Fréttablaðið - 31.08.2003, Side 42
■ ■ KVIKMYNDIR
Sjá www.kvikmyndir.is
Sambíóin Kringlunni, s. 588 0800
Sambíóin Álfabakka, s. 587 8900
Háskólabíó, s. 530 1919
Laugarásbíó, s. 553 2075
Regnboginn, s. 551 9000
Smárabíó, s. 564 0000
Borgarbíó, Akureyri, s. 462 3500
Sambíóin Keflavík, , s 421 1170
■ ■ TÓNLIST
22.00 Lokatónleikar Sumarkvölds
við orgelið. Með þessum tónleikum lýk-
ur 27. tónleikum 11. starfárs Sumar-
kvölds við orgelið í Hallgrímskirkju.
■ ■ LEIKLIST
16.00 Grease sýnt í Borgarleik-
húsinu. Verkið er sýnt á Stóra sviðinu.
20.00 Sumaróperan sýnir Peppeu
í Borgarleikhúsinu.
20.00 Grease sýnt í Borgarleik-
húsinu. Verkið er sýnt á Stóra sviðinu.
■ ■ SÝNINGAR
Danski myndlistarmaðurinn Claus
Hugo Nielsen sýnir verk sín í Gallerí
Dvergi við Grundarstíg 21, 101 Reykja-
vík. Sýningin er opin fimmtudaga til
sunnudaga kl. 17-19 til 31. ágúst.
Baldvin Ringsted og Jóna Hlíf Hall-
dórsdóttir eru með myndlistarsýningu í
Bögglageymslunni, Listagilinu á Akur-
eyri. Opið virka daga 17-22 og um helg-
ar 14-18. Sýningin stendur til 1. septem-
ber.
Kristján Guðmundsson er með sýn-
ingu í Kompunni, Kaupvangsstræti 23.
Akureyri. Á sýningunni er eitt verk gert
úr plasti og gulli. Einnig verður til sýnis
og sölu bókverkið (DOKTORSRITGERÐ)
eftir Sigrúnu Þorsteinsdóttur og Kristján,
sem kom út fyrr á þessu ári. Sýning
Kristjáns er opin daglega 14-17 til 4.
september.
Cesco Soggiu og Karl Kristján Dav-
íðsson sýna í Galleríi Sævars Karls í
Bankastræti. Sýningin stendur til 28.
ágúst.
Sýning á verkum Ragnars Kjartans-
sonar stendur yfir í Listasafni ASÍ.
Myndlistarmaðurinn Sólveig Alda
Halldórsdóttir sýnir verk sitt Upp-skurð-
ur á Vesturveggnum í Skaftfelli Bistro á
Seyðisfirði. Verk Sólveigar samanstendur
af texta sem unnin er upp úr dagbókar-
færslum William Burroughs og hennar
eigin. Sýningin stendur til 5. september
og er opin alla daga frá kl. 11 til 24.
Danski ljósmyndarinn Peter Funch
er með sýninguna „Las Vegas - Made by
man“ í Kling og Bang gallerí, Laugavegi
23.
Guðbjörg Lind hefur opnað mál-
verkasýningu í aðalsal Hafnarborgar,
menningar- og listastofnunar Hafnar-
fjarðar. Viðfangsefni Guðbjargar Lindar
hafa frá upphafi verið tengd vatni, fyrst
fossum og síðar óræðum og ímynduð-
um eyjum á haffleti.
Anna Jóelsdóttir hefur opnað sýn-
inguna Flökt í Hafnarborg, menningar-
og listastofnun Hafnarfjarðar.
Á Café Milanó stendur nú yfir sýn-
ing á málverkum Péturs Péturssonar.
Sýningunni lýkur 7. september.“
Samsýning 20 akureyskra lista-
manna stendur yfir í Ketilhúsinu á Ak-
ureyri.
Sýningin Þrettán + þrjár stendur yfir
í Lystigarðinum á Akureyri. Þetta er
samsýning þrettán norðlenskra lista-
kvenna og þriggja frá Færeyjum.
Sýningar Gjörningaklúbbsins,
Heimis Björgúlfssonar og Péturs Arnar
Friðrikssonar standa yfir í Nýlistasafn-
inu við Vatnsstíg. Gjörningaklúbburinn
opnar á 2. hæð safnsins sýninguna Á
bak við augun. Í norðursal 3ju hæðar-
innar er sýning Heimis Björgúlfssonar
Gott er allt sem vel endar (Sheep in
disguise) og í suðursalnum sýning Pét-
urs Arnar Friðrikssonar Endurgerð.
Sýningarnar standa til 7. september.
Sýning á nýjum verkum Rögnu
Sigrúnardóttur stendur yfir í Listhúsi
Ófeigs að Skólavörðustíg 5, Reykjavík.
Viðfangsefni Rögnu er blómaskeið lif-
andi hluta og spurningin hvort hræðslan
við að eldast sé það sem takmarkar feg-
urðarmat okkar. Þetta er 13. einkasýning
Rögnu hér á landi.
Íslensk og alþjóðleg samtímalistaverk
eru til sýnis í Safni, Laugavegi 37.
Þrjár sýningar eru í Listasafni
Reykjavíkur - Hafnarhúsinu. Þetta eru
sýningarnar Humar eða frægð -
Smekkleysa í 16 ár, Innsýn í alþjóð-
lega samtímalist á Íslandi og Erró
Stríð.
Sumarsýning í Listasafni Íslands á
úrvali verka í eigu safnsins.
Í Gerðarsafni í Kópavogi stendur yfir
sýning á málverkum Jóhannesar Kjar-
vals úr einkasafni Þorvaldar Guðmunds-
sonar og Ingibjargar Guðmundsdóttur.
Sumarsýning Handverks og Hönn-
unar stendur yfir í Aðalstræti 12. Til sýn-
is er bæði hefðbundinn listiðnaður og
nútíma hönnun úr fjölbreyttu hráefni.
Meðal þess sem sýnt er, eru munir úr
tré, roði, ull, hör, leir, selskinni, hrein-
dýraskinni, pappír, silfri og gleri frá 26
aðilum. Sýningin er opin alla daga
nema mánudaga og lýkur 31. ágúst.
Í Þjóðarbókhlöðunni standa yfir
þrjár sýningar. Eins og í sögu nefnist
sýning á samspili texta og myndskreyt-
inga í barnabókum 1910-2002. Þar er
einnig sýning til minningar um Lárus
Sigurbjörnsson, safnaföður Reykvíkinga.
Loks er lítil sýning í forsal Þjóðdeildar á
Heimskringlu og Snorra-Eddu.
Sýning í anddyri Norræna hússins
sem nefnist Vestan við sól og norðan
við mána. Á sýningunni eru ljósmyndir
eftir Ragnar Th. Sigurðsson með texta
eftir Ara Trausta Guðmundsson. Sýning-
unni lýkur 31. ágúst.
Ragnhildur Kristjánsdóttir (Ragsý)
sýnir verk sín á Kaffi Presto, Hlíðarsmára
15 í Kópavogi. Sýningin stendur til 15.
október
Ragnhildur Kristjánsdóttir (Ragsý)
sýnir verk sín í Blómakaffi í Blómaverk-
stæði Betu, Reykjavíkurvegi 60. Hún er
myndlistarmaður mánaðarins til 19. sep-
tember.
Sýningin Reykjavík í hers höndum
í Íslenska stríðsárasafninu á Reyðar-
firði er sett upp af Borgarskjalasafni
Reykjavíkur og Þór Whitehead sagn-
fræðingi í samvinnu við Íslenska stríðs-
árasafnið. Á sýningunni getur nú að líta
mun meira af stríðsminjum en áður
sem koma frá Íslenska stríðsárasafninu.
Sumarsýningu í bókasal Þjóðmenn-
ingarhússins, Íslendingasögur á er-
lendum málum, er ætlað að gefa inn-
sýn í bókmenntaarfinn um leið og at-
hygli er vakin á því að fjölmargar útgáfur
Íslendingasagna eru til á erlendum mál-
um.
Sýningin Handritin stendur yfir í
Þjóðmenningarhúsinu. Sýningin er á
vegum Stofnunar Árna Magnússonar.
Einnig er þar sýning sem nefnist Ís-
landsmynd í mótun - áfangar í korta-
gerð.
Hlynur Hallsson sýnir ljósmynda- og
textaverkið „sund - schwimm - swim“ í
gallerí i8, Klapparstíg 33. Opið fimmtu-
daga og föstudaga 11 - 18, laugardaga
13 - 17.
Sýning Roni Horn „This is me, this is
you“ í gallerí i8, Klapparstíg 33 er opin
fimmtudaga og föstudaga frá kl. 11 - 18,
laugardaga 13 - 17.
42 31. ágúst 2003 SUNNUDAGUR
Listasafn Akureyrar á tíu áraafmæli þessa dagana. Að því
tilefni hefur verið blásið í af-
mælislúðra í Listagilinu á Akur-
eyri, en tilefnið er tvöfalt. Lista-
safnið á annars vegar tíu ára af-
mæli og hins vegar á Þjóðminja-
safn Ísland 140 ára afmæli.
Í tilefni afmælsi þess yngsta
og þess elsta ráðast þau í sýn-
inguna „Þjóð í mótun:Ísland og
Íslendingar fyrri alda“. Auk
þessarar samvinnusýningar er
Erla S. Haraldsdóttir, nýjasti
verðlaunahafi Listasjóðs Penn-
ans, og Bo Melin með sýningu á
því hvernig Akureyrarbær gæti
litið út í óræðri framtíð ef þar
byggju í kring um 700 þúsund
manns, en sú sýning ber heitið
„Abbast uppá Akureyri“.
Upphaflega hugmyndin að stofn-
un listasafns á Akureyri er komin
frá Jónasi Jónassyni frá Hriflu í
blaðagrein sem skrifaði árið 1960.
Það tók því þrjá áratugi að hrinda
hugmyndinni í framkvæmd en það
var árið 1993 í gamla Mjólkursam-
lagi KEA. Markmið Listasafnsins á
Akureyrir hefur frá upphafi verið
að efla myndlistarlíf á Akureyri og
stuðla að framgangi sjónlista og
listmenntunar.
Þessi sýning, sem opnuð var í
gær, er sérstök að því leyti að
þetta er í fyrsta sinn sem verk í
eigu Þjóðminjasafnsins eru sýnd í
listasafni og í fyrsta sinn sem
þessir munir eru sýndir norðan
heiða. Margt af því sem minjasöfn
sýna og varðveita flokkast ekki til
listmuna heldur til margvíslegra
minja sem bera lifnaðarháttum
fyrri tíma vitni. Með því að sýna
þessa gripi á Listasafninu á Akur-
eyri er reynt að blása sagnaryk-
inu af þeim og skoða þá í öðru
samhengi en menn eiga að venj-
ast, sem sérstaka listmuni. Flest
verkanna eru frá 17. og 18. öld en
þau elstu eru frá miðri 16. öld.
Sýningin stendur til 2. nóvem-
ber. ■
Nýtt og gamalt mætast
hvað?hvar?hvenær?
28 29 30 31 1 2 3
ÁGÚST
Sunnudagur
Í TILEFNI AF AFMÆLI
Listasafn Akureyrar heldur upp á 10 ára afmæli þessa dagana. Sýning hefur verið opnuð
af því tilefni í safninu.
■ MYNDLIST