Fréttablaðið - 31.08.2003, Síða 34
34 31. september 2003 SUNNUDAGUR
rað/auglýsingar
Antik húsgögn
frá Kerela,
til sölu að Smiðjuvegi 6,
rauð gata
Opið laugardag
og sunnudag frá 11-18
Til skjólstæðinga
Heilsugæslunnar Efstaleiti
Frá og með mánudeginum 1. september munu
læknar stöðvarinnar hefja vaktþjónustu á eftirmið-
dagsvakt, sem verður opin frá kl. 16-18 alla virka
daga, mánudaga til föstudaga. Þetta er gert til að
auka og bæta þjónustu við skjólstæðinga
stöðvarinnar. Ekki þarf að panta tíma.
Heilsugæslan Efstaleiti
Starf hjá skipulagsfulltrúa
SKIPULAGS- OG BYGGINGARSVIÐ
Arkitekt - Skipulag
Auglýst er eftir arkitekt/skipulagsfræðingi í
tímabundið starf og vegna átaksverkefna hjá
embætti skipulagsfulltrúa á skipulags- og
byggingarsviði Reykjavíkurborgar.
Helstu verkefni
Starfið er krefjandi og fjölbreytilegt í vistlegu
starfsumhverfi. Í því felst m.a. almenn for-
sagnargerð ásamt umsjón með ákveðnu
afmörkuðu svæði innan borgarinnar, þar sem
m.a. er unnið að stefnumótun við gerð nýs og
endurskoðaðs deiliskipulags og umfjöllun um
umsóknir og erindi sem berast skipulags og
byggingarnefnd. Starfið veitir góða innsýn í
skipulagsstörf á sveitarstjórnarstigi.
Hæfniskröfur
Umsækjandi þarf að hafa háskólamenntun á
sviði skipulagsmála í arkitektúr/skipulags-
fræðum, geta unnið sjálfstætt og jafnframt
eiga auðvelt með samvinnu og samskipti.
Æskileg er staðgóð þekking og starfsreynsla
á sviði skipulags- og byggingarmála
Umsóknir, ásamt greinargóðum upplýsingum
um menntun og fyrri störf berist starfsmanna-
haldi skipulags- og byggingarsviðs Borgartúni
3, 105 Reykjavík, fyrir 10. september n.k.
Launakjör eru skv. kjarasamningi Reykjavíkur-
borgar og viðkomandi stéttarfélags.
Viðkomandi þyrfti að geta hafið störf sem fyrst.
Reykjavíkurborg vill ná og viðhalda sem
jöfnustum hlut kynja í starfsstéttum og
stofnunum og eru því karlar jafnt sem konur
hvattir til að sækja um stöðuna.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Helga
Bragadóttir skipulagsfulltrúi í síma 563-2600.
Embætti skipulagsfulltrúa myndar aðra megin-
stoð skipulags- og byggingarsviðs og starfar á
grundvelli skipulags- og byggingarlaga.
Skipulagsfulltrúi vinnur að undirbúningi stefnu-
mótunar í skipulagsmálum og hefur umsjón með
gerð aðalskipulags og deiliskipulags.
Hlutverk skipulagsfulltrúa er m.a. að vinna að
gerð skipulags sem tekur mið af hagsmunum
heildarinnar og miðar að faglegri mótun byggðar
og umhverfis.
Hlutverk skipulags- og byggingarsviðs er m.a. að
veita borgarbúum, borgarfulltrúum, ráðgjöfum,
hönnuðum, byggingarverktökum og öðrum þeim
sem á þurfa að halda, góða þjónustu, ráðgjöf og
upplýsingar um skipulags- og byggingarmál.
Sviðið er jafnframt stefnumótandi í skipulags- og
byggingarmálum borgarinnar í samvinnu við
skipulags- og byggingarnefnd.
Frekari upplýsingar um sviðið og embætti
skipulagsfulltrúa er að finna á heimasíðu
www.skipbygg.is
Skemmtilegu jazzballett og freestyle námskeiðin
okkar hafa aldrei verið vinsælli.
Nú skráum við í:
JazzballettFreestyle
Innritun í síma 553-0786 eftir kl. 12.00
Dugguvogi 12
*Leið 4
stoppar
stutt frá • 5-7 ára
• 8-10 ára
• 11-13 ára
• 14-16 ára
• 17 ára og eldri - dansandi í 10 ár