Fréttablaðið - 31.08.2003, Side 23
SUNNUDAGUR 31. ágúst 2003 23
Nánari upplýsingar í síma +45 7025 2577
www.tmdanmark.dk
pS ánn
30 ára reynsla með spánskar húseignir afhentar
beint frá byggingaraðila á umsömdum tíma.
Sýningaferðir með leiðsögn á dönsku eða ensku.
Costa Blanca ströndin hefur
eitt heilsusamlegasta loftslag
veraldar, skv. WHO.
Velkomin á k
ynningu
sem haldin v
erður á
Hótel Loftleiðir-
Flugleiðahótel v
ið Hlíðarfót,
Reykjavíkurfl ug
velli
laugard. 6. og
sunnud. 7. se
p. kl. 10-17
Mikið úrval af vönduðum
húseignum á Costa
Blanca ströndinni á mjög
hagstæðu verði.
Við veitum yður alla
nauðsynlega aðstoð í sam-
bandi við fasteignakaup/
búsetu á Spáni.
T M I N T E R N A T I O N A L
Það er með ólíkindum að spaug-aranum Chandler Bing úr Fri-
ends hafi tekist að krækja í
grafalvarlegu vinkonuna, Monicu
Geller. Þau eru að vísu bæði
taugaveikluð, hvort á sinn hátt en
Monica er með fullkomnunar-
áráttu og Chandler lætur illa að
stjórn. Afsakanir hans og brand-
arar hitta því æ sjaldnar í mark
hjá frúnni og hann yrði miklu bet-
ur í sveit settur ef hann tæki sam-
an við Drew Car-
rey.
Carrey er alltaf með kaldhæðin
tilsvör á takteinum og er, rétt eins
Chandler, að drepast úr minni-
máttarkennd og óöryggi þannig
að þeir félagar myndu örugglega
finna sálarró í örmum hvors ann-
ars. Þar fyrir utan eiga þeir það
sameiginlegt að fólk virðist aldrei
geta hætt að efast um kynhneigð
þeirra. ■
Niles Crane hlýtur að vera hinnfullkomi eiginmaður fyrir
Monicu Geller úr Friends. Hann
toppar hana í smámunasemi og er
þar fyrir utan annálaður herramað-
ur, fágaður í smekk á mat, vín og föt.
Monica er auðvitað eðalkokkur
og Niles er líka liðtækur í eldhúsinu.
Heimili þeirra yrði glansandi
himnaríki þar sem hver hlutur væri
á sínum stað. Alltaf. Svo er Niles
hálærður geð-
læknir sem
gæti komið
sér vel og
sparað stór-
útgjöld þegar
frúin fær móðursýkisköst.
Lífið er bara því miður ekki
fullkomið í sjónvarpinu frekar en
raunveruleikanum og þannig
virðast flestar persónur banda-
rískra gamanþátta æða um í villu
og svima án þess að hafa hug-
mynd um að sú eina rétta, eða eini
rétti, er innan seilingar. Annað
hvort ofar, neðar, eða til hliðar á
dagskrársíðum dagblaðanna. ■
Niles og Monica:
Fædd fyrir hvort
annað
NILES CRANE:
Er geðlæknir,
fagurkeri,
snyrtipinni
og mont-
hani. Full-
kominn
fyrir
Monicu.
MONICA GELLER:
Taugaveikluð með
fullkomnunaráráttu.
Hefur ekkert að
gera með framtaks-
lausum brandara-
kalli. Gæti þurft
á geðlækni
að halda.
CHANDLER
BING
Brandarkall
með minni-
máttarkennd.
Þetta verður
ekki betra.
DREW CARREY
Brandarakall
með minnimátt-
arkennd.
Drew og Chandler:
Fyndnir sálufélagar
hjóna og samskiptum fjöl-
skyldna. Það rennir ennfremur
stoðum undir það að þeir séu
enn „húsbóndar á sínu heimili“
þó að þeir hegði sér eins og hálf-
vitar. Þeir hafa fjárráðin og það
er undirstaðan, eins og allir vita
sem lifa í kapitalísku samfélagi.“
Karnival heima í stofu
Staða kynjanna er því óbreytt þó
karlarnir séu dregnir sundur og
saman í háði á sjónvarpsskjánum.
Þórunn Hrefna skýrir þetta með því
að vísa til karnivals miðalda þar
sem leyfilegt var að gera miskunn-
arlaust grín að valdhöfum á ákveðn-
um dögum.
„Stundum var leyfilegt að vald-
hafarnir væru dregnir sundur og
saman í háði og það var talið nauð-
synlegt til þess að draumórar þegn-
anna um breytt ástand létu síður á
sér kræla. Þegar þegnunum var tal-
in trú um það í gamanleikjum að
kóngurinn væri nautheimskur, þá
leið þeim einhvern veginn betur inn
í sér og hugsuðu: „Ég er gáfaðari en
hann, þó að hann sé valdameiri“.
Þórunn Hrefna segir að þetta sé
ennþá gert og bendir á forseta
Bandaríkjanna, sem dæmi. „Einn
valdamesti maður heims, George W.
Bush, er til að mynda talinn mjög
heimskur og í öllum skemmtiþátt-
um er hann leikinn sem slefandi fá-
viti. Þegnar hans orna sér við að
hlæja að honum, en það breytir því
ekki að Bush er enn valdamesti
maður heims.
Íslenskir karlmenn ættu því að
geta speglað sig rólegir í banda-
rísku afþreyingarefni, enda vita
klókir valdhafar að það er góðs viti
ef einhver hlær að þeim. Það er
nefnilega ekki gert grín að undir-
málsmönnum, eins og fátæklingum,
öryrkjum, útlendingum ... og kon-
um.“
thorarinn@frettabladid.is
Ég komst að því að
það er ekki verið að gera lít-
ið úr körlunum enda held ég
að gamanþáttaröðum sé
ætlað að láta öllum líða vel,
bæði konum og körlum.
Konurnar eru greindar og
fallegar og karlarnir, sem eru
algerir fávitar, ná samt í
þessar konur.
,,
Íslendingur tekur við starfi yfirmanns öryggismála Sameinuðu þjóðanna í Líberíu
í byrjun september næstkomandi. Hann heitir Snorri Magnússon er fyrrum lög-
reglumaður í Reykjavík. Starfið leggst vel í hann.
Íslendingur tryggir
öryggið í Líberíu
Ég þurfti ekkert að hugsa migum, enda var ég búinn að
ákveða að vera í þessu í einhvern
tíma“, segir Snorri Magnússon
fyrrum lögreglumaður á Íslandi.
Hann tekur um þessar mundir við
starfi yfirmanns öryggismála
Sameinuðu þjóðanna í Líberíu.
„Ég er í fríi á Íslandi núna en fer
til Líberíu í byrjun september,“
segir hann
Snorri hefur starfað hjá hjá
Sameinuðu þjóðunum í Kosóvó
frá því í apríl 2001 og starfaði hjá
öryggisgæslunni þar. „Þetta er
nokkurs konar innanhússlögregla
SÞ,“ segir hann, „og ég var þar
yfir deild sem sér um gæslu allra
bygginga SÞ í Pristina. Það var
svo hringt í mig í fríinu hérna
heima núna og mér var boðið að
stjórna innri öryggismálum í Lí-
beríu.“
Þetta verður að teljast mikil
upphefð og vafalítið verður um
krefjandi starf að ræða, miðað
þær fregnir sem borist hafa frá
Líberíu undanfarið. Snorri var
lögreglumaður hér heima áður en
hann fór á vegum embættisins til
Bosníu árið 1999. „Ríkisstjórnin
ákvað árið 1997 að taka þátt i frið-
arstarfi á vegum SÞ í Bosníu og
lögreglumönnum bauðst þá að
sækja um,“ segir Snorri. „Ég
gerði það og fékk þessa bakteríu
og hef verið í þessu síðan þá og
sótti í framhaldinu um vinnu hjá
Sameinuðu þjóðunum en þær hafa
eiginlega dregið sig alveg út úr
Bosníu og Evrópusambandið hef-
ur tekið við þar.“
Fjölskyldan eftir heima
Snorri er 39 ára gamall, giftur
og þriggja barna faðir. Fjölskyld-
an fylgir honum ekki á átakastað-
ina og býr á Íslandi. „Það eru eng-
ar aðstæður til þess að vera með
fjölskyldu þarna og það er bein-
línis mælt gegn því á stöðum sem
eru að koma út úr stríðsástandi.“
Snorri er yfirleitt við störf þrjá
mánuði í senn og kemur þess á
milli heim í þriggja til fjögurra
vikna frí. „Ég er samt í stöðugu og
góðu sambandi við fjölskylduna
enda eru öll fjarskiptamál hjá SÞ í
góðu lagi. Það er alls konar fólk að
störfum á þessum svæðum á veg-
um samtakanna og mikið um fjöl-
skyldufólk þannig að það er séð til
þess að við getum verið í góðu
síma- og tölvusambandi í gegnum
gervihnött við fjölskyldur okkar.“
Börn Snorra eru á unglings-
aldri og hann segir þau svolítið
spennt fyrir því sem hann er að
gera, þó að þeim finnist það erfitt
á köflum. Starfið felur auðvitað í
sér talsverða áhættu, en það er
ekki á Snorra að heyra að hann
kvíði mikið fyrir, enda hefði hann
þá sjálfsagt valið sér annan
starfsvettvang. „Það er alltaf
áhætta í þessu starfi, en ef það er
rétt haldið á spöðunum og maður
er ekki með neinn fíflagang á
þetta að vera allt í lagi,“ segir
hann.
thorarinn@frettabladid.is
SNORRI MAGNÚSSON
Fékk símtal frá Sameinuðu þjóðunum og hefur verið beðinn að sinna
starfi yfirmanns öryggismála í Líberíu.
■ Sameinuðu þjóðirnar
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
JA
RG
EY