Fréttablaðið - 15.09.2003, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 15.09.2003, Blaðsíða 8
8 15. september 2003 MÁNUDAGUR Formannsframboð „Ég ætla ekki að útiloka neitt. En það er ekki sama fyrir- komulag í Sjálf- stæðisflokknum og í Samfylk- ingunni, að menn leggi pantanir inn nokkur ár fram í tímann. Ákvarðanir verða teknar þegar þær eru tímabærar.“ Björn Bjarnason í Fréttablaðinu 14. september. Ísland er lítil eyja í norðri Við munu að sjálfsögðu keppa að því að halda eða auka við markaðshlutdeildina hér heima. Ef bankinn ætlar hins vegar að stækka verulega verður það að vera utan Íslands. Sigurður Einarsson í Fréttablaðinu 14. september. Orðrétt Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar: Vill breytingar á stjórnarskránni STJÓRNMÁL Össur Skarphéðinsson segir að á næsta ári, aldarafmæli heimastjórnarinnar á Íslandi, sé kjörið tækifæri til að endurskoða og betrumbæta stjórnarskrá Íslands. „Stjórnarskráin er barn síns tíma og fyrir utan mikilvægar endurbæt- ur á mannréttindakafla hennar árið 1994 og breytingar er varða kjör- dæmaskipan á landinu er margt ann- að í henni sem færa má til betra og nútímalegra horfs.“ Þar á Össur við ákvæði um sam- eign þjóðarinnar á fiskistofnum landsins. „Ég tel mjög mikilvægt að slíku ákvæði verði bætt við hana. Sameignarákvæðið þarf einnig að ná til fleiri þátta. Það þarf að taka af öll tvímæli varðandi allar okkar nátt- úruauðlindir. Ef samstaða næst um að stofna nefnd til að hrinda breyt- ingum í framkvæmd þarf einnig að skoða hvort ekki eigi að taka inn í stjórnarskrá ákvæði um þjóðarat- kvæði ef tilskilinn fjöldi atkvæðis- bærra manna óskar eftir slíku.“ ■ Neyðarástand eftir fellibyl í Suður-Kóreu Tugir eru látnir og margra saknað eftir að fellibylurinn Maemi gekk yfir Suður-Kóreu. Vind- hraði mældist yfir 60 metrar á sekúndu og sólarhringsúrkoma mældist 450 millimetrar en hvort tveggja er met í landinu. Ár flæddu yfir bakka sína og mörg kjarnorkuver stöðvuðust. SEÚL, AP Að minnsta kosti 84 fórust og 25 er saknað eftir að öflugur fellibylurinn Maemi gekk yfir suðurhluta Suður- Kóreu. Fellibylurinn er sá öflug- asti sem gengið hefur yfir land- ið í heila öld. Vindhraðinn fór í 216 kílómetra á klukkustund, 60 metra á sekúndu. Vindhraði hefur aldrei mælst meiri í land- inu. Risaskip, bæði farþegaskip og ferjur, veltust eins og kork- tappar og lagðist stórt farþega- skip á hliðina í höfninni í Busan. Að minnsta kosti 11 stórir flutn- ingakranar létu undan veður- hamnum í Busanhöfn og voru líkt og snúnar tyggjóplötur. Þá fuku 20 feta flutningagámar um bryggjur eins og hráviði. Úrhellisrigning fylgdi felli- bylnum og nam sólarhringsúr- koman 450 millimetrum. Stór landsvæði eru umflotin, akrar bænda eru ónýtir og ár flæddu yfir bakka sína. Í borgum og bæjum voru götur á floti. Tæp- lega 25.000 manns leituðu skjóls í neyðarskýlum sem sett voru upp í skólum og víðar. Raforkuframleiðsla stöðvað- ist í fimm af 18 kjarnorkuverum landsins af völdum fellibylsins. Engin hætta var þó talin á að geislavirk efni lækju út. Þá löm- uðust öll fjarskipti í suðurhluta landsins. Goh Kun, forsætisráðherra Suður-Kóreu, hét í gær aðstoð til þeirra sem urðu fyrir tjóni af völdum fellibylsins. Þeir 84 sem fórust drukkn- uðu, grófust undir aurskriðum, urðu fyrir braki eða létust af völdum raflosts. Fellibylurinn Maemi ber nafn söngtifu, skordýrs sem gefur frá sér einstakt hljóð með þar til gerðu líffæri aftast á búknum. the@frettabladid.is Verslunarmenn í Bretlandi: Ofbeldi áhyggjuefni ERLENT Stéttarfélag starfs- manna í verslun og þjónustu í Bretlandi (Usdaw) hafa áhyggj- ur af því hversu oft félagsmenn þeirra verða fyrir barsmíðum. Af því hafa þeir helgað 17. sept- ember verslunarmönnum og hvetja breskan almenning til að meta verslunarmenn að verð- leikum og virða starf þeirra. Talið er að rúmlega sextán þúsund starfsmenn í verslun í Bretlandi hafi orðið fyrir lík- amsárás árið 2002. Tæplega 49 þúsund var hótað og 70 þúsund var úthúðað af viðskiptavinum sínum eða öðrum. Þá hafa starfsmenn lent á sjúkrahúsum vegna þessa. Varaformaður Usdaw, John Hannett, segir að ofbeldi gegn félagsmönnum hafi aukist um 75% frá árinu 1999. ■ Skrá›u fyrirtæki› í Fyrirtækjabankann í næsta útibúi Íslandsbanka, í síma 440 4000 e›a sendu póst á isb@isb.is. A›gangsst‡ring Erlendar grei›slur Áhættu- og skuldast‡ring Innheimtufljónusta N‡r Fyrirtækjabanki á Netinu Kynntu flér fjölmargar n‡jungar sem au›velda flér a› hafa fjármál fyrirtækisins í hendi flér. ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON Segir tíma til kominn að færa stjórnarskrá Íslands til nútímalegra horfs. ÍRANAR SEGJA NEI Stjórnvöld í Íran ætli ekki að virða þau tímamörk sem þeim hafa verið gefin til að sanna að þau búi ekki yfir leynilegri kjarnorku- vopnaáætlun. Íran hefur fengið frest fram að mánaðamótum, en ef stjórnvöld þar virða þau ekki er líklegt að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna grípi í taumana. ■ ■ Asía SIGLT Á DAEGU Vatnselgurinn var svo mikill að flaut yfir vélarhlífar fólksbíla. HÓTELIÐ Á HLIÐINA Þetta fljótandi hótel fauk á hliðina í höfn- inni í Busan, suður af Seúl. FR ET TA B LA Ð IÐ /B IL LI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.