Fréttablaðið - 15.09.2003, Qupperneq 4
4 15. september 2003 MÁNUDAGUR
Tekur þú slátur?
Spurning dagsins í dag:
Viltu lestarsamgöngur á höfuðborgar-
svæðið?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
20,3%
Nei
Já
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
Landbúnaðarráðherra um tollkvóta:
Vísar gagnrýni á bug
LANDBÚNAÐARMÁL „Ég held að for-
svarsmenn verslunar hér á landi
ættu að líta sér nær,“ sagði Guðni
Ágústsson landbúnaðarráðherra
vegna þeirrar umræðu sem nú er
uppi um tollkvóta á innfluttum
landbúnaðarvörum. Samtök versl-
unar og þjónustu vilja meina að
tollkvótar landbúnaðarráðuneyt-
isins geri mönnum það ókleift að
bjóða landsmönnum erlendar
landbúnaðarafurðir á sanngjörnu
verði.
„Þessir tollkvótar eru sam-
kvæmt alþjóðlegum samningum og
þeim verður ekki breytt í einni
svipan. Reyndar á enn eftir að
koma í ljós hvað gerist á fundi Al-
þjóða viðskiptastofnunarinnar sem
nú stendur yfir, en fyrir liggur að
Íslendingar flytja inn mun meira af
landbúnaðarvörum nú þegar en
gengur og gerist erlendis.“
Guðni vísar gagnrýni verslunar-
manna á bug. „Ég veit ekki betur en
að nánast allar matvörur hafi
hækkað hérlendis undanfarin tíu ár
nema landbúnaðarvörur. Það er að
bera í bakkafullan lækinn að segja
innflutningstolla standa í vegi fyrir
sanngjarnri verðmyndun. Megnið
af þeim vörum sem engan toll bera
hefur hækkað um tugi prósenta á
meðan landbúnaðarafurðir hafa
lækkað. Þeir verða að gæta sann-
girni í sínum málflutningi.“ ■
Biðja um hjálp
frá almenningi
STOKKHÓLMUR, AP Sænska lögregl-
an birti í gær nýjar myndir af
manni sem grunaður er um morð-
ið á Önnu Lindh, utanríkisráð-
herra Svíþjóðar. Þetta eru fyrstu
myndirnar sem birtar eru af
manninum án þess að andliti
mannsins sé breytt. „Við viljum
að almenningur
hjálpi okkur að
finna manninn,“
sagði Mats Ny-
len, talsmaður
sænsku lögregl-
unnar. Hann
segir nokkra að-
ila hafa verið yf-
irheyrða í
tengslum við
morðið á Önnu
Lindh, en að
þeim hafi öllum
verið sleppt.
Myndirnar voru teknar af ör-
yggismyndavélum verslunarinn-
ar þar sem Anna Lindh var myrt
og er andlit mannsins að hluta til
falið undir blárri derhúfu. Maður-
inn á myndinni er klæddur grárri
hettupeysu og eru ermar
peysunnar rúllaðar upp. Að sögn
lögreglu passar maðurinn á
myndinni við lýsingu sjónarvotta
á morðingja Önnu Lindh, um það
bil þrítugur Svíi með axlasítt hár.
Rannsóknarlögreglumenn höfðu
þó sagt þann grunaða þéttvaxinn,
en maðurinn á myndinni er meðal-
maður að þyngd. Sjálf árásin á
Önnu Lindh var þó ekki tekin upp
af öryggismyndavélum verslun-
arinnar.
„Okkur hefur ekki tekist að
bera kennsl á manninn á mynd-
inni, en ég held að við munum
finna hann,“ sagði Stina Wessling,
talsmaður lögreglu. Að sögn henn-
ar hafa lögreglu borist þúsundir
ábendinga eftir að myndin var
birt, en enn hafa þær ekki borið
árangur. „Við höldum áfram að
hafa auga með um það bil tíu góð-
kunningjum lögreglunnar. Auk
þess eru nokkrir aðilar sem við
viljum kanna nánar,“ segir Stina.
Þá hafa rannsóknarstofur hald-
ið áfram að leita að lífsýnum úr
morðingjanum á hnífnum sem
varð Önnu Lindh að bana. Ekki
hefur þó verið ákveðið hvort hníf-
urinn verður sendur til Þýska-
lands eða Bretlands til frekari
rannsóknar. Einnig stendur yfir
rannsókn á fatnaðinum sem morð-
inginn henti frá sér á flótta frá
morðstaðnum.
Þá fundust blóðblettir nærri
morðstaðnum og bendir bráða-
birgðarannsókn til þess að blóðið
sé ekki úr Önnu Lindh. Talið er að
blóðið sé úr morðingjanum, sem
hafi skorið sig er hann réðst á
Lindh. Rannsókn á blóðinu er nú
hafin og standa vonir til þess að
niðurstöðurnar leiði í ljós hver
morðinginn er. ■
Friðargæslan í Kosovo:
Sænskur her-
maður lést
PRISTINA, AP Sænskur friðargæslu-
liði lést og annar særðist í spreng-
ingu sem varð í bækistöðvum
sænskra friðargæsluliða í Kosovo
í gær.
Talið er að sprengjuhleðsla
hafi sprungið fyrir slysni. Nú eru
um 21.000 friðargæsluliðar við
friðargæslu í Kosovo, þar af um
700 sænskir hermenn. Ekki er
ljóst hve margir voru staddir í
herbúðum sænsku hermannanna
þegar óhappið varð.
Friðpargæslulið á vegmu
NATO hefur verið í Kosovo frá
stríðslokum á Balkanskaganum
árið 1999. ■
Colin Powell:
Kominn til
Íraks
BAGDAD, AP Colin Powell, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, kom til
Bagdad í gær. Þetta er fyrsta
heimsókn Powells til Íraks eftir að
Saddam Hussein, fyrrum forseta
landsins, var steypt af stóli. Við
komuna til Bagdad sagðist Powell
ánægður með framfarir í stjórn-
málum og efnahag landsins eftir
að stríðinu lauk.
Þá sagðist Powell hvattur
áfram af stefnu landsins í átt til
sjálfstjórnar, en bætti við að
landamæri landsins drægju til sín
skemmdarverkamenn sem reyndu
að vinna gegn þessu markmiði. ■
ICI – ný miðstöð:
Vinna gegn
fordómum
FRÆÐSLA ICI – Inter Cultural
Iceland er heiti á nýrri miðstöð sem
nýlega var stofnuð. Markmið stofn-
unarinnar er að auka fjölmenning-
arleg samskipti og samvinnu á Ís-
landi, nýta þekkingu innflytjenda
til að auðga íslenskt samfélag og
vinna gegn fordómum og mismun-
un. Að auki aðstoðar ICI innflytj-
endur með ýmsu móti við að koma
sjónarmiðum sínum á framfæri en
einnig verður mikil áhersla lögð á
námskeiðsahald og fræðslu. ■
Írak:
Ráðist á
hermenn
FALLUJAH, AP Einn bandarískur
hermaður lést og þrír særðust í
árás fyrir utan borgina Fallujah,
50 kílómetra vestur af Bagdad, í
gær. Þar höfðu opinberir emb-
ættismenn lagt niður störf til
þess að mótmæla árás banda-
ríska hersins, sem olli dauða
átta íraskra lögreglumanna og
jórdansks gæsluliða á föstudag.
Bandaríski herinn hefur beðist
afsökunar á atvikinu.
Atvikið hefur valdið mikilli
ólgu í Fallujah, en allt frá því
skömmu eftir að borgin var her-
tekin í apríl hefur gengið á með
árásum milli bandaríska hersins
og íbúa borgarinnar. ■
Mannskætt rútuslys í
Brasilíu:
14 látnir og
36 slasaðir
BRASILÍA, AP Að minnsta kosti 14
létust og 36 slösuðust þegar rúta
og fólksbíll rákust á skammt
utan við höfuðborg Brasilíu í
gær.
Fólksbifreiðin reyndi að fara
fram úr rútunni og rakst þá á bíl
sem kom á móti. Báðir fólksbíl-
arnir köstuðust á rútuna, sem
fór við það út af veginum og
kastaðist tugi metra niður
bratta hlíð. Tíu farþegar létust
samstundis en fjórir létust á leið
á sjúkrahús. ■
Slasaður eftir bílveltu:
Óbreytt
ástand
BÍLSLYS Maðurinn sem lenti í bíl-
veltu á Holtavörðuheiði á föstu-
dag liggur enn á gjörgæsludeild
Landspítalans í Fossvogi. Að
sögn vakthafandi læknis er líð-
an mannsins óbreytt. Hann
hafði farið í aðgerð á föstudags-
kvöldið eftir að hafa hlotið al-
varlega áverka. Líðan hans er
eftir atvikum.
Slysið átti sér stað skammt
frá Miklagili. Auk mannsins
voru tveir aðrir í bílnum, karl og
kona. Flogið var með þau á
slysadeild en meiðsl þeirra
reyndust ekki eins alvarleg. ■
GUÐNI ÁGÚSTSSON
Finnst Samtök verslunar og þjónustu fara
offari í umræðu sinni um tollkvóta á land-
búnaðarvörum.
FRÁ FALLUJAH
Mikillar reiði gætir í garð bandaríska hers-
ins eftir að átta lögreglumenn og einn
jórdanskur gæsluliði voru drepnir í borg-
inni á föstudag.
COLIN POWELL
Heimsækir Írak í fyrsta skipti eftir að
Saddam Hussein, fyrrum forseta landsins,
var steypt af stóli.
Skólameistari MA:
Vill hækkun
grunnlauna
NÁM Menntaskólinn á Akureyri
var settur í 124. skipti í gær. Í
ræðu nýs skólameistara, Jóns Más
Héðinssonar, kom m.a. fram að
mikilvægt væri að ríkið ynni að
bættum aðbúnaði nemenda og
starfsfólks. Vinna þyrfti að hækk-
un grunnlauna svo hlutfall yfir-
vinnu minnkaði enn frekar. Jón
Már sagði að sótt hefði verið til
menntamálaráðuneytisins um að
breyta skólaárinu til samræmis
við aðra framhaldsskóla. Í bréfi
frá ráðuneytinu var ekki heimiluð
fjárveiting fyrir breytingu á
næsta skólaári. ■
GRUNAÐUR UM MORÐIÐ Á ÖNNU LINDH
Lögregla birti í gær nýjar myndir af meintum morðingja Önnu Lindh og eru þetta fyrstu
myndir sem birtar eru án þess að andliti mannsins sé breytt.
Myndir af manni grunuðum um morðið á Önnu Lindh birtar í gær, þær
fyrstu þar sem andlit hins grunaða er ekki hulið. Lögregla rannsakar
hvort blóðblettir sem fundust á staðnum séu úr morðingjanum.
„Okkur hef-
ur ekki tekist
að bera
kennsl á
manninn á
myndinni, en
ég held að
við munum
finna hann.
79,7%