlunin er sennilega ekki sú
að niðurlægja karlkynið, enda
held ég að gamanþáttaraðir eigi
að láta öllum líða vel, bæði konum
og körlum. Víst eru konurnar
greindar og fallegar, en karlarnir
sannanlega mun síðri. Fallegu
konurnar eru samt sem áður svo
ástfangnar af þessum feitu og vit-
lausu körlum sínum að þær varpa
starfsframa sínum fyrir róða til
þess að hugsa um börnin og heim-
ilið, þvo af þeim þvottinn og elda
handa þeim mat. Karlarnir vinna
einir úti og þó að þeir kunni að
hafa lítið til brunns að bera
stjórna þeir fjárstreyminu inn á
heimilin. Fallegu konurnar eru
þeim því fjárhagslega háðar.“
Kóngur í ríki sínu
Þórunn Hrefna nefnir þætt-
ina King of Queens sem dæmi
um þetta. Í þáttunum er
skyggnst inn í líf barnlauss pars
sem hefur föður konunnar inn á
heimili sínu. „Heimilisfaðirinn
er fitubolla sem hugsar mest um
mat og sjónvarp og á það til að
hafa hugann við ídýfur og sósur,
þegar konan hans er að reyna að
tala við hann um mikilvæg mál-
efni. Húsbóndinn reynir iðulega
að fara á bakvið konuna, sem lít-
ur út eins og velþjálfað súper-
módel, með fíflalega hegðun
sína, en alltaf kemst upp um
hann. Hann skemmir líka hluti
og slasar sig á fáránlegan hátt,
en alltaf verður hann að endingu
að reiða sig á náð og miskunn
konu sinnar, sem er bæði jarð-
bundin og góð.“
Þrátt fyrir þetta er eiginkon-
an háð karlinum þegar kemur að
fjármálunum, en þar ræður
hann og getur gert það sem hon-
um sýnist.
Sömu sögu er að segja af
Hómer Simpson. Hann ræður
yfir peningunum og kemur fjöl-
skyldunni ítrekað í klandur með
fáránlegum fjárfestingum og
heimskupörum. Eiginkonan,
Marge, veit alltaf betur en hefur
ekki hemil á karlinum og styður
oftast við bakið á honum. Karl-
arnir eru því vissulega heimskir
í þáttunum, en samt taka þeir
allar meiriháttar ákvarðanir og
konurnar gefa eftir.
Huggun harmi gegn
Þórunn Hrefna er ekki frá
því að þessum ýktu persónum sé
ætlað að friða bæði kynin.
„Kannski er þetta allt til þess að
karlar meti konur sínar að verð-
leikum og hugsi: Konur eru ekki
eins vitlausar og þær líta út fyr-
ir að vera. Þær hafa kannski
minni völd en karlar og eiga inn-
an við eitt prósent af auði jarð-
ar, en þær hafa nú samt ýmis-
legt að segja inni á heimilunum.
Svo við skulum hlusta á þær
og vera góðir við þær.
Kannski er þetta líka til að
sætta heimavinnandi konur við
stöðu sína. Í þáttunum fá þær að
vera með ýmsar spælingar fram
og til baka, fá að vita betur en
karlarnir, en í raun breytir það
engu um það hvar valdið liggur.
Þær eru fjárhagslega háðar
maka sínum og hann tekur enn
allar stórar ákvarðanir. Þær
geta þá ornað sér við spaugsyrði
kynsystra sinna í þáttunum og
sagt:
Iss! Konur eru nú miklu
greindari en karlar.“
Þórunn Hrefna segist hafa
skrifað greinina í Veru til þess
að hugga þá karla sem telja sig
eiga um sárt að binda eftir að
hafa horft á þessa þætti og legg-
ur áherslu á að hún sé ósammála
því að þættirnir séu til marks
um það að konur séu búnar að
„valta yfir“ karlana og bendir á
að það sé aðeins á yfirborðinu
sem konurnar virðist hafa betur.
„Mig langar til dæmis að
benda þeim á að allir eru þætt-
irnir kenndir við karlana þó að
þeir greini frá samskiptum
22 31. ágúst 2003 SUNNUDAGUR
Gáfaðar konur sætta
sig við heimska menn
Margur karlmaðurinn er
ósáttur við þá meðferð
sem kynbræður þeirra fá
í gamanþáttum í sjón-
varpi. Einhverjir halda
því fram að feiti, lati,
heimski sjónvarpskarlinn
sé sönnun þess að kven-
réttindabaráttan sé kom-
in út í öfgar. Á sama tíma
öfundast þeir út í ýktar
birtingarmyndir sínar
sem eiga flestar glæsileg-
ar og gáfaðar konur og
þegar vel er að gáð hafa
karlar yfirhöndina ennþá
- líka í sjónvarpinu.
■ Gamanþættir
Skjár einn sýnir mikið af amer-ískum gamanþáttum og kemur
því nokkuð við sögu þegar það
kemur að því að rugla saman reit-
um sjónvarpsparanna þannig að
hver fái maka við sitt hæfi. Doug
Heffernan er aðalpersóna þátt-
anna The King of Queens á Skjá
einum. Hann er sendibílstjóri í
góðum holdum og minnir um
margt á Hómer Simpson þó hann
sé ekki gulur á hörund. Hann er
latur og frekar tregur og veitir
ekkert af ákveðinni konu til þess
að hafa hemil á dellunni í honum
og píska hann áfram.
Mimi Bobeck, sem hrellir
Drew Carrey í samnefndum þátt-
um á Skjá einum, er svæsnasti og
tannhvassasti pilsvarg-
ur sem sést hefur
í sjónvarpi í
háa herrans tíð. Hún hefur að vísu
fundið hinn fullkomna maka í
bróður Drews sem er klæðskipt-
ingur. Það er engu að síður freist-
andi að siga henni á kónginn í
Queens, sem myndi ekki komast
upp með neitt rugl ef þessi lit-
skrúðuga drottning tæki völdin í
ríki hans. ■
MIMI BOBECK
skýtur karlpeningnum
oft skelk í bringu og
hikar ekki við að beita
menn bæði andlegu og
líkamlegu ofbeldi. Doug
yrði eins og mús undir
fjalarketti ef leiðir þeirra
lægju saman.
Doug og Mimi:
Skrattinn hittir
ömmu sína
DOUG HEFFERNAN
er hyskinn og sérgóður og kemst
oft upp með vitleysu og leiðindi á
heimilinu. Það er ansi hætt við því
að hljóðið breyttist í honum ef
hann tæki
saman við
frenjuna
Mimi Bo-
beck.
Mörgum þykir perlu kastaðfyrir svín þegar þeir horfa
upp á hina föngulegu Carrie
Heffernan kljást við treggáfaðan
eiginmann sinn í þáttunum The
King of Queens á Skjá einum.
Hann er latur hjassi en hún gæti
hæglega starfað sem fyrirsæta.
Þar fyrir utan er hún glögg og
metnaðarfull og starfar sem ritari
hjá lögfræðistofu.
Þau hjónin eiga því fátt sam-
eiginlegt og þar sem engin börn
eru í spilinu ætti ekkert að aftra
Carrie að segja skilið við kallinn
og taka saman við lögfræðinginn
Bobby Donnell sem stjórnar lög-
fræðistofunni í The Practice.
Bobby ber af öðrum mönnum
hvað útlit og útsjónasemi í laga-
flækjum varðar og veit líka alveg
hvað hann vill, rétt eins og Carrie.
Þau yrðu svakalegt par sem
myndi glansa í gegnum hanastéls-
veislur og flókin réttarhöld. ■
BOBBY DONNELL
er að vísu hörkutól og getur verið
kaldlyndur en er þrátt fyrir það sjálf-
sagt vænlegri
kostur en
Doug
Heffernan.
CARRIE HEFFERNAN
er að margra mati allt of góð
fyrir eiginmann sinn, kónginn í
Queens. Það gæti
hentað henni betur
að leita maka í
öðrum þáttum á
Skjá einum, til
dæmis The
Practice þar
sem hin fjall-
myndarlegi
Bobby
Donnell
ræður ríkj-
um.
Carrie og Bobby:
Falleg saman
DÆMIGERÐUR SJÓNVARPSKARL
Hómer Simpson er sá karldurgur í amer-
ísku sjónvarpi sem aðrir slíkir eru helst
bornir saman við. Hann er vitaskuld ýktast-
ur en ef til vill um leið mannlegastur.
ÞÓRUNN HREFNA SIGURJÓNSDÓTTIR
Hómer er fullkominn vanviti í öllu tilliti; barnauppeldi, heimilisstörfum, félagslífi og sem manneskja. Hann hefur til að bera ýkta
„karllega“ eiginleika, hefur gaman af að borða og glápa á sjónvarpið, elskar tæki og íþróttir, er sóðalegur, sköllóttur með stóra ístru ... og
hann á konu, Marge, mun greindari en hann, en stendur þó fullkomlega við bakið á honum í því sem hann tekur sér fyrir hendur.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M