Fréttablaðið - 15.09.2003, Blaðsíða 1
bílasýning ● nýir bílar
▲
SÍÐUR 14-15
bílar o.fl.
Situr í drauma-
bílnum
Óskar Jónasson:
25 ára í dag
Eiður Smári Guðjohnsen:
▲
SÍÐA 12
Fótboltatertur
í æsku
fimm lið í fallhættu
KR-ingar tóku við titlinum:
▲
SÍÐA 20
Töpuðu
fyrir ÍBV
● áhugaverðar eignir
▲
Fylgir Fréttablaðinu í dag
Heldur upp á
Seðlabankahúsið
Helgi Hafliðason:
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500
Tónlist 22
Leikhús 22
Myndlist 22
Íþróttir 20
Sjónvarp 24
MÁNUDAGUR
STAÐIÐ VIÐ GEFIN LOFORÐ Félagar
í Félagi smábátaeigenda voru sáttir í lok
fundar sem haldinn var á Ísafirði í gær um
línuívilnun. Félagsmenn telja vilja fyrir
hendi meðal stjórnarþingmanna að standa
við gefin loforð. Sjá síðu 2.
EISTLAND Í ESB Eistlendingar sam-
þykktu með miklum meirihluta greiddra at-
kvæða að ganga í Evrópusambandið. Þjóð-
aratkvæðagreiðsla um aðild að ESB fór fram
í landinu í gær og bentu útgönguspár í gær-
kvöldi til að ríflega þrír af hverjum fjórum
hefði sagt já við aðildinni. Sjá síðu 2.
BANDALAG Í MÓTUN Þrátt fyrir að
ógnarástandið í Ísrael og Palestínu hafi orðið
til að binda snöggan enda á heimsókn
Ariels Sharons til Indlands, fyrstu opinberu
heimsókn ísraelsks forsætisráðherra þangað,
fjölgar þeim sem telja að ríkin tvö séu ásamt
Bandaríkjunum að mynda bandalag í varn-
ar- og hernaðarmálum. Sjá síðu 6.
LANDBÚNAÐARRÁÐHERRA UM
TOLLKVÓTA Guðna Ágústssyni landbún-
aðarráðherra finnst Samtök verslunar og
þjónustu fara offari í umræðu sinnu um
tollkvóta á landbúnaðarvörum. Sjá síðu 4.
RÍKAR ÞJÓÐIR OG SNAUÐAR
Ráðstefna um þróunarsamvinnu verður
haldin í Háskóla Íslands. Ráðstefnan
stendur frá klukkan 13 til 17. Dr. Jeffrey
D. Sachs, forstjóri Jarðarstofnunarinnar
við Columbia-háskóla, fjallar um þróunar-
aðstoð og hlutskipti þróunarlanda með
sérstöku tilliti til þúsaldarmarkmiða Sam-
einuðu þjóðanna. Sjá nánar:
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
GOLFVEÐUR Góðviðrisdagur fram und-
an. Tilvalið að spássera um bæinn með
krökkunum eða fara í golf. Sjá síðu 4.
Gagnrýna aðkomu SA
að Kárahnjúkadeilu
Kjaradeilan við Kárahnjúkavirkjun er í hnút. Framkvæmdastjóri Samiðnar gagnrýnir túlkun
Samtaka atvinnulífisins og Impregilo á lágmarkslaunum. Aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka
atvinnulífsins segir kjör starfsmanna Impregilo standast virkjunarsamning.
KJARADEILA Deilan um launakjör
starfsmanna við Kárahnjúkavirkj-
un er í hnút. Þorbjörn Guðmunds-
son, framkvæmdastjóri Samiðnar,
segir Samtök atvinnulífsins (SA)
hafa tekið afstöðu með ítalska verk-
takafyrirtækinu Impregilo í launa-
deilunni við starfsmenn. Hannes G.
Sigurðsson, aðstoðarframkvæmda-
stjóri Samtaka atvinnulífsins, segir
það ekki rétt.
„Eftir að menn fóru að gera
ágreining um hvað væru lág-
markslaun voru forsendurnar fyr-
ir samningaviðræðunum brostnar
– menn eru ekki einu sinni að tala
saman núna,“ segir Þorbjörn.
„Þegar fyrirtækið gerir ágreining
um lágmarkslaunin fer SA inn í þá
deilu með því og þar með er málið
orðið miklu víðtækara en svo að
það snúi bara að þessum samningi.
Við ætlum ekki að fara að semja
við þetta ítalska fyriræki um út-
færslu á lágmarkslaunum, sem á
síðan að snerta alla aðra kjara-
samninga í landinu.“
Hannes segist hafa átt viðræður
við Alþýðusambandið um það
hvernig skilja beri lágmarkskjör
samkvæmt lögum.
„Við höfum mismunandi skilning
á því en ég held að Impregilo hafi
ekki neinn sérstakan skilning á því.
Við höldum því fram að lágmarks-
launakjör geti verið samsett úr
fleiri en einni tölu, en þurfi ekki
endilega að vera ein tala eins og
tímakaup eða mánaðarlaun.“
Hannes segir mikilvægt, þegar
verið sé að tala um launakjör starfs-
manna við Kárahnjúka, að greint sé
á milli þeirra sem eru í beinu starfi
hjá Impregilo, verktaka á vegum
fyrirtækisins og þeirra sem eru þar
á vegum starfsmannaleigufyrir-
tækja.
„Impregilo er með sitt fólk á
ráðningarkjörum sem eru ítölsk,“
segir Hannes. „Samtök atvinnulífs-
ins og Impregilo hafa lagt fram
greinargerð og útreikninga sem
eiga að sýna fram á að þessi kjör
standist virkjunarsamninginn. Við
höfum hins vegar ekki látið í ljós
neina afstöðu um þau laun sem
starfsmannaleigufyrirtækin eru að
greiða. Það mál er til skoðunar.“
Þorbjörn segir framhald við-
ræðnanna vera í höndum Samtaka
atvinnulífsins.
„Við lögðum fram okkar skilning
á lágmarkslaunum og þeir ætla að
svara okkur á næstu dögum. Ef þeir
ætla að halda sig við þessa túlkun á
lágmarkslaunum sem þeir hafa ver-
ið að styðja er ég svartsýnn á fram-
haldið.“
Virkjunarsamningurinn fellur úr
gildi í febrúar næstkomandi. Þor-
björn segir að ef ekki náist sam-
komulag í deilunni við Kárahnjúka-
virkjun sé ljóst að hún sigli beint inn
í komandi kjarasamninga og muni
hafa mikil áhrif á þá.
trausti@frettabladid.is
15. september 2003 – 222. tölublað – 3. árgangur
RAMALLAH, AP Varaforsætisráð-
herra Ísraels, Ehud Olmert, segir
koma til greina að ráða Yasser
Arafat, leiðtoga Palestínumanna,
af dögum. Palestínumenn söfnuð-
ust saman á götum Vesturbakk-
ans og á Gaza-svæðinu í gær og
hétu því að verja leiðtoga sinn.
Ísraelskir ráðamenn hafa
undanfarna daga hótað því að
ryðja Arafat úr vegi með því að
senda hann í útlegð, fangelsa eða
jafnvel myrða hann. Olmert er þó
nánasti samstarfsmaður Ariels
Sharons forsætisráðherra sem
tekið hefur undir þessar raddir
enn sem komið er.
Ísraelskir ráðamenn ásaka
Arafat um að koma í veg fyrir
friðarumleitanir og ákvað Ísra-
elska öryggisráðið því á fimmtu-
dag að „fjarlægja“ Arafat eftir að
tvær sjálfsmorðsárásir urðu
fimmtán manns að bana.
Að sögn Olmerts kemur einnig
til greina að halda Arafat í ein-
angrun í höfuðstöðvum hans í
Ramallah með því að skera á
símalínur og koma í veg fyrir
heimsóknir þangað.
Aðalsamningamaður Palest-
ínumanna fordæmir ummæli Ol-
merts og segir þau bera vott um
hugsunarhátt mafíunnar en ekki
ríkisstjórnar í lýðræðisríki. ■
Arafat sagður koma í veg fyrir friðarumleitanir:
Til greina kemur að
ráða Arafat af dögum
HAFNA EVRUNNI Flest benti í gærkvöld til að Svíar hefðu í þjóðaratkvæðagreiðslu hafnað aðild að sameiginlegu myntbandalagi Evr-
ópu með afgerandi hætti. Samkvæmt útgönguspám voru rúm 46% fylgjandi aðild en tæp 52% á móti. Fyrstu tölur sem birtar voru gáfu
til kynna enn meiri mun. Höfnun evrunnar er mikið áfall fyrir Göran Persson, forsætisráðherra Svíþjóðar. Sjá nánar bls. 2.
ARAFAT FAGNAÐ
Hundruð skólabarna söfnuðust saman fyrir
utan höfuðstöðvar Arafats í Ramallah til að
sýna honum stuðning sinn, en Ísraels-
menn hafa hótað að ryðja honum úr vegi.
Sameinuðu þjóðirnar í Írak:
Ekkert
samkomulag
GENF, AP Ekki tókst samkomulag um
hlut Sameinuðu þjóðanna í Írak á
fundi utanríkisráðherra þeirra
fimm ríkja sem eiga fastafulltrúa í
öryggisráði Sameinuðu þjóðanna,
sem lauk í Genf í Sviss á laugardag.
Auk fastafulltrúanna sat Kofi
Annan, framkvæmdastjóri Samein-
uðu þjóðanna, fundinn. Þar ítrek-
uðu ráðherrarnir það markmið að
endurreisa fullveldi Íraks og
ræddu um ályktunartillögu sem
Bandaríkjamenn hafa lagt fram í
öryggisráðinu. Hún miðar að því að
koma á fót fjölþjóðlegum friðar-
gæsluher undir bandarískri stjórn.
Samkvæmt tillögunni taka aðildar-
ríki Sameinuðu þjóðanna á sig hluta
af kostnaði við uppbygginguna í
Írak.
Hvorki tókst samkomulag um
tímaáætlun fyrir pólitíska upp-
byggingu í Írak né um það hvert
hlutverk SÞ á að vera. ■
Morðið á Önnu Lindh:
Nýjar
myndir
STOKKHÓLMUR, AP Sænska lögreglan
birti í gær nýjar myndir af meint-
um morðingja Önnu Lindh, utan-
ríkisráðherra Svíþjóðar, og eru
það fyrstu myndir sem birtar er án
þess að andlit mannsins sé hulið.
Myndirnar voru teknar af öryggis-
myndavélum verslunarinnar þar
sem Lindh var myrt.
Blóðblettir fundust nærri morð-
staðnum og leiddi bráðabirgða-
rannsókn í ljós að blóðið er ekki úr
Lindh. Því er talið mögulegt að
blóðið sé úr morðingjanum.
Sjá nánar bls. 4.
AP
M
YN
D