Fréttablaðið - 31.08.2003, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 31.08.2003, Blaðsíða 30
■ Bandaríkin 30 31. ágúst 2003 SUNNUDAGUR Bandarísk stjórnmál eiga sér sínar spaugilegu hliðar. Bob Dole forseta- og varaforsetaframbjóðandi hefur gefið út tvær bækur þar sem hann rifjar upp broslegu hliðina á stjórnmálum þar í landi. Með bros á vör (næstum) alla leið í Hvíta húsið Einn þekktasti þingmaðurrepúblíkana á síðustu öld er Bob Dole sem lengi var leiðtogi þeirra í öldungadeild bandaríska þingsins. Dole gerði tvær tilraun- ir til að komast í Hvíta húsið, fyrst þegar hann bauð sig fram til varaforseta 1976 með Gerald Ford gegn Jimmy Carter, og aftur 20 árum síðar þegar hann bauð sig fram sem forsetaefni repúblíkana gegn demókratanum William J. Clinton. Þótt forsetadraumar Doles hafi ekki náð að rætast hefur hann ekki tapað kímnigáfunni, og síðan hann hætti í stjórnmálum hefur hann gefið út tvær bækur um fydni. Önnur þeirra fjallar um fyndni stjórnmálamanna en sú síðari (sem þykir ekki eins fynd- in) fjallar um fyndni Bandaríkja- forseta. Lincoln á leið á þing Í bók sinni um fyndni stjórn- málamanna kemur Bob Dole víða við og rifjar upp margar skemmtilegar sögur. Ein þeirra er sagan af því þegar Abraham Lincoln bauð sig fyrst fram til þings, en hann var repúblíkani. Mótframbjóðandi hans var prest- ur að nafni Peter Cartwright sem var ekki yfir það hafinn að ætla að veiða nokkur atkvæði á því að gera lítið úr trúarhita Lincolns. Á sameiginlegum framboðsfundi þrumaði presturinn lengi og pré- dikaði eld og brennistein yfir þeim sem ekki sæktu kirkju reglulega. Í ræðulok bað hann svo þá fundarmenn sem vildu komast til himnaríkis að gera svo vel að rísa úr sætum. Góður hluti fund- armanna reis þegar í stað á fætur. Þá sagði Cartwrigth: „Nú bið ég þá sem ekki vilja fara til vítis að standa upp.“ Og þar með risu allir á fætur nema Abraham Lincoln. Prédikarinn beindi því athyglinni að honum og spurði háum rómi: „Og má ég spyrja, hr. Lincoln, á hvaða leið eruð þér?“ Lincoln reis þá loksins á fætur og sagði: „Úr því að séra Cartwright vill endilega fá að vita það, get ég upplýst að ég er á leið- inni á þing.“ Og þangað fór hann. Fámáll forseti Sagt er að flestir stjórnmála- menn séu málglaðir. Undantekning frá þeirri reglu var Calvin Coolidge Bandaríkjaforseti sem þótti með þöglari mönnum. Einu sinni skrapp hann til messu og þegar hann kom heim spurði kona hans um hvað stólræða prestsins hefði verið. „Syndina,“ sagði Coolidge. „Og hvað sagði hann um synd- ina?“ spurði forsetafrúin. „Hann var á móti henni,“ sagði Coolidge. Hinn þögli Coolidge var ekki að- eins spar á orð, hann var líka spar- samur á peninga. Einhverju sinni spurði hann varnarmálaráðherr- ann: „Af hverju getum við ekki lát- ið duga að smíða eina herflugvél? Geta flugmennirnir ekki skipst á að fljúga henni?“ Sagt er að Coolidge hafi ein- hverju sinni verið að taka fyrstu skóflustunguna að opinberri bygg- ingu. Þegar hann hafði lokið því lét siðameistarinn á sér skilja að það væri við hæfi að forsetinn segði eitthvað við þetta tækifæri. Coolidge horfði ofan í skóflufarið og sagði svo hrifinn: „Flottur ána- maðkur.“ Tvö orð Einhverju sinni var forsetan- um fengin borðdama sem var ákaflega skrafhreyfin. Hún sagði við forsetann að hún hefði veðjað um að hún gæti fengið hann til að segja meira en tvö orð meðan á borðhaldinu stæði. Þegar þau risu á fætur eftir kaffið sagði Coolidge: „Þú tapar.“ Herbert Hoover tók við for- setaembættinu af Coolidge sem gaf honum heilræði: „Þú þarft að taka á móti gestum í þrjá til fjóra klukkutíma á dag. Flestir þeirra eru komnir til að biðja um eitt- hvað sem þeir verðskulda ekki að fá. Ef þú situr grafkyrr þá ljúka þeir sér af á þremur, fjórum mín- útum. En ef þú svo mikið sem hóstar eða brosir þá byrja þeir upp á nýtt.“ Coolidge lést í janúar 1933. Sagt er að þegar blaðakonan Dorothy Parker heyrði andláts- fregnina hafi hún sagt: „Hvernig geta menn séð það?“ Fyndnir demókratar Bob Dole segir frá Adlai Stevenson demókrata sem bauð sig fram í forsetakjöri gegn Dwight Eisenhower, og tapaði. Stevenson, sem var vel menntaður og orðlagður gáfumaður, heyrði einhvern aðdáanda sinn í hópi há- skólafólks segja að hann ætti sig- urinn vísan því að allir hugsandi menn mundu kjósa hann. „Það er ekki nóg,“ sagði Stevenson þá, „ég þarf að ná meirihluta.“ Ef repúblíkanar eru reiðubúnir til að hætta að segja ósannindi um demókrata erum við reiðu- búin að hætta að segja sannleikann um repúblík- ana.“ - Stevenson ,, BOB DOLE Forsetaframbjóðandinn fyrrverandi hefur lag á að sjá björtu hliðarnir á málunum þótt hann hafi hrasað tvisvar á leið sinni í Hvíta húsið. Síðan hann hætti í stjórnmálum hefur hann gefið út tvær bækur um fyndni. CALVIN COOLEDGE Var spar á orð og peninga. Stundum kallaður „maðurinn með steinandlitið“. EDWARD KENNEDY Hafði ekki unnið ærlegt handtak áður en hann byrjaði í pólitík. JOHN F. KENNEDY Fullur fyrirgefningar en minnugur á nöfn. ABRAHAM LINCOLN Komst snemma vel að orði. EUGENE MCCARTHY Sagði stjórnmál ekki ósvipuð knattspyrnu.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.